Veðrið - 01.09.1962, Síða 7

Veðrið - 01.09.1962, Síða 7
Lambhús slóðu um 330 m suðveslur aj kirkjudyrum á Bessastöðum. Nú er slétt- ur túnbali þar, sem beerinn stóð. muni verða ódýrari fyrir fjárhirzlu konungs en að liækka árslaun Lievogs, en að (iðrum kosti verði það vart umflúið. Með vorskipunum barst sliftamlmanni jákvætt svar frá kanzellíinu, ds. 8. apríl, og með haustskipunum ritar hann langt svarbréf, ds. 3. okt. 1780, og gerir grein fyrir framkvæmdum sínum á Lambhúsum. Helztu atriðin eru þessi: í sumar var ntýrin ræst fram og túngarður hlaðinn norðan við túnið á Lamb- húsum, og í l'yrra haust tókst að ljúka við húsið, þótt erfiðlega gengi vegna votviðranna að útvega öll þau kynstur af torfi, sem fara í slík hús með íslenzku sniði. Ivostnaður varð alls 200 ríkisdalir — auk 5 tunna af kalki og 850 múrsteina í reykháf, og var það fengið að láni af birgðum Bessastaðakirkju. Með núvcr- andi timburverði hefði kostnaðurinn orðið meiri, ef ég liefði ekki keypt gott timburhús í Hafnarfirði árið 1774 á 90 ríkisd., en hafði kostað 130 rd að byggja, þcgnr timburverð var hagstætt. Þetta hús var lengt um li. u. b. 3 álnir, og er lengd þess að utanmáli við jörð 20i/2 alin og breidclin 13^4 alin en innanmál 14^4 x 7|4 alin. Mismunurinn stafar af hinum þykku moldarveggjum fslenzkra húsa. í húsinu er stofa, lítið herbergi, eldhús, anddyri og loft yfir með gluggum og skilrúmi. Stofan, herbergið og eldhúsið cr þiljað innan. Kakalofn í húsinu hefur verið og er að láni, og þarf nýjan í hans stað. Þá er kanzellíið beðið við þóknanlega hentugleika að sjá til þcss, að kalkið og múrsteinarnir verði endurgoldnir í sama, nema það vilji heldur fela bréf- ritaranum að annast það. „Túngarður með djúpum skurði utan við er senn fullgerður með fram mýr- inni alveg upp að túnvellinum. Er hann alis 821 alin að lcngd og hæð l:j4 alin — auk skurðsins. Var þetta örðugt verk vegn \ hinna mörgu tnógrafa, sem fyrir urðu, fullar af eðju. Þrír menn liafa unnið að þessu verki frá júníbyrjun tif þcssa dags, svo að kostnaður er þegar orðinn framt að 50 rd. Aðeins lítill hluti garðsins hefur verið þakinn torfi, en það er nauðsynlegt, ef hann á að endast vcl, og mun það kosta meira cn þessa 10 rd. Þegar loksins lýkur verkinu, mun ég senda reikning yfir það og sömuleiðis kostnað við húsið. Auk þessa hefur stjörnufræðingur vor þegar fcngið 5 ársfjórðungalaun, alls 100 ríkisdali. Og VEÐRIÐ 43-

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.