Veðrið - 01.09.1962, Qupperneq 11

Veðrið - 01.09.1962, Qupperneq 11
og natinn við verk sitt. Fátækur hefur hann verið og borizt lítt á. Thodal stift- amtmaður virðist hafa verið honum veiviljaður, enda báðir Norðmenn. Eftir brottför Thodals liefur sennilega andað kaldara frá liöfðingjasetrinu í garð stjörnuskoðarans og ekki trútt um, að eigi hafi verið litið á Lambhúsabónda sem liornreku iiöfuðbólsins. Hvergi er jress getið, að Lievog hafi verið drykkfelldur. Fáein dæmi skulu nefnd, sem styðja þetta álit mitt á Lievog og högum hans. Fyrst í stað voru laun hans greidd úr fjárhirzlu konungs í gegnum hendur stiftamtmanns, síðar af Hafnarfjarðarverzlun samkv. ávísun hans. H. 2. júní 1788 skrifar t. d. Levetzow strengilegt bréf Muxoll kaupmanni i Hafnarfirði og átelur hann fyrir að liafa ekki greitt ávísun, sem stiftamtmaður hafði gefið úl 2. apríl um vorið til handa Lievog, fyrir launum lians á fyrsta fjórðungi ársins. Bréfið hefur líklega borið árangur, en 3. okt. um haustið ritar stiftamtmaður Lievog og tilkynnir honum, að kaupmaður hafi tjáð sér, að hann hefði aðeins 7 rd í sjóði. Ekki kveðst stiftamtmaður heldur geta greitt honunt laun hans fyrir 3. ársfjórðung, sem nú séu fallin í gjalddaga, og eigi viti hann nein úrræði í því efni. Að vísu hafi hann undir höndum nokkra peninga, sem rentukammerið eigi, en jteim sé ráðstafað og meira til, og Jarðabókarsjóður þurfi á meiri styrk að halda en hann hafi notið til þessa, ef hann eigi að standa í skilum með sitt. Um líkt leyti hefur J)ó hlaupið nokkuð á snærið hjá Lievog. H. 20. júní 1788 fyrirskipar konungur á þessa leið: I'ar sem stjörnuturninn í Vardöhus verður lagður niður, skulu áhöld jiaðan sendast, samkvænu tillögu vors elskulega pró- fessors Bugge, til Islands, og stjörnumeistari Lievog, sem aðeins fær 100 rd, en hefur getið sér góðan orðstír, skal fá til viðbótar þá 100 rd, sem stjörnumeistar- inn í Vardöhus hafði. Enn fremur skal kaupa nýtt transit-áhald í stað Rota meridiana, sem kvað vera því sem næst ónothæft. Sést af þessu, að prófessor Bugge hefur látið vel af störfum Lievogs og gert sig ánægðan með athuganabækur hans. H. 11. júlí sumarið eftir ritar stiftamtmaður Lievog og tilkynnir honum, að kanzellíið hafi skrifað sér 14. marz sl. og tilkynnt að rentukammerið hafi lofað að sjá um greiðslu á þeim 100 rd sem honum beri í árslaun, en kanzellíið muni síðan endurgreiða rentukammerinu. Ekki liafi sér þó borizt nein staðfesting á jæssu frá rentukammerinu. Á launahækkun er því ekki minnzt. Arið 1788 kom út í Kmhn. bók eftir P. de Lövenörn aðmírál: Beskivelse over den islanske Kyst og alle Havne fra Fugle-Skiœrene til Stikkelsholm i Brede- Buglen með Forklaring over deres Indseiling (72 bls. 4to með 14 uppdráttum.) Af þessari bók hefur Lievog fengið eitt eintak, en ritar stiftamtmanni 12. júlí 1788 og Jjykist Jjurfa að fá annað til viðbótar. Þessu svarar stiftamtmaður Levet- zow mjög kuldalega í bréfi, dagsett 12. ágúst s. á. Segist aðeins hafa fengið 10’ cintök handa öllu Suðuramtinu, og af Jjeim hafi eitt þegar verið sent Lievog til afnota og varðveizlu í hinum íslenzka siglingaskóla1). Geti hann )>ví ekki' réttlætt J)að að senda tvö eintök á eitthvert minnsta býlið, hvar ekkert útræði sé stundað og enginn sjómaður eigi heimili. Fái hann ekki betur séð en Lievog geti 1) Den Islandske Navigations Skole, eins og stiftamtmaður kemst að orði, hef ég hvergi annars staðar séð nefndan á þessu tímabili. — J. Ey. VEÐRIÐ --- 47'

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.