Veðrið - 01.09.1962, Side 22
til varnar ýmsum skordýraplágum. Einnig er rannsakað, við hvaða hitastig og
rakastig lirfur ýmissa skordýra byrja að láta kræla á sér og gera usla í gróðri.
Hlutverk veðurfræðingsins er svo að sjá fyrir, hvenær raka og hitastigið fer upp
fyrir hættumerkið og senda þá út aðvaranir til bænda. Þarna kemur samt fleira
til greina, því að sé stórrigning í vændum, er óþarfi og reyndar tilgangslaust
að úða, því að úðunarefnið skolast burt. Eftir J>ví sem heimamenn sögðu, hafði
Jjcssi starfsemi reynzt vel, og bændur voru ánægðir nteð hana, enda sparaði liún
J)eim mikið fé. Að þessari heimsókn lokinni var haldið til Lundúna aftur, Jtar
sem gestirnir kvöddu og ])ökkuðu fyrir sig.
Þegar einn snauður veðurfræðingur leggur upp í reisu sem hér hefur verið
lýst, J)á verður Jrað tæplega gert án J)ess að til komi aðstoð góðra manna og stofn-
ana. Mér er ])ví bæði skylt og ljúft að bera fram ])akkir mínar til British Council
og allra ])eirra aðila, er greiddu för mína, og vil ég einkum nefna Veðurstofu
fslands.
Borgþór H. Jónsson.
JÚNAS JAKOBSSON:
Hitastig yfir Keflavík
Hitalínur annars og þriðja fjórðungs þessa árs koma hér fyrir almennings
sjónir. A þessu tímabili hefur liitinn verið nokkuð undir meðaltali síðustu ára,
að undanskildum maímánuði, sem varð heldúr hlýrri en venja er. Samanburð-
ur er miðaður við hæð frostmarks frá sjó, en ekki lofthita í neinni ákveðinni
hæð.
Framan af aprílmánuði var kalt. Til landsins berst loft skammt að komið,
nema þ. 4. til 6. Þá lagði hingað heimskautaloft frá Norðaustur-Grænlandi og
gérði kuldakast með talsverðri snjókomu fyrir norðan. Rétt lyrir miðjan mán-
uðinn breytti um tíð. Allmikil lægð kom sunnan frá Nýfundnalandi og sett-
ist að nálægt Suður-Grænlandi. fafnframt myndaðist hæð yfir Bretlandseyjum
og Norðurlöndum. Suðlæg átt varð einráð og gerði hlýindi um allt land. Héld-
ust þau í þrjár vikur samfleytt, svo að gróður komst vel af stað.
Þriðja maí kólnaði aftur og heldur köld veðrátta hélzt næsta þriggja vikna
bil. Norðaustlægir vindar fluttu að landinu svalt loft frá Noregshafi. Síðustu
vikuna hlýnaði þó nokkuð með suðlægu lofti í bili. Hinn 30. kólnaði þó aftur
og frysti víða um land. í 500 m hæð yfir Keflavík varð þetta síðasta frost
vorsins. Nú í haust kont fyrsta frostið í þeirri hæð lö. september. Eftir þeim
mælikvarða hefur lengd sumarsins orðið aðeins hálf sextánda vika í ár, eða
næst stytzta sumar á átta árum.
58 --- VEÐRIÐ