Veðrið - 01.09.1962, Page 29

Veðrið - 01.09.1962, Page 29
inni, og séu þeir úlfar skærir og fagrir sem ljós, þýðir ætíð mjúka, milda og góða veðráttu. 23. Sjáist skær hringur einn í kringum sól og dragist hann allur af í einu og gerir ekkert hlið, Jjýðir jafnan góða veðráttu. 24. Merk: að maður skal grant að gæta hverjum hring um sólina, hversu litir jjeir eru, og af lit þeirra marka veðráttu, eftir því sem hér er frá sagt. 25. Ef manni sýnist sólin of rauð eftir sólhvörf á vetur, nierkir frostveður og vind. 26. Ef í kringum sól sjást oft dökkvir og grænir hringir, Jrýðir kaldan vetur með frosti og snjóum. 27. Ef að sólin sýnist í uppgöngu eður niðurgöngu grænbleik eður gulförfuð', nierkir fjúksaman og stormasaman vetur. 28. Nær sólin er hulin í uppgöngu með gulum og grænum skýjum, er víst teikn til votrar veðráttu. 29. Sjái menn á degi sólina sem einn hnött eður sem kringlótt klót í gegnum Jjykkni og grá ský, það Jjýðir ætíð eftirkomandi vota veðráttu, vind og storma. Framhald siðar. Ur ýmsum áttum Sléttubönd og krossgátur. Krossgátur eru nú ýmsum dægradvöl og allgóð nýjung í dagblöðum og skemmti- ritum. Löngu áður en Jjær komu til sögunnar, höfðu margir fslendingar — og hafa enn — dægrastyttingu af |)ví að setja saman dýrt kveðnar vísur með ýmsum bragarháttum, þótt oltast muni gripið til sléttubanda. Sjaldan er keppt eftir skáklskapargildi í slíkum kveðskap, en hann er vitanlega ágæt æfing brageyra manna og hagmælsku og ber í því efni langt af hinum vcnjulegu krossgátum. Þórður Kristleifsson menntaskólakennari á Laugarvatni dundar við sléttu- bandavísur, m. a. um veðrið og höfuðskepnurnar, sem jafnan eru tiitæk yrkisefni. I-Iér er ein mergjuð brimvísa — áfram og aftur á bak: Lyftist gnoðin, hamast hrönn, hlymur boðinn grái. Sviptist voðin, amar önn, yniur hroðinn flái. Flái hroðinn yniur, önn amar, voðin sviptist. Grái boðinn lilymur, lirönn hamast, gnoðin lyftist. Um norðanveðrið 23.-24. nóvember 1961, eru m. a. þessar vísur: Hylur skvettinn húsin há hristir, sprettinn glæðir. Þylur glettinn, skeflir skjá, skimar, grettinn hræðir. VEÐRIÐ — 65

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.