Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 20
ÁriÖ 1969.
Þetta var kaldasta árið, síðan liitaathuganir þessar hófust á árinu 1954. Næst
kaldast var ;irið 1966. Er eftirtektarvert, að bæði árin koma í kjölfar mikilla
hafísára, og það kaldara, 1969, er einnig hafísár.
I eins kílómetra hæð voru lilutfallslega köldustu mánuðirnir nóvember, sem
var 3.7 stigum kaldari en meðaltalið frá 1954—1963, september 3.0 stigum
kaldari, febrúar 2.1 stigi og júlí 2.0 stigum kaldari. Um hálfri gráðu ofan við
meðallag voru þó maí, júní og desember, og ágústhitinn var 0.9 stigum hærri
en í meðallagi. Lokaniðurstaðan varð sú, að einkennishiti ársins (meðaltal allra
meðaltala í neðstu tveim kílómetrunum) var aðeins — 1.55 stig, sem er 1.14 stig-
um kaldara en í meðallagi.
Meðalhæð frostmarks lá í aðeins 665 metra hæð, en það er 235 metrum lægra
en í meðallagi, og er það í samræmi við hinn lága meðalhita ársns. Árið 1966
var meðalhæð frostmarks í 750 metra hæð.
Hitasveiflan í 1000 metra liæð nam 11.7 stigum, sem er aðeins meira en í
meðallagi. Var hlýjast í ágúst í Jreirri liæð, 5.1 stig, en kaldast í l'ebrúar, 6.6
stiga frost.
Hlákur voru með alminnsta móti á árinu, eins og vænta má, eða álíka og árið
1963, en þá voru þær óvenju litlar.
Hlákur árið 1969. — Gráðudagar.
J F M A M J J Á S O N D
Við jörð .... 45 28 80 95 206 280 307 338 187 158 38 51
500 m 33 12 42 44 109 182 176 234 93 79 14 27
1000 m 8 1 7 16 42 104 90 158 34 18 11 8
1500 m 0 0 0 7 13 48 36 92 14 1 18 4
2000 m — — — 1 4 16 17 38 5 — 13 1
°C J F M A M J J Á s O N D
20 — VEÐRIÐ