Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 23

Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 23
Desember. Vindátt var mjög breytileg. Þó voru áttirnar í kring nm austur og suðvestur algengastar. Fremur var liægviðrasamt og snjólétt. Veðráttan 1 desember var í heildina hagstæð til lands og sjávar. Snjórinn frá í mánuðinum á undan hjaðnaði seint og hljóp víða í svell. Hagar voru jní almennt lélegir, sérstaklega framan af. í desenibcrbyrjun var jakahrafl á sigl- ingaleiðinni á Húnaflóa og út af Vestfjörðum. Skip urðu fyrir nokkrum töfum 6.—12., en síðan ekki. Janúar. Strax upp úr áramótum brá til ákveðinnar norðan áttar nteð vax- andi frosti. Náði frostið hámarki 8. til 9. og komst þá víðast í 15 til 20 stig á norðan- og austanverðu landinu. Vindur var frernur hægur og éljaveður nyrðra til að byrja með, en í lok fyrstu vikunnar var orðið hvasst og komið hríðarveður á austanverðu Norðurlandi. Áttin færðist nær austrinu, dró úr frosti, en hvessti heldur dagana 9. og 10. Var jjá daga talsverð snjókoma um allt norðan- og austanvert landið. Aðfaranótt 10. týndist 100 tonna bátur, Sæfari, í norðaustan stormi út af Vestfjörðum. Bar leit að áhöfninni, 6 mönnum, engan árangur næstu daga, enda áfram versta veður. Dagana 13. til 19. var vindur á milli A og SA og milt veður. Á norðanverðu landinu var úrkomulítið, en nokkuð vætusamt á Suðurlandi og [)ó sérstaklega Austfjörðum. Aðfaranótt 20. janúar kom djúp lægð á miklum liraða sunnan að, en sveigði norðvestur um Faxaflóa. Var J)á stórrigning á Suðausturlandi og Austfjörðum, en hiti komst í 10 stig á Siglunesi og í Vopnafirði. Næstu nótt kom enn djúp lægð úr suðri og fór sú þvert yfir landið tii norðvesturs. Var aftur stórrigning og talsverðar vegaskemmdir suðaustan til á landinu og hitinn komst enn hærra fyrir norðan. Eftir þetta var fremur hæglát A og SA átt í viku og öðru hverju talsverð rigning á Suðurlandi og Austfjörðum. Síðasta dag janúar kom lægð sunnan að, en hægði á sér suður af landinu, þá orðin mjög djúp. Fylgdi vaxandi NA átt, og tók að snjóa nyrðra um kvöldið. Þrátt fvrir frostin lyrsta þriðjung mánaðarins varð góðviðra- og hlýindakaflinn eftir Jtað jtyngri á metunum. Hitinn í janúar var vel í meðallagi. í heild var janúar talinn fremur hagstæður sauðfjárbændum, afli og gæl'tir í meðallagi. Aðeins einu sinni, þ. 12., fréttist af hafís á siglingaleið út af Straumnesi. Febrúar var kaldur, víðast um 2 gráðum undir meðallagi. Frostlausir dagar voru mjiig fáir og sums staðar nyrðra allt niður í 1 dag. Snjór var ekki talinn mikill á Norðurlandi, en sunnan lands voru snjóalög miklu meiri en menn eiga að venjast. Hagar voru víðast lélegir eða engir, ýmist vegna snjóa eða áfreða. í mánaðarbyrjun snjóaði mikið nyrðra nteð hvassri N átt. Þann 6. olli kröpp lægð, sem myndaðist út af Vestfjörðum, vestan stormi víða um land. Urðu þá einhver mestu flóð og sjór í manna minnum á Vesturlandi. Fór j)ar saman lágur loftþrýstingur, stórstreymi og feiki rnikil vestan átt á öllu hafinu fyrir vestan land allt til Grænlands. í Jiessu veðri urðu stórskemmdir í Angmagsalik. veðrið — 23

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.