Veðrið - 01.04.1970, Qupperneq 29

Veðrið - 01.04.1970, Qupperneq 29
1745 Kuld;i og ísa vetur. Um miðjan vetur („undir jólin") lagði lagnaðarís fram að hafísnum og íraus saman viS liann. Allur Eyjafjiirður var farinn með klyfjaða hesta allt að Látrum og lit í Ólafsfjörð. Fyrir Hjallasandi lagði is á þorra, svo ekki varð róið í nokkra daga, og svo aftur í fyrstu viku góu. 1751 Mesti frostavetur eftir jói út þorra, harðast á Norðausturlandi, og mann- íellir víða þar. Hafíss er ekki getið. „ísalög voru þá mikil á Breiðafirði, var riðið og runnið á sjóarís um allar eyjar fyrir Helgafellssveit, Skógar- strönd, Skarðsstriind og í Breiðafjarðareyjar undan Reykjanesi, einnig um Breiðasund milli Yxneyjar og Hrappseyjar og jafnvel yfir röstina milli Rifgerðinga og Purkeyjar. Skip molbrotnaði í ís á þorra nálægt Brimnesi, en mennirnir komust með nauðung í land. Vorið var lognsamt og kom sjaldan regn. Meðalfiskiár kringum Jökul og annars staðar." Athyglisvert er, að þrátt fyrir harðindin cr sagt gott grassumar nyrðra, en lakara syðra og vestra. Geta má sér til, að vegna tíðrar norðanáttar liali snjóalög verið næg norðanlands til að vernda gróðurinn. 1764 „Sunnudag seinastan í þorra gjörði mesta norðanstórviðri með kafaldi og grimdarfrosti, þá urðu menn úti. Sami kuldi, frost og liörkur hjeldust fram að sumarmálum. Hvammsfjörð lagði allan út undir Strauma, einnig Breiðasund, og var gengið fram um eyjar af Skógarströnd, í Yxney og Brokey og einnig í Hrappsey og Purkey. Áhlaupastórviðri með kafaldi á norðan tvisvar eða þrisvar um seinni vertíð." Hafíss er ekki getið. í Jietta skipti varð graslítið, enda virðist hafa verið umhleypingasamt, og J)ví vafasamt, hvort snjóalög hafa veitt gróðri næga vernd. Veðurvísur Hreggviðs á Kaldrana Hreggviður var Húnvetningur að ætt, f. 1765 í Svartárdal, en óvíst á hvaða bæ. Kallaður var hann Eiríksson. Ólst upp á sveitarframfæri og flakki með móð- ur sinni. Þegar honum óx aldur og Jjroski, gerðist hann gildur maður og vel vaxinn, dökkur á brún og brá, fölleitur og heldur fríður í andliti, kvæðamaður góður, vel skrifandi og hagorður. Hann bjó um skeið á Kaldrana, átti margt barna og búnaðist lítt. Síðar hafðist hann við í Rifi og loks í Kolkubúð hjá Höfnum á Skaga. Þar andaðist hann 8. febrúar 1834. VEÐRIÐ — 29

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.