Veðrið - 01.04.1972, Side 3
VEÐRIÐ
TÍMARIT HANDA ALÞÝÐU UM VEÐURFRÆÐI
KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 150,00
1. HEFTl 1972 17. ÁRGANGUR
RITNEFND: JONAS JAKOBSSON
FLOSI H. SIGURÐSSON
PÁLL BERGÞÓRSSON
MARKÚS Á. EINARSSON
AFGREIÐSLUSTJÓRI:
GEIR ÓLAFSSON
DRÁPUHLÍÐ 27 - SÍMI 15131
Úr
ýmsum
áttum
Höfundar.
Venja hefur verið að geta i þessu inngangsspjalli nýrra höfunda og þátttakenda
í útgáfu þessa tímarits. Hér ritar nú Hreinn Hjartarson veðurfræðingur grein í
fyrsta sinni og fjallar um ljósefnafræði. Hreinn er fæddur 9. júlí 1946 á Undra-
landi í Iíollafirði í Strandasýslu, en foreldrar lians eru Hjörtur Sigurðsson lager-
maður á Akureyri, áður bóndi á Undralandi, og kona hans Sigríður Pálsdóttir.
Stúdentspróf tók Hreinn á Akureyri vorið 1965, en hóf að því loknu nám í veður-
fræði og skyldunt greinum við Háskólann í Osló. Lauk hann embættisprófi í
veðurfræði haustið 1971. Hreinn hefur á yfirstandandi ári starfað sem veður-
fræðingur í áhaldadeild Veðurstofunnar og einkum unnið að búveðurfræðilegum
athugunum og eftirliti með veðurstöðvum. Hann mun þó ekki ílendast á
Veðurstofunni að sinni, því að á næsta ári hyggur hann á framhaldsnám í Osló.
Skortur d veðurfræðingim.
Alvarlegur skortur er nú að verða á íslenzkum veðurfræðingum eins og sjá má
á því, að fastar stöður veðurlræðinga við Veðurstofuna hafa um árabil verið 16
talsins, en nú eru þrjár þeirra óskipaðar og allar horfur á, að þær verði fjórar
á fyrri hluta næsta árs. Er þetta að sjálfsögðu mjög bagalegt, ekki sízt með tilliti
til þess, að verkefni fara sívaxandi og þörf væri á að taka upp ýmsa rannsókna-
starfsemi.
Þess verður þó að geta í þessu sambandi, að til eru íslenzkir veðurfræðingar,
sem ekki starfa nú lijá Veðurstofunni og leyst gætu úr þessum vanda, ef þeir
fengjust þar til starfa. Mjög vafasamt verður hins vegar að telja, að svo verði
að marki á næstunni.
Alvara þessa máls kemur bezt í ljós, þegar annars vegar er haft í huga, hve
fáir nýir veðurfræðingar hafa bætzt í hópinn síðustu 10—12 árin og hve langt
námið er, og hins vegar, að meiri hluti íslenzkra veðurfræðinga er nú kominn unt
eða yfir rniðjan starfsaldur. Er sýnilegt að mjög lítið má út af bera svo að ekki
komi til hreinna vandræða.
VEÐRIÐ -- 3