Veðrið - 01.04.1972, Page 28
KNÚTUR KNUDSEN:
Haustið og veturinn 1971 — 1972
Okótber skiptist greinilega í þrjá hlýja og þrjá kalda kafla. Voru sveiflur
í hitastigi og veðri því miklar. Fyrsta vikan var hægviðrasöm, en fremur ókyrrt
upp úr því. Veðráttan var Jtó talin fremur liagstæð bændunt og skaðlaus. A
norðaustanverðu landinu fennti jx'i sums staðar fé í annarri vikunni í október.
Sjór gekk mjög á land 5. og 6. í Grindavík og Stokkseyri. Þá var sunnan átt
og stórstreymi og hlauzt af nokkuð tjón.
Nóvember. Fyrri lilutann var vindátt mjög óstöðug. Hver lægðin elti aðra
austur yfir land og ýmist frysti með skammvinnri norðan átt eða hlýnaði vel með
sunnan vindi. Fáir dagar voru kyrrir og oft livasst. Þ. 10 var hlýtt í veðri, t. d.
20 st. hiti á Dalatanga, en daginn eftir var orðið alhvítt liér í Reykjavík. Lægð
fór austur yfir landið Ji. 15 og í kjölfar hennar norðan stormur með 10 st. frosti.
Var kalt áfram næstu daga. Frá 19. til 25. var vestlæg átt og hlýnaði smám saman.
Hæð var suður undan og oft súldaði á Vesturlandi. Þ. 24. komst hitinn á Austfjörð-
um yfir 15 stig, en á Kvískerjum í Öræfum komst hitinn í 24 stig. Var Jietta
hnúkajreyr, vestan stormur, sem steyptist ofan af jökli. Norðaustan stormur skall
á }). 26. með hríð á Vestfjörðum og Norðurlandi, en frosti um allt land. Hélst
Jjessi átt út mánuðinn með lítilli úrkomu og frosti. Mánuðurinn í heild var kald-
ur en fremur snjóléttur. Sunnan lands var tíðin talin heldur hagstæð bændum, en
lélegri nyrðra og Jió ekki ill.
Desember. Veðrið í desember var lengst af óstöðugt og oft var hvasst. Fram
yfir jól var heldur svalt, en þá voru austan og vestan áttir algengastar. Þó
voru smátímabil á milli með norðlægri átt. Olt var éljagangur, en Jró að yfir-
leitt snjóaði lítið í senn, safnast Jjegar saman kemur. Varð allt landið snævi
Jjakið þegar leið á mánuðinn. Surns staðar á Vestfjörðum og við Breiðafjörð
var getið um meiri jafnfallinn snjó en um langt árabil, jafnvel tugi. Tók fyrir
haga og samgöngur urðu erfiðar. Þ. 27. byrjaði að hlýna. Þá var komin rnikil
hæð fyrir suðaustan land, en lægðir fóru nú norðaustur um vestanvert Græn-
landshaf. Stóðu hlýindin út árið. Jafnframt voru rigningar á Suður- og Vestur-
landi og urðu þar sums staðar vegaskemmdir af vatnavöxtum. Mátti allur snjór
heita horfinn úr byggðum fyrir áramót. Tíð í desember var talin hcldur slæm
á Vesturlandi og vestanverðu Norðurlandi, en austan og sunnan lands víða í með-
allagi.
Janúar. Hlýindakaflinn, sem hófst strax upp úr jólum stóð óslitið til 16. jan-
úar. Var áttin oftast á milli austurs og suðurs, alautt í byggð og fjallvegir færir.
Þann 17. færðust kuldaskil hægt austur yfir landið og fylgdu jieim þrumuveður
28 — VEÐRIÐ