Fréttablaðið - 04.12.2009, Side 52
18 föstudagur 4. desember
tíðin
✽ list og hönnun
„Við vildum koma með viðbót við það sem aðrar
hönnunarverslanir hafa verið að bjóða,“ segir Anna
Margrét Sigurðardóttir, ein fjögurra hönnuða sem
standa að sölusýn-
i n g u n n i B r u n n i ,
sem nú s tendur
yfir í Galleríi Sæv-
ars Karls. „Brunnur-
inn er á milli þess að
vera listasýning og
búð. Í hvert sinn sem
hann dúkkar upp
verður eitthvað nýtt
að finna í honum.
Hann fer í ferðalag
og getur dúkkað upp
hvar og hvenær sem
er. Líklega verðum
við næst á Akureyri
og á Seyðis firði en það er aldrei að vita nema að við
komum við á fleiri stöðum á leiðinni.“
Auk Önnu standa að Brunni þær
Ríkey Kristjánsdóttir, Adda Rún
og Sólbjörg Hlöðversdóttir. Með
í Brunninum í þetta sinn eru svo
þær Bryndís Bolladóttir og Ólöf Erla
Einars dóttir.
Listakonurnar völdu sér Brunns-
nafnið þar sem það minnir á
uppspretturnar sem fólk þrífst
ekki án. Sama gildir, að þeirra mati,
um uppsprettu sköpunar. Þær vilja
virkja uppspretturnar sem er að
finna úti um allt land.
Brunnurinn er opinn á venjulegum afgreiðslutíma
verslunar Sævars Karls. Á laugardaginn á milli 4 og
5 munu rithöfundarnir Kristín Marja Baldursdóttir,
Þórarinn Eldjárn og Einar Már lesa upp úr verkum
sínum. Alla laugardaga fram að jólum verður
upplestur á staðnum. Bækur rithöfundanna verða þar
til sölu og rennur allur ágóði af sölu þeirra til Barna-
heilla, til styrktar íslenskum börnum. - hhs
LIFANDI SÖLUSÝNING
Í SÆVARI KARLI
Í miðjum Brunninum Bryndís Bolla-
dóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir
eru meðal hönnuðanna sem sýna í
Brunninum.
p-
Hringar úr hnöppum Efniviður Sólbjargar Hlöðversdóttur þrykkjara er gamlar tölur.
Þær nýtir hún á ýmsa vegu og býr meðal annars til hringa, nælur og ermahnappa.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Strokkur Eftir Ríkeyju Kristjánsdóttur.
Hver flík er handprjónuð og skreytingarn-
ar vinnur Ríkey einnig í höndunum.
Krummar Adda Rúna Valdimarsdóttir, list- og verkgreinafræðingur, vinnur myndir af
krumma. Á sölusýningunni er hún jafnframt með fleiri tegundir af myndverkum.
Gamalt og nýtt Gullmoli á steyptum
fæti eftir Önnu Margréti Sigurðardóttur.
Snæfell Diskamottur úr áli og steypt-
ur hitaplatti í laginu eins og Snæfells-
jökull. Hugmyndin er að jökullinn sé
að hverfa en við fáum álið í staðinn.
Axlaslá Ríkey Kristjánsdóttir, búninga- og textílhönnuður, vinnur axlaslár úr hekluðum
dúkum og öðru efni sem henni þykir fallegt. Hún gerir einnig ýmiss konar háls- og
herðaskraut sem er til sölu og sýnis í Brunninum.
ILMANDI HEIMILI Fátt jafn einfalt gefur jafnmikla jólastemningu og
mandarína skreytt með negulnöglum. Fallegt jólaskraut sem ilmar dásamlega.
1-2-3 Bryndís
Bolladóttir textíl-
hönnuður vinnur
þessar fallegu
mublur, sem heita
1, 2 og 3, úr ónýtt-
um efnisafgöngum.
Hnöttur Anna Margrét Sigurðar-
dóttir vinnur með þá hugmynd
að steypa gömlum hlutum í nýtt.
Lampinn sjálfur er nýr og
steyptur en kúpullinn gamall.