Vikan


Vikan - 18.05.1961, Blaðsíða 25

Vikan - 18.05.1961, Blaðsíða 25
$umnrfntAtí?ItA» f96f * tjcfyfiulnöh SS0L A {& Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Mikið verður um að vera þessa viku. Ef að þér gefast tækifæri til að hvíla þig inn á milli, skaltu nota þau, því þú þarft á því að halda. Vinur eða ættingi erlendis lætur heyra frá sér nú í fyrsta skipti á mörgum mánuðum. Það kemur þér í gott skap. Það litur út fyrir, að nú getirðu keypt nokkuð, sem þú hefur lengi óskað þér. Happavika fyrir þá sem fæddir eru 15. apríl. Nautsmerkið (21. apr.—21. mai): Þú færð bréf, sem þvi miður inniheldur ekki alltof góðar fréttir. Þú hefur einnig ástæðu til að hafa miklar áhyggjur af manneskju, sem þér er kær. En í lok vikunnar birtir til og þú getur farið í ferðina, sem þú varðst að fresta. Góðir tímar eru framundan. Happavika fyrir þá, sem fæddir eru 3. maí. Tviburamerkið (22. maí—21. júní): Þessi vika verð- ur dálítið þreytandi og viturlegt væri að blanda sér ekki í annarra manna einkamál. Gætið ykkar vel því orð og athafnir geta oft komið manni illilega i koll. Óvænt gjöf lýsir upp leiðinlegan dag'seinni hluta vikunnar. Og afbrýðisemin sem þú finnur stundum fyrir, er það ekki bara sært stolt. Happavika fyrir þá, sem fæddir eru 27. mai. Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Alveg óvænt, Þá mætirðu dálitlum andblæstri fyrst í vikunni, en það lagast fljótlega aftur og allt snýst á bet.ri veg. Leynd- ______ armál sem þú hefur lengi þagað yfir hefur greini- lega borizt út, til að sjá það þarf ekki annað en að lita á staðreyndirnar. Þú munt stofna til góðs og varaniegs kunningsskapar í vikunni. Heillavika fyrir þá, sem fæddir eru 14. júli. Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú ert mjög óáreið- anlegur og annað fólk á oft mjög erfitt með að skilja framkomu þína. Manneskju sem þykir mjög vænt um þig mundi meta Það mjög mikils, ef þú gæfir þér tíma til að tala svolítið við hana. Satt að segja hefurðu enga ástæðu til að koma svona kuldalega fram. Þú mátt búast við góðum árangri af máli, sem þú hefur mikið með að gera. Heillavika fyrir þá, sem fæddir eru 7. ágúst. Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Áríðandi er að þú reynir þessa viku að komast hjá fjárhagslegum erfiðleikum. Bezt er að spara tima og krafta fyrir vinnuna. Nokkrir vinir þínir eru ósparir á að gefa Þér góð ráð, en réttast væri af þér að fyigja eigin hyggjuviti, og taka hlutunum frekar rólega. Vertu nærgæt- in(n) við maka þinn, það borgar sig, enda engin ástæða til annars. Heillavika fyrir þá, sem fæddir eru 31. ágúst. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Persónuleiki þinn hefur mikil áhrif á hitt kynið. Þú getur átt miklum vinsældum að fagna, en þrátt fyrir það máttu ekki tapa lítillæti þínu gagnvart öðrum, þá gæti farið illa. Nokkrir vinir þínir eru óánægðir, þvi að þú hefur vanrækt þá, úr því þarf að bæta fljótlega. Taktu smá- hluti ekki nærri þér, það svarar aldrei kostnaði. Heillavika fyrir þá sem fæddir eru 13. október. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Það er alltaf eitt- hvað sem er enn meira áríðandi, en það sem þarf að gera, þannig hugsarðu, en nú er kominn tími til að gera það sem minna er áríðandi. Annað fólk er farið að tala um það, hvað þú hugsir eiginlega og satt að segja talar það ekki alls kostar vel um þig. Haltu það út, þó að alit sé ömurlegt og leiðinlegt, bráðum skín sólin aftur. BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þó að þú sért dá~ lítið langt niðri, skaltu reyna að láta ekki bera á þvi. Þú sérð það seinna meir, að með því kemstu betur áfram og þér líður betur. Stutt ferð í annað umhverfi hjálpar þér til að komast i jafnvægi aftur. Sjúklingar undir þessu merki munu hljóta góðan bata i vik- unni. Heillavika fyrir þá, sem fæddir eru 2. des. Geitarmerlciö (22. des.—20. jan.): Það hefur sletzt dálítið upp á vinskapinn hjá þér og einstaka vinum þínum. Bíddu ekki eftir því að þeir komi til þín. Þegar það er annars vegar, að bjarga góðum vin- skap, skiptir engu máli hver kemur til hvors. Þú eyðir of miklum peningum. Láttu ekki hégómagirni þína ráða, það getur farið illa. Heillavika fyrir þá, sem fæddir eru 10. janúar. Vatnsberamerkið (21. jan.—19. feb.): Þetta hefur verið mjög órólegur og spennandi timi, sem nú endar í byrjun þessarar viku. Þú kynnist manneskju, sem gjarnan vill verða vinur þinn, vertu ekki of fráhrind- andi. Trúlofanir og giftingar eru ekki útilokaðar i vikunni. Ferð til heitari Janda fer kannski að sjá dagsins ljós. Heillavika fyrir þá sem fæddir eru fyrsta febrúar. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Það fólk sem er trúlofað eða gift má eiga von á einhverjum óþæg- indum seinni hluta vikunnar. Gamall vinnufélagi, sem þar að auki er gamall vinur reynir að gefa þér nokkur góð ráð i vandamáli. Hlustaðu á hann og reyndu að stilla skapið. Það er alls ekki víst að þessi ráð séu svo yitlaus. Happavika fyrir Þá, sem fæddir eru 4. marz.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.