Vikan


Vikan - 18.05.1961, Blaðsíða 8

Vikan - 18.05.1961, Blaðsíða 8
frnocoise dEouboooe Clo yppti öxlum og mælti háðslega: „Mér finnst Þetta ofur skiljanlegt. Við teljum okkur hafa krufið öll mál til mergjar. Lýsum yfir andstöðu okkar við allt þjóðskipulag, krefjumst fullkomins frelsis og ógildingu allra lögmála. Samt sem áður getum við ekki komið saman í veitingastofu nokkrum sinnum án þess að við tökum í gildi ný lögmál, að minnsta kosti eins heimskuleg og þau gömlu. Ég ætla að segja ykkur eitt. Ég kem stundum i vændiskvennakaffihús í Vercin. Þegar ég hlusta á samtal þeirra, gæti ég hæglega imyndað mér að þar væru gamlar, teprulegar og hleypidómafullar piparjómfrúr að ræðast við í kaffiboði á sunnudegi. Þið eruð engu betri, krakkar! Mér drepleiðist að hlusta á þetta nöld- ur ykar!“ Nú þótti Alain meir en nóg komið. Mic hafði einangrað sig; lá fram á borðið með kreppta hnúa. Hann sló flötum lófa á marmaraplötuna. „Látið okkur Mic ein um stund,“ mælti hann og rödd hans var skipandi. „Ég þarf að ræða við hana." Án þess að hreyfa mótmælum reis klíkan á fætur og færði sig að borðum fjær í salnum. Mic varð litið upp. Enn einu sinni sannaði Alain það svo ekki varð um villst, að það var hann, sem hafði töglin og hagldirnar í klíkunni. Það var illkvittni i svip hans, þegar hann virti hana fyrir sér; athugaði vigstöðuna áður en hann gekk til atlögu. „Þú hefur á réttu að standa," sagði hann. „Ég verð að játa, að mér hefur skjátl- ast hrapalega. Mér gat ekki til hugar komið, að þessi Bob þinn væri siíkt úrþvætti!" „Bob minn?“ Mic yppti öxlum. Falskur eins og Júdas mælti hann enn: „Tek- urðu þér þetta mjög nærri?“ Hún svaraði ekki. „Gerirðu það?“ endurtók hann. Mic herti sig upp. „Ég!“ andmælti hún. „Að ég taki mér þetta nærri? Ertu genginn af göfl- unum eða hvað? Ég er bara reið, vegna þess að nú fæ ég ekki bílinn. Það er allt og sumt!“ Alain færði sig enn nær henni og mælti lágt. „Sumar stúlkur eru þannig gerðar, að þær verða ástfangnar. Geta ekki að þvi gert. Enginn þarf því að blygðast sín fyrir það.“ „Ég er að minnsta kosti ekki ein af þeim,“ full- yrti Mic. „Hvað heldurSu að ég sé eiginlega? Ég hef keypt frelsi mitt Það dýru verði, að ég ætla mér ekki að glata þvi.“ „Heyrðu mig, Mic!“ kallaði Nadina allt I einu yfir til þeirra. Mic brá. „Já!“ svaraði hún. Nadina hló við, eins og hún ætlaði að fara að segja þeim skemmtilega skrýtlu. Hin horfðu á hana og brostu. „Veiztu það, að Alain langar til að fá að sofa hjá þér? Hann bað mig um að hafa milligöngu, ef svo færi að hann sjálfan brysti kjark .... Ég tala því í umboði hans.“ Mic gretti sig. „Þakka þér fyrir!“ sagði hún. Svo sneri hún sér að Alain. „Hvað gengur eigin- lega að þér?“ spurði hún. Hann varð kindarlegur á svipinn. „Það hlýtur að vera vorið, sem hefur þessi áhrif á mig." Mic virti hann fyrir sér, svo furðu lostin að henni var runnin öll reiði. Athugaði svip hans gaumgæfilega eins og hún vildi komast að raun um hvort honum gæti verið alvara. „Ertu að gera gys að mér, eða hvað?“ spurði hún. Hin hlóu öll. Jafnvel Clo brosti og virtist nú hafa gleymt símanum algerlega. „Ef þú hefur ekkert á móti þvi sjálf, þá hefur Bob lýst yfir því, að hann hafi ekkert við það að athuga-----------þú heyrðir það, Nadina?" „Hárrétt!" sagði Nadina. „Ég er til vitnis um það.“ „Þú ættir því ekki að hafa neitt samvizkubit af því,“ sagði Guy. „Sizt af öllu, eins og nú er komið,“ bætti Muriel við. Mic fölnaði. Fyrir hugskotssjónum sinum sá hún hvar Bob stóð undir auglýsingaspjaldinu með mynd Valentinos og heyrði hann hrópa: „Farðu til hans! Farðu og legstu með honurn!" „Jæja, hvað segirðu við þessu?“ spurði Alain. „En ég ann þér ekki hið minnsta!'1 sagði hún lágt og roðnaði af blygðun. Alain spennti upp brúnirnar. „Segðu þetta aft- ur!“ mælti hann. „Æ, sleppum þvi!“ „Þú hefur látið þér hin einkennilegustu orð um munn fara. Hvað hefur eiginlega komið yfir þig, telpa! Þú talar eins og þú værir ein af eldri kynslóðinni. Eins og þú trúir því í rauninni að eitthvað það sé til, sem kallast ást og samvizka!" Mic reyndi að hlæja, en það mistókzt algerlega. Hún kveikti sér i sígarettu til þess að fá nokkurn umhugsunarfrest. „Ég meina aðeins það, að þú hefur ekki nein slík áhrif á mig!“ „Það fellur mér betur að heyra," svaraði Alain rólega. Hann greip um úlnlið henni sinni stóru, hnúamiklu hendi, og hún lét sér það lynda. „Hefurðu ekki sofið hjá mörgum, sem Þér voru ekki svo sérstaklega geðfelldir?" „Jú, vitanlega. Mörgum!" svaraði hún og sogaði reykinn að sér. „Eh þá hef ég alltaf verið drukk- in.“ ______ „Hún hefur ekki neina girnd til þín, það er flís- in, sem við rís!“ æpti Lou, og öll klíkan veinaði af hlátri. „Það er ekki það!" sagði Alain og sneri sér að Þeim. „Hún vill ekki bregðast minningunni-------- Hann sneri sér enn að Mic, sem yppti öxlum í sýndarkæruleysi. „Drukkin, sagðirðu!" mælti hann. „Pétur skyldi vínbirgðirnar eftir í herberginu sínu, skilurðu?" „Þú kannt svör við öllu," mælti Mic og rödd in titraði lítið eitt. Hún kramdi hálfreykta sigarettuna í ösku- skálinni. „Það gerbreytir öllu." Skyndilega virti hún klíkusystkinin fyrir sér, sem biðu átekta, sum glottandi, önnur með al- vörusvip. Hún var föl, en ákveðin. Svo greip hún handtösku sína og reis á fætur. „Alain starði á hana. lllkvittnislegt sigurbros lék um varir hans. „Ertu að fara strax?" spurði hann. Hún brosti, en bros hennar var hörkulegt og storkandi. Og hún svaraði svo háum rómi, að allir við- staddir gætu heyrt: „Já — með þér!" Og svo bætti hún við, háðslega: „Er það kannski eitthvað meira, sem þú krefst?" Alain, sem enn þorði varla að trúa sínum eigin eyrum, reis seinlega á fætur og án þess að brosa. Hann varð hörkulegur á svipinn, eins og Mic. Hann leit í kringum sig, og nú óttaðist hann það allt í einu, að hann mundi sitja ofan yið það, þeg- ar hún tók hann þannig á orðinu. Hann bjóst við því, að þau rækju allt í einu upp hlátur. Mic horfði enn á hann og hörkulegt bros lék enn um varir henni. „Hvað?" tuldraði hann. „Svona, formálalaust?" „Hefurðu einhverja aðra uppástungu? Kannski við förum hringferð með strætisvagninum áður?“ Hún gerði sér upp kæruleysi. „Taugar mínar eru yfirspenntar; kannski hef ég bara gott af þessu." Og enn bætti hún við. „Eða kannski þú sért ekki vel upplagður? Þú hefur kannski höfuð- verk? Þú hugsar sennilega helzt til mikið?" „Ég er til,“ mælti Alain. „Bravo, Mic!“ hrópaði öll klíkan einum rómi. „Þú ert ekki feimin við það!" „Það eru töggur i henni!" „Nema hvað?" sagði sú margreynda Muriel. „Ef verst lætur, þá er þó aldrei um annað en stundar- óþægindi að ræða!" Clo sat og kyssti Pierre og tók engan þátt í samtalinu. Alain hafði nú náð sér fyllilega á strik aftur; hann opnaði hurðina hæversklega fyrir Mic og þau gengu út. Um leið hringdi síminn. Þjónninn svaraði, kall- aði síðan: „Clothilde de Vaudrémont!" Clo var þegar risin á fætur og gekk hratt að símanum. „Er það Nicole?" spurði hún. Þau hin ræddust við í hálfum hljóðum á meðan hún talaði í símann. „Hvað skyldi Bob nú segja, þegar-------skyldi hann hafa skap til að verða ærlega reiður, þetta úrþvætti?" Clo hengdi talnemann á. Hún var náföl. „Þá er því lokið, krakkar! Vesalings Francoise!" Hún lét hallast fram á skenkiborðið. 1 sömu svifum gekk Bob inn í veitingasalinn. FIMMTÁNDI KAFLI. Hann yppti öxlum. Brosti glaðlega. „Halló!" Klíkan svaraði ekki kveðju hans. Pierre gekk að skenkiborðinu til Clo. Bað um romm. „Það hressir þig, telpa mín!“ sagði hann við Clo, sem tiraði eins og lauf í vindi. Bob varð undrandi. Andrúsloftið var annarlegt, viðtökurnar allar aðrar, en hann átti að venjast. Hann gekk til Nadinu. „Hefurðu séð Mic?“ Nadina leit í aðra átt án þess að svara. Muriel lét sem hún sæi hann ekki. Bob sneri sér að Guy. „Hefur þú séð hana?" Guy sneri sér að Lou. „Við skulum koma!" sagði hann þannig að ekki varð misskilið. „Ég er orðinn leiður á þessum stað!" Lou leit um öxl á Bob, um leið og hurðin lok- aðist á eftir þeim. „Já! Maður fær aldrei að vera í friði fyrir úrþvættum!" „Hvað gengur eiginlega að ykkur?" spurði Bob og sneri sér að Clo. „Hafðu engar áhyggjur af þvi!“ svaraði Clo. „Þetta er þeirra félagsandi!" Bob veitti þvi nú allt í einu athygli hvernig hún leit út. „Hvað amar að þér sjálfri?" spurði hann og gleymdi Mic eitt andartak. „Leiðindamál," svaraði Pierre. „Þú manst eftir stúlkunni, sem var með Gérard. Jæja; hún var að enda við að gleypa fæðingarvottorð, og það stóð í henni. Nicole var að tilkynna Clo þetta i símanum, og Það fær talsvert á hana,^ þó við getum vitanlega ekki neitt að því gert." „Francoise — hefur hún orðið fyrir einhverju slysi?" spurði Bob. B VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.