Vikan - 18.05.1961, Blaðsíða 23
GLEYMD TÁKN.
Framhald af bls. 13.
bitinn, ])ó að hann haldi á honum
með bióðugum höndum og nagi
liann. En siðmenntuðum manni
býður við slíku borðhaldi og bragð-
ast fæðan illa.
Siðfágun í mataræði er ekki
gömul hér á landi. En þegar hún
tók að breiðast út meðal almenn-
ings um og eftir aldamótin, var
börnum fyrst og fremst kennt, að
sóðalegar aðfarir við mat hneyksl-
uðu og særðu aðra menn. Jafnaldr-
ar mínir minnast þess, hve mikil
áherzla var lögð á, að við tyggðum
með lokuðum vörum. Okkur var
sagt, að það væri móðgun við aðra
að vera sjálfur dóni.
Og sannarlega vekur framkoma
annarra ólíkar tilfinningar hjá
okkur. Hlæjandi munnur, skreyttur
hreinum, hvítum tönnum, vekur
okkur þægindakennd. En opinn
munnur, fullur af hálftuggnum mat,
vekur viðbjóð, jafnvel þó að engir
óhreinir fingur grufli i honum.
Þetta þykir kannske ekki mikil sið-
fágun i máli, en er samt raunsönn
lýsing á því, sem við höfum daglega
fyrir augum hjá fjölda barna og
unglinga, sem jórtra tuggigúm.
Þeir, sem nota strætisvagna, sjá nóg
af þessu. Börn gubba fram
úr sér tuggunni í stórri l)löðru, sem
minnir á, hvernig maginn spýtist
upp úr djúpfiski, sem er dreginn
hratt. Önnur draga út úr sér tugg-
una, teygja hana í langa þræði,
tæta hana í agnir, smyrja henni um
tanngarðana. Fólk, sem þolir illa
sóðaskap, fær stillingu sina full-
reynda, ef það situr andspænis
þessari sérkennilegu íþrótt.
Þessi sóðaskapur þarf alls ekki
að fylgja tyggigúmi. Með það má
fara hreinlega, eins og aðrar
nautnavörur. Hann sprettur miklu
fremur af virðingarskorti fyrir
öðrum, af mannfyrirlitningu. Hún
er löstur á hverjum manni, en
verður menningarháski, ef hún
breiðist út meðal uppvaxandi kyn-
slóðar. Hún einkennir framkomu
þess fólks, sem elst upp við að
heimta allt fyrir sig, án þess að
gefa gaum réttmætum óskum ann-
arra. Því ber heldur -ekki að leyna,
að ])essi sóðaskapur elur á fleiri
óhollum hvötum. Margir krakkar
hafa kynnautn af þessu grufli i
munni sér, enda þótt þau að aldri
til séu komin yfir þróunarstig
brjóstmylkingsins.
VUCAM 23