Vikan - 18.05.1961, Blaðsíða 34
I heimobohsturinn
Þær falla ekki kökurnar, ef þér
notið ILMA lyftiduftið.
Biðjið alltaf um
ILMA bökunar-
vörur, þær fást
í flestum
verzlunum.
DRAUMAR. Framhald af bls. 13.
Draumráðandi Vikunnar.
Mig dreymdi a8 ég og frægur franskur leikari
vorum að keyra i bíl og vinkona mín og ein-
hver strákur með henni. Við keyrðum um marg-
ar götur er voru i ótal fjallshliðum. Allt í einu
sáum við mann upp á einum mjög háum hól.
Við fórum úr bilnum, en allt i einu varð vin-
kona mín hrædd og strákurinn, sem með henni
var. Þau stukku niður af hólnum og niður i
dal, sem var fyrir neðan. Þessi franski leikari,
sem með mér var, hrópaði: Hann er ineð vængi
og stökk á eftir hinum. Ég varð ofsalega hrædd
og ætlaði að stökkva á eftir hinum, en ég gat
mig hvergi hreyft fyrir hræðslu. Þá nálgaðist
þessi maður mig og ég sá að vængirnir á hon-
um voru festir innan undir axlaböndunum á
buxum hans. Það var eins og hann ætlaði að
fara að gera mér eitthvað og ég vaknaði við
það að ég hentist upp úr rúminu og veinaði.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna.
Rósa.
Svar til Rósu.
Höfuðeinkenni draumsins er hinn vængj-
aði maður á hæðinni, einnig er tillit takandi
til ökuferðarinnar eftir hlykkjóttri götunni,
sem liggur upp eftir fjallshlíðinni. Að aka í
bfl eftir slíkum leiðum mundi vera tákn
um að þú værir flækt í eitthvað vafasamt
fyrirtæki. Hinn óttalegi vængjaði maður
mundi hins vegar vera tákn nm afleiðingar
verksins, sem verða í þínum augum og hinna
þriggja óttalegar eins og ásýnd hins vængj-
aða manns. Afleiðingar þessa verks gætu til
dæmis orðið að þú eignaðist barn í lausaleik
eða eitthvað annað sem þér félli illa og þá
einnig hinum líka.
Kæri Draumaráðandi.
Mig dreymdi i nótt að ég væri að tala við
stúiku, sem Kolbrún heitir. Eg þekki hana ekk-
ert, veit bara að hún heíur verið gift og fráskil-
in og gií't aflur. Eg var að segja henni í draumn-
uin að fyrst ELOYD hefði unnið Ingó svona i
þrjú skiíti í röð hefði forsetinn sagt að hann
yrði heimsmeistari i þungavigt næstu ellefu ár.
ijvo datt okkur i hug að bezt væri að fara á
baif. Eg hafði ekki farið á baff svo lengi. Hún
var í köffóttri dragt, sem fór henni aiis ekki
vel en einhvern veginn fannst mér hún ekki
geta skift um föt. Aítur á móti fórum við heim
tii mín og þar fór ég inn í skáp til min og tók
út úr honum gráa munstraða dragt, sem var
ný og fór ég í hana. Draumurinn náði ekki
lengra. iSú langar xnig að biðja yður um ráðn-
iugu á þessum drauin, þvi inig dreymir ekki
oit. Með fyriríram þökk.
Maria Óskai'sdóttir.
lieykjavik.
Svar til Maríu Óskarsdóítur,
Draumur þessi er samsettur úr tveim höf-
uðtáknum og gefur hið síðara hinu fyrra
ákveðið gildi. Fyrra táknið er umræður ykk-
ar kunningjakvennanna um hnefaleikakemp-
urnar Floyd Patterson og Ingó. Þetta bendir
til þess að þú beinir athygiinni að marki,
sem margir aðrir gera, síðara tákn draums-
ins er hins vegar bending um hvað um er
að ræða. Þegar stúlku dreymir að hún er að
fara í ný falleg föt er það talið óbrigðult
merki þess að hún eigi mörg stefnumót og
samkvæmi í vændum. Og er það skýringin
á hvað það er, sem þú og margir fleiri stefna
að á þessum aldrii. En það ejc auðvitað
skemmtilegur og fjörugur félagskapur jafn-
aldranna.
Brauðostur 45%
Brauðostur 30%
Schweizerostur 45%
Goudaostur 45%
Kúmenostur 45%
Tilsiterostur
Gráðaostur
Mysingur
Góðostur
Smurostur
Rækjuostur
Tómatostur
Hangikjötsostur
Sterkur 45% ostur
Snorrabraut 54 - Reykjavík - ísland
Ostur
er hollur
Ostor
cr Ijíffogir
Ostur
9
er 4dfr fsðt
HÚSMÆÐUR, ÚR OSTUM GERIÐ ÞÉR YINSÆLUSTU
ÁBÆTIS OG SMÁRÉTTINA ÞEGAR ÞÉR HAFIÐ GESTI
34 VIKAN
MARRÆÐI
—- Eg er satt að segja dólítið oró-
leg, sagði Sigga. — Þú veizt að Ella
liggur illa haldin á spítala með
brotinn ökla ... Og svo er það
Eiríkur, það er nú meiri ræfillinn.
— En hann hefur nú varla átt sök
á þessu, sagði ég.
— Nei, auðvitað elcki, en það buil,
sagði hún hneyksluð. Nú liggur hún
á spítalanum og getur sig ekki
hreyft, og hann notar sér það á-
reiðanlega. — Annars ætlaði ég að
leita ráða hjá þér — ætti ég ekki
að segja henni frá þessu?
— Að hún sé öklabrotin? sagði
ég rugluð.
— Vertu nú ekki svona utan við
þig og reyndu að taka eftir þvi, sem
ég segi? sagði ég.
— En góða min, Ella liggur á
spítalanum, og liinn umhyggjusami
eiginmaður hennar kemur i heim-
sókn á hverjum degi milli þrjú og
fjögur, og á kvöldin býður hann
stúlku með sér á Röðul.
— Álítur þú að þetta sé allt i
lagi?
— Það má vel vera, sagði ég. Það
er ástæðulaust að búast alltaf við
hinu versta. — Þetta gæti til dæmis
verið móðursystir hans frá Akur-
eyri.
— Móðursystir hans, einmitt það,
sagði Sigga og hló hátt og skerandi.
— Að vísu sá ég aðeins baksvip-
inn, en þú mátt reiða þig á að hún
líktist ekki neinni gamalli frænku.
Þú ert nú stundum dálitið barna-
leg ... Nei, en spurningin er í stuttu
máli þessi: — Finnst þér það ekki
vera skylda mín að segja Ellu frá
þessu?
— Hvaða kvöld var það, sem þú
sóst Eirík með stúlku á Röðli?
spurði ég og flýtti mér að taka á-
kvörðun.
— Á föstudagskvöldið, sagði hún.
— Auðvitað lét hann eins og hann
sæi mig ekki.
— Jæja, sagði ég (það er bezt
að láta það flakka). — Þetta er nú
það fyndnasta, sem ég hcf nokkurn
tíma heyrt. Þú verður að segja
Ellu frá þessu. Ég er viss um að
henni verður skemmt. — Eiríkur
var með mér á Röðli. Hún bað mig
sjálf að fara með honum.
Sigga horfði tortryggnislega á
mig.
— Átt þú svartan kjól með rauðri
rós? sagði hún og kipraði saman
augun.
— Auðvitað, sagði ég. Þú hlýtur
að liafa séð hann. Annars get ég
sýnt þér hann næst þegar þú kemur
í heimsókn . . . En gleymdu nú ekki
að segja Ellu að maðurinn hennar
sé úti að skemmta sér með ungum
stúlkum, meðan hún liggur sórþjóð
í rúminu.
— Og ég sem er búin að hafa svo
miklar áhyggjur af þessu, sagði hún
gröm og reyndi að leyna vonbrigð-
unum.
— Mér þótti vissara að se-gja þér
frá þessu, sagði ég við Eirík. — Við
hittumst af tilviljun á Röðli og
fengum okkur einn gráan.
— Ja, þetta var nú eiginlega
frænka mín ...
— Góði, láttu ekki svona, sagði
ég gremjulega og skellti símtólinu
á. Og nú neyðist ég víst til þess að
kaupa mér svartan kjól með rauðri
rós.
N.N.
Svona, svona, ungfrú góð. Ekki svona
mikið í einu! Sjáðu bara hvernig
manima fer að: Lítið í einu en oftar.
En þú hefir rétt fyrir þér — maður
byrjar aldrei of snemma á réttri húð-
snyrtingu. Mamma þín hefir líka frá
æsku haft þessa reglu: Nivea daglega.
Gott er að til er Nieva!
Nivea innitieldur Euce-
rit — efni skylt húðfit-
unni — frá þvi stafa
hin góðu áhrif þess.
rnnm
heimilistækin hafa staðist
dóm reynslunnar
eru nýtízkuleg
létta hússtörfin
■ 1
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI
jatiraHi.nmilHiiK'IHUtuí