Vikan


Vikan - 01.02.1962, Síða 4

Vikan - 01.02.1962, Síða 4
þaÖ er tölulega sannað að.......................... FORD-DIESEL vélin margborgar sig á skömmum tíma í lækkuðum kostnaði. FORD-DIESEL er hægt að setja í langt'lesta fólks-, vöru og sendibíla, einnig jeppa og önnur landbúnaðartæki. ■— Látið FORD- DIESEL í bílinn yðar og þér munuð stórspara. FORD-DIESEL 4 og 6 strokka. FORDUM B 0-010 SVEIMIM EGILSSDNf Stelsýki. Kæri Póstur. Yið hjónin leitum ráða hjá þér við vandamáli, sem nú er að eyði- leggja okkar áður friðsæla heim- ilislif. Við erum búin að vera gift í 10 ár og eigum telpu, 9 ára, og dreng, 6 ára. Telpan er mjög skýr eftir aldri og í alla staði áreiðan- leg, og uppeldi hennar hefur gengið eins og í sögu. Drengurinn aftur á móti er svo ólikur henni, að við skiljum hreint ekkert í því. Hann er m-jög ósannsögull og óáreiðan- legur, auk þess sem við höfum oft- ar en einu sinni staðið hann að því að stela. Við hjónin höfum reynt að inn- prenta báðum börnum okkar mun- inn á réttu og röngu, og bæði börn- in sækja sunnudagsskóla, svo að það er ekki eins og hann viti ekki, að þetta er syndsamlegt athæfi. Ég hef reynt að tala um fyrir honum, og i hvert skipti, sem hann tekur eitthvað, læt ég hann fara sjálfan og skila því. Engu að síður heldur hann uppteknum hætti, og i gær kom hann heim með vekjaraklukku, sem hann neitar að segja hvar hann tók. Við konan mín erum alveg í öngum okkar út af þessu öllu og biðjum yður því að svara okkur eftir beztu getu. Með fyrirfram þökk. Á. G. Aðalatriðið er ekki hvað barnið gerir rangt, heldur hvers vegna það gerir það. Barn, sem á ást- ríka foreldra og traust heimilis- líf, stelur ekki af því að það er ósannsögult og óáreiðanlegt, heldur af því að það er sjúkt. Ég ræð ykkur hjónum því að leita til sálfræðings hið fyrsta. Þetta verður eflaust læknað fljót- lega, auk þess sem þessi þörf barnsins á vissum aldri til að taka hluti er ekki óalgengt fyrir- brigði. Við viljum benda ykkur á það, að Heilsuverndarstöðin hefur barnasálfræðing í þjónustu sinni og þangað ættuð þið að leita með drenginn. Hann talar upp úr svefni. Kærá Vika. Maðurinn minn talar yfirleitt upp úr svefni á Iiverri einustu nóttu og oft á úllenzku. Hann sofnar alltaf á undan mér, svo ég má iðulega h.'usta á þessa þvælu í honum klukkutímum saman. Þetta heldur svo fyrir mér vöku, að ég er komin með fjólulitaða bauga undir augum af svefnlcysi. Þegar ég minnist á þetta við hann verður hann önugur og segir, að hann tali aldrei upp úr svefninum. Hvað á ég að gera til þess að hann trúi mér? Sveinbjörg. Fáðu þér segulbandstæki, og hann mun taka sönsum. Já, lífið er erfitt. Kæri Póstur. Ég og maðurinn minn fluttum fyrir tveimur mánuðum utan af landi ásamt börnum okkar þremur, sem eru öll undir 7 ára aldri. Mað- urinn minn hugðist leita sér fyrir um atvinnu 1 Reykjavík, og við hóf- um jafnframt leit að ódýru húsnæði. Við þóttumst því himin höndum hafa tekið, þegar við fengum íbúð í Kópavoginum, ódýrari en við höfðum þorað að vona. Hafi ég undrazt hvers vegna íbúðin væri svo ódýr, þykist ég ekki vera í vafa um það lengur. Á hvaða tíma sólar- hringsins, sem er, getum við búizt við, að húsið leiki á reiðiskjálfi og óskapar drunur hvini yfir höfðmn okar. Þetta skeður í stuttu máli, þegar flugvélarnar koma og fara af Reykjavíkurflugvelli. Börnin, sem eins og ég sagði áður, bjuggu í sveit, eru ofsahrædd við þessi læti, og það kemur þráfaldlega fyrir, að þau vakna upp með gráti af einskærum ótta. Stendur ekki til, að ráðin verði bót á þessu og íbúum þessa bæjar sé unnt að eiga sinn heimilisfrið ó- raskaðan? Kópavogsbúi. Ég skil vandræði þín, en get víst lítið gert annað en koma bréfi þessu á framfæri og samhryggj- ast þér. Það hefur komið til tals oft áður, að Reykjavfkurflugvöll- ur yrði fluttur, en hvað verður úr framkvæmdum látum við ó- sagt. Börnin venjast þessu áreið- anlega, og væri ekki ráð, að þið hjónin færuð með þau einhvern sunnudaginn út á flugvöll og sýnduð þeim þessar kynjavélar? Ég er sannfærður um, að þau líta þá öðrum augum, eða rétt- ara sagt heyra þá öðrum eyrum, hávaðann frá þeim. Klukkuhjal. Kæri Póstur. Ég er hér með smáhugvekju, sem ég álít, að eigi erindi til bæjaryfir- valds. Hún er varðandi klukkuna á Lækjartorgi, sem er hreinasta skrípiverk. Að hugsa til þess, að eina almenningsklukka Reykvikinga sé þvottaefnisauglýsing (auk þess sem umrætt þvottaefni hefur ekki verið selt í 6 ár). Það er alger hneisa. Þökk fyrir birtinguna. Þórólfur. Svar til Ingu. Mig svíður alltaf sárt, þegar ungar stúlkur haga sér eins og algerir kjánar, en það hefur þú aldeilis gert. Hvernig dettur þér í hug, að maður elski þig, þegar hann hefur bæði beinlínis og óbeinlínis sagt, að hann skamm- ist sín fyrir þig? Ef hann elsk- aði þig, mundi hann að minnsta kosti heilsa þér úti á götu, þó ekki væri annað. Losaðu þig við hann hið fyrsta, og reyndu ekki að finna fram afsakanir fyrir hegðun hans — hún er óafsak- anleg í alla staði. Óvenjulegt bréf. Kæra Vika. Fóllt gerir svo mikið að því að rífast og krítisera, að það gleymir öllu því góða í heiminum. Ég ætla 4 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.