Vikan


Vikan - 19.04.1962, Blaðsíða 7

Vikan - 19.04.1962, Blaðsíða 7
ar ég hringdi, annars værum við búin að sitja hérna mildu lengur. Mér liggur ekkert á, það veiztu. En ég hef beðið í þrjú ár, svo þegar þú ert héma hjá mér . . . — Þá vilt þú að ég taki sam- stundis ákvörðun, greip hún lágt fram í fyrir honum. Er það sanngjarnt, Rolf? Þú veizt ekk- ert um mig núna, veizt ekkert hvað ég hef verið að gera, eða hvaða skyldur ég hef við aðra. Já, þú ert búinn að bíða í þrjú ár. En þrjú ár er langur tími, vinur minn. Hugsaðu til sjálfs þín. Hefur ekki margt komið fyrr þig á þessum árum? Hann horfði fram hjá henni út á mannlausa götuna og sárs- aukadrættir fóru um sterklegt andlitið og hrukkan milli sam- vaxinna augabrúnanna dýpkaði. Hún horfði þögul á hann og hugsanir hennar leituðu líka langt aftur í tímann. Það er ekki rétt hjá mér, að hann sé líkur bví sem hann var, hugsaði hún. Hann hefur elzt og þroskazt. Fyrir þremur árum var hann beinaber og svolítið slánalegur drengur, sem aldrei tók neitt al- varlega. Þú verður ekki lengi að heim- an, haf ði hann sagt við hana, þeg- ar þau borðuðu saman að skiln- aði á flugstöðinni. Þú verður svona briá eða f jóra mánuði. svo kemur bú aftur, Þú ert of sænsk í hugsun ti! að festa rætur f París. En ba.ð er gott fyrir þig að fá tækifæri til að fara ti? ann- arra landa og sjá big um. Þess betur kanntu að meta heima- landið á eftir. Eg er ekki brædd- ur um að missa þig, Gerd mín. Og ef bú lendir í einhverium vandræðum með Fransmennina, Framhald á hls. 30. Hann hafði gef- izt upp á bví að bíða eftir henni og gifti sig eldri konu til fjár. Hún hafði dáið í slvsi og nú var hann kominn til bess að hitta bana aftur, gömlu kærust- una, sem hann elskaði enn. Smásaga eftir Sven Forssell. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.