Vikan - 19.04.1962, Blaðsíða 33
Tbni heimapermanent
gerir hár yóar mjúkt, gljáandi
og meófærilegt
Með Toni fáið pér fallegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að
“leyniefni” Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér
þurfið aðeins að bregða greiðunni í hárið, til þess að laga það. Ekkert annað
permanent hefir “leyniefni”. það er eingöngu í Toni.
alla trjákrónanna. Það var eins og
hún væri komin aftur á flugvöllinn
og væri að berjast við grátinn. Hún
sneri sér að Lars og þrýsti sér að
honum.
— Ég er svo hamingjusöm, Lassi
minn, ég elska þig svo heitt. Þú getur
ekki trúað því, hve heitt ég elska
Þig . . .
Hann strauk blíðlega vörunum yfir
andlit hennar og sagði: — Ég sem
hélt að þú værir að verða leið á mér!
Það getur varla verið skemmtilegt að
eiga mann, sem er fram á nætv.r í
myrkraherberginu.
Hann fór aftur inn, en kallaði svo:
— Fór náunginn? Vildi hann ekki
kaffi?
— Ekki á þessum tíma sólarhrings-
ins, svaraði hún.
— Skynsamur maður, kallaði hann.
Ég verð að fara að venja mig af
því. Maður lifir ekki af því.
Hún brosti og tók teppið af rúminu.
★
Tillögur um páskamat.
Framhald af bls. 17.
Smjör % bolli, sigtaður flórsykur
3% bolli, 3 stifþeyttar eggjahvítur og
vaniljudropar eða annað bragðefni.
Þetta krem er mjög fljótlegt að búa
til, smjörið og sykurinn hrært vel
saman og eggjahvítunum blandað í.
Hin uppskriftin er seinlegri en heldur
sér mjög vel:
2 eggjahvítur, 1V2 bolli sykur, %
bolli vatn, 2 tesk. ljóst sýróp, vanilju-
dropar eða aðrir dropar % tesk. —
Blandið því lauslega saman í pott og
setjið ofan i annan pott með sjóðandi
vatni og látið sjóða undir þessu með-
an það er þeytt saman þar til það er
létt og hálfstíft. Sé það þeytt með
handþeytara tekur það 7 mínútur, en
með hrærivél 3—4 mínútur. Það er
tekið af eldavéiinni og dropunum bætt
í og haldið áfram að Þeyta Það þang-
að til bað er alveg stíft.
PÁSKAEGG (konfektegg).
2 eggjahvitur, 1 matsk. kalt vatn,
1% tesk. vanilludropar, ca. 1% pund
eöa 6%—7 bollar flórsykur, hjúp-
súkkulaði. Öllu hnoðað saman, nema
súkkulaðinu. Þetta er litað og bragð-
bætt eítir smekk, t.d. má láta í Það
hnetur, rúsínur eða sykraða ávexti.
Búin til litil egg og látin standa á
köldum stað í hálfan sólarhring eða
lengur. Súkkulaðið brætt yfir heitu
vatni og kæit nokkuð aftur. Eggjun-
um dyfið i með gaffli, sem er slegið
á pottbrúnina um leið og þau eru
dregin upp, til þess að ekki verði of
þykk og ójöfn súkkulaðihúð á þeim.
Látið storkna á smjörpappír og eggin
síðan skreytt með flórsykursblöndu i
ýmsum litum. .x.
Toni er framleitt i þremur styrkleikum
REGULAR fyrir venjulegt hár
SUPER fyrir mjög fínt hár
GENTLE fyrir gróft hár, skolað
og litað hár
Einn þeirra er einmitt fyrir yður.
nn ■ ■ - 3 •
V
! í l NE 1 T1 h
NEW |T liill • lom HOME PERM
Toniframleiðsla tryggir fegursta hárið
VIKAN 33