Vikan


Vikan - 19.04.1962, Page 17

Vikan - 19.04.1962, Page 17
Tvær tillögur 1. Brún súpa með eggi, sem er soðið án skurnar. Skorin lambasteik með piparmyntusósu. Vanillu- ís með ávöxtum. 2. Sveppasúpa. Hamborgarhryggur. Eplatrifle. SKORIN LAMBASTEIK (Roasted). Fáið lærið skorið i eins til tveggja sm. þykkar sneiðar, en bindið það saman aftur eins og það væri heilt. Það er sett á grind með skúffu undir í meðalheitan ofn og sé það ekki vel feitt, verður að festa á það sneiðar af óreyktu fleski. Það er Húfa Efni: 65 gr. af 4 þráða ullargarni og prjónar nr. 2% og 4. — 27 1. prjónaðar með sléttprjóni =10 sm. Byrjið aftan á húfunni. Fitjið upp 46 1. á prj. nr. 4 og prj. sléttprjón. Aukið út 1 I. í hvorri hlið í 4. hverri umferð 6 sinnum og 8. hverri umf. 4 sinnum. Prjónið þar til stykkið er 18 cm. Takið þá úr þannig að prjóna saman 2 1. í hvorri hlið, prjónið síðan 3 umf. og prjónið þá saman 2 1. báðum megin í annarri hv. umf. þar til 48 1. eru eftir og í hverri umferð þar til 42 1. eru eftir. Fellið nú af 2 1. í byrjun prjóns og 1 1. i enda prjóns hverrar umferðar þar til 22 1. eru eftir. Fellið af i einni umferð lykkjunnar, sem eftir eru. Fitjið upp 120 1. og prj. sléttprjón. Aukið út 1 1. i 6. hverri umferð 5 sinnum. Eftir 9 cm, tekið úr þannig að prjóna saman 2 1. í hvorri hlið í 3. hv. umferð 3 sinnum, í anarri hv. umferð 2 sinnum og hverri um- ferð, þar til stykkið er 13 cm. Fell- ið af. Fitjið upp 12 1. og prjónið kant- inn neðan á húfuna. Prj. 1 1. sl. og 1 1. br. 50 cm. Fell- ið af. Leggið stykkin á þykkt stykki, mælið form þeirra út með títuprjón- um, leggið rakan klút yfir og látið þorna. Saumið húfuna saman með aftur- sting, frá röngu, með þynntu ullar- garninu. Saumið kantinn neðan á húfuna. Saumið rifsband á innanverðan kantinn. bakað, eöa roasted eins og það heitir á ensku, í 3 klst. í ofninum ef um heilt læri er að ræða eða 2%—3 kg., en aðeins styttra ef stykkið er minna. Ekkert vatn er sett á kjötið og verð- ur þvl að laga sérstaka sósu og er algengt og ljúffengt að hafa með því piparmyntusósu. Dálitill vökvi af kjötinu sjálfu lekur auðvitað niður í skúffuna og er sjálfsagt að nota hann ef kjötsósa er notuð. Ofninn er ekki hafður mjög heitur, en margir hafa hann heitari í 15 mín. fyrst eða síðast, til þess að kjötið verði brúnna. Síðasta klukkutímann eru kartöflur steiktar með i ofn- inum. Það eru valdar stórar og jafnar kartöflur. Þær eru þvegnar vel og smurðar með feiti. Strax og þær eru teknar úr ofninum er skorinn kross ofan á þær, svo gufan komist út og kartöflurnar verði þurrar. Lítið smjörstykki sett i skoruna á hverri kartöflu, og þeim raðað í kringum kjötið þegar það er borið fram. PIPARMYNTUSÓSAN. Þurrkuð piparmyntublöð (fást hér i ýmsum búðum) % bolli, sykur % bolli, edik % bolli, vatn 1 bolli, kartöflumjöl 1% tesk. (hrært út í vatni), grænn matarlitur. Hitið sykurinn, edikið, vatnið og piparmyntulaufin í potti og bætið mjölinu í. Hrærið í þar til suðan kemur upp og látið sjóða í 1—2 mín. Lögurinn síaður og kældur og litaður með matarlitnum. SÚPAN. Venjuleg brún supa úr kjötsoði, eða uxahala- súpa úr pakka. Ot í hvern disk er sett egg, sem soðið er skurnlaust í vatni. Það er þá fyrst sett í bolla og síðan út í sjóðandi vatn með svo- litlu ediki í. Tekið upp með gataspaða þegar það er orðið stíft. Svolítið sherry bætir allar brúnar súpur. Ristað brauð borið með. i VANILLUIS. Rjómi % 1, flórsykur Vá bolli, vanilludropar 1% tesk , tvær eggjahvítur. Rjóminn þeyttur, syk- urinn og droparnir settir í og stífþeyttum hvít- unum bætt varlega í. Ávöxtum úr dós helt yfir áður en hann er borinn fram. SVEPPASÚPA. Sveppirnir soðnir i smjöri í 5—10 mín. Súpa jöfnuð upp með kjötsoði. Gott er að nota soðið af hamborgarhryggnum, en varast að súpan verði um páskamat of sölt. Sveppunum bætt í og því öllu hellt á tvær hráar eggjarauður og hrært vel í, en ekki látið sjóða eftir það. Margir láta líka svolítinn þeyttan rjóma í siðast. HAMBORGARHRYGGUR. Hryggurinn látinn liggja í vatni i 12 tíma. Sett- ur í kalt vatn og ca. % 1 af rauðvíni, en líka má nota eplasafa. Til þess að spara vínið, má sjóða hann fyrst i vatni, en setja hann svo inn í ofn og sjóða með rauðvlninu tómu í 15 min. Þarf þá mjög lítið af því, ef Þess er gætt að hella Þvi oft yfir hrygginn með skeið. Suðutími á að vera alls 45 mín. Himnan er ekki tekin af fyrr en á eftir ef hryggurinn er soðinn, en ef hann er settur inn í ofn, á að taka hana af áður, eins ef hryggur- inn er þakinn glassúr siðast, en það er gert Þannig, að dökkum púðursykri er stráð yfir soðinn hrygg- inn og yfirhiti settur á ofninn og kjötið brúnað mjög hratt. Grænmeti borið með eftir smekk. EPLATRIFLE. Litlar makkarónur gegnbleyttar í sherry, ofan á þær sett eplamauk úr nýjum eplum og þeyttur rjómi efst. EGG Á ÝMSAN HÁTT. Á kvöldborðið er skemmtilegt að hafa nóg af eggjum, annað hvort harðsoðin egg máluð að utan eftir getu hvers og eins, eða vafin inn I skrautlegar umbúðir. Eggjaréttir, þar sem egg- in eru heil geta líka verið skemmtilegir. Mjög einfaldur er franski hátturinn við að bera fram soöin egg. Skurnin er tekin af þeim, þau lögð á fat og yfir þau er hellt brúnuðu smjöri með nokkrum ediksdropum i. Borðað með ristuðu brauði. Alls konar sósur er líka hægt að bera með heilum skurnlausum eggjum, t.d. sveppasósu, rækjusósu og tómatsósu. PÁSKALAMBSKAKA. Gott svampkökudeig er bakað I tveimur mót- um, öðru kringlóttu og hinu lágu og breiðu. Kakan er skorin eins og sýnt er á myndinni og í gegnum það, sem á að tákna höfuðið er stungið trépinna eða makkarónu, sem siðan eru fest á eyru, t. d. úr marsípani. Stykkin eru límd vel saman með kremi og síðan öll kakan þakin vel með þvl og fyllt upp i allar holur á henni. Þykku lagi af kókosmjöli er stráð yfir og augu má gera með rúsínum og munn úr einhverju rauðu, t.d. kirsuberi. 1 kringum lambið má leggja kókosmjöl, litað með grænum ávaxtalit. Hér fara á eftir tvær uppskriftir af kremi sem er heppilegt á þessa köku: Framhald á bls. 33. VIEAN 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.