Vikan


Vikan - 19.04.1962, Page 22

Vikan - 19.04.1962, Page 22
Athngið, að mál þátttakenda { Fegurðar- samkeppninni 1962 verða birt í 18. tölu- blaði, þegar myndir birtast af öllum þátttakendum saman. Ingiríður Oddsdóttir er sú næstsíðasta í röðinni. Myndir af þeirri tiundu munu birtast í næsta blaði, en í blaðinu þar á eftir munu verða myndir af þeim öllum saman. í því blaði verður einnig atkvæða- seðillinn. Ingiríður er Reykvikingur, 19 ára gömul, Ijóshærð og bláeygð og 165 cm á hæð. Foreldrar hennar eru Guðmunda Árnadóttir ættuð úr Rangárþingi og Oddur Guðmunds- son blikksmíðameistari, ættaður úr lteykjavik. Ingiríður lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla verknámsins, en vann jafnframt náminu við fiskiðnað, við afgreiðslu í mjólkurbúðum og ýms- um kjörbúðum. Nú vinnur hún við afgreiðslustörf í verzlun- inni Exeter. Hún talar ensku og dönsku og vill gjarnan reyna tízkusýning- ar. Hún saumar í tómstund- um, ekki aðeins föt á sjálfa sig heldur og á aðra og hefur af því mikið yndi.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.