Vikan - 31.05.1962, Blaðsíða 32
Fl KAFF
FFI KAF
AFFI KA
O. JOHNSON G KAABER HF
Stefnumót í kvöldsólinni.
Framhald af bls. 7.
yrðir fyrst að baSa Jumle.
Þú settir á mig stóra svuntu,
og svo fórum viö aS elta Jumle,
stóra, loðna hundinn. Ha'nn vildi
ekki iáta baSa sig. Eftir baSið hristi
hann sig svo að viS urSum holdvot.
Ég horfði, á þig, þegar ])ú stóðst og
hlóst.
Svo fórum við niður að sjónum
og syntum út í. Svo lágum viS í
sólskininu í grasinu. Við lágum þétt
saman og ég fann hvernig sólin hit-
aði líkama þinn.
— Eigum viS aS gifta okkur?
spurðir þú.
Ég lokaði augunum. Ég þorSi ekki
aS lita á þig. Þetta var of dásamlegt
til að geta verið satt.
Þennan dag trúlofuðum viS okk-
ur. En þú vildir aS viS héldum því
leyndu, þvi aS faSir þinn vildi ekki
aS þú byndir þig, fyrr en þú værir
búinn aS læra. Ég var aSeins nítján
ára, svo þaS lá ekkert á. Við áttum
alll lífiS framundan.
— Þú ert eina konan í lífi minu,
og verSur alltaf, Anne Laurie, sagð-
ir þú.
Þegar við komum aftur heim til
þín um kvöldiS, kom móðir þín inn
i herbergiS til mín, og þaS var eins
og hún vissi hvaS hefSi komiS fyrir.
Hún sagði:
— HvaS verSur nú um Adriennu?
— Adriennu? HvaSa Adriennu?
—■ Adrienna er stúlkan, sem Tony
ætlar að trúlofast. ESa svo halda
allir ...
— Nú ... sagSi ég og hafði engan
áhugSa á þvi, þvi ég var svo viss
um aS trúlofun okkar væri sú eina,
sem væri í gildi. Ég treysti þér Tony.
— Taktu þetta ekki nærri þér,
sagSi móðir þin.
— Taktu þetta ekki nærri þérl
Ég tek þaS svo nærri mér, að þaS
sker mig í hjartað. En ég er móður-
32 VIKAN
sjúk og barnaleg. Ég ímynda mér
of mikið. Þú hefur ekki haft tíma
til að hitta mig af þvi aS þú ert
aS lesa undir próf. Ég má ekki láta
þig finna, hve óróleg og heimsk ég
er. Ég ætla að vera glöð og kát.
Varaliturinn minn, greiðan, budd-
an og púðurdósin. l'ig læt þetta allt
í nýju hvítu töskuna mína — og
dökk gleraugu líka, bara til vonar
og vara.
Nýi hvíti hatturinn minn. Ilann
er skemmtilegur, með öllu skraut-
inu að aftan en engu að framan.
Hann er dásamlega fallegur. Mér
líður betur þegar ég sé hann. Ég
get ekki verið sorgbitin með svona
hatt.
En Adrienna ... Hún gæti aldrei
borið þannig hatt.
Adrienna. Ég má ekki hugsa um
Adriennu. En það er henni að
kenna að ég er svona máttlaus í
hnjáliðunum og köld á höndunum
núna, núna þegar ég er að fara á
stefnumót við þig. Ég hefði ekki átt
að láta dökku gleraugun i töskuna.
Adrienna ...
Það var kvöldið, sem viS ókum
út að sjúkrahúsinu, svo að þú gætir
heimsótt vinkonu systur þinnar,
Angela Gilch hét hún, sem hafði
verið skorin upp við botnlangan-
um. Systir þín hafði beðið þig um
að færa henni hlóm. Það sagðir þú.
Þú fórst út úr bílnum og tókst
rauðan rósavönd úr aftursætinu.
Rauðar rósir.
— Ég kem fljótt aftur, sagðir þú.
Ég sat og beið og horfði á fólkið
ganga fram hjá, heyrði hælana
skella á gangstéttinni. Svo mundi
ég, að ég átti bók í einu geymslu-
hólfinu. Ég opnaði það og eitthvað
datt á gólfið. Það var símskeyti.
„Ég sakna þín hræðilega, elskan
mín. Iíem heim á þriðjudag. Adri-
enna“.
Þetta stóð í skeytinu.
Þegar þú komst aftur, sat ég enn
og starði á það. Þú varst reiður á
svip.
— Fáðu mér það, sagðir þú.
— Þú ert þá elskan hennar Adri-
ennu ... sagði ég.
— Þetta skeyti hefur legið þarna
í marga mánuði, sagðir þú.
Þú laugst. Ég sá dagsetninguna.
— Eigðu sjálfur kvennabúrið þitt,
sagði ég. Mér skilst að Angela sé
nýjasta viðbótin!
Ég trúði þessu ekki sjálf, en þeg-
ar ég sá svipinn á þér, vissi ég að
Hinar þekktu loftkældu Briggs & Stratton benzínvélar fást nú
í eftirtöldum stærðum:
2% hö.
3 hö.
5 hö.
7 hö.
9 hö.
Einnig vatnsdælur í ýmsum stærðum, sambyggðar Briggs &
Stratton-vélum.
Mjög hentugt fyrir sumarbústaði, sveitabýli og margt fleira.
Fullkomiim varahlutalager.
GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16. — Sími 35 200.