Vikan


Vikan - 05.07.1962, Blaðsíða 2

Vikan - 05.07.1962, Blaðsíða 2
Fodegir litir Frábœrt snið jSumnrbuxurnnr eru flnuelsbuxur frn SPARTA Borgartúni 7. — Sími 16554. 41 km - berf cttur Hann óttaðist hvorki hitann né vegarlengdina. Af vissum ástæðum varð hann að sigra í þessu hlaupi. En var lík- legt að honum tækist það? Bikila Abebe þótti lakast aS ekki skyldi vera enn heitara í veðri. Að vísu höfðu læknarnir varað við 'aö maraþonhlaupið færi fram. Fyrir r.ioir en viku hafði danskur hjólreiða- maður beðið bana í keppni sökum oíreynslu og hita. En Abebe óttaðist ekki hitann. Þvert á móti. Heima í Abbessíníu var hann enn meiri hita vanur. 1 rauninni hefðu sigurlíkur hans auk- izt við það, ef enn heitara hefði verið í veðri. Eins og fyrir hálfum mánuði. E'n þetta var eins og hvað annað, sem enginn réöi við. Vissar ástæður voru fyrir því, að Abebe taldi sig verða að sigra i þessu hlaupi, svo framarlega sem honum væri það unnt. Ilann var ekki eingöngu hlaupari. Ilann var líka í her. Sem einn af lífvörðum Haile Selasies var hann fyrst og fremst hermaður. Hafði aldrei verið annað. Nú var hann aftur á móti meira en hermaður. Hann var herdeild að honum þótti. Her . .. Ilonum hafði veriö falið að sigra Róm. Einn sín liðs. Og hann hafði þá trú, aö sér tækist Það. Þetta átti að verða sigurhrós frjálsr- ar þjóðar. Einmitt hér i Róm. Því að það hafði verið Mussolini, sem hneppti þjóö hans í herfjötra um skeið. Þá hafði Bebe verið ungur drengur. Var þvi nokkuð að undra þótt hann vildi sigra Róm? Frá hans sjónarmiði var þaö og einkar vel til fundið, að maraþon- hlaupið skyldi háö á Via Appla, hin- um rómverska hervegi. Þegar rómversku hershöfðingjarnir sncru heim úr styrjöld að unnum sigri, héldu þeir eftir þessurn vegi á sigurgöngu sinni til Rómar. Einnig Mussolini. Abebe gerði sér ljóst að nú bauðst honum tækifæri til að hrósa sigri á hinni fornu, rómversku herbraut. Honum — abbesíniska hermanninum. En hann var einn um þá vitneskju. Ásamt þjálfara sínum. Alðasláttur hans í hvíld var að- eins 45 slög. Og hann hafði þjálfað sig tvisvar sinnum á dag uppi í fjöll- unum og á vikurbrautinni — einmitt undir þennan sigur. Það var ekki nein ástæða til þess að keppinautar hans fengju neinar upplýsingar fyrirfram, er þeim mættu að gagni koma. En Abebe var fædd- ur hlaupari. Og þó fyrst og fremst þolhlaupari. Abebe leit í kringum sig. Hlaupið var hafið. Þátttakendurnir áttu langa leið fyrir höndum. 42 kílómetra. En Abebe hafði afráðiö að láta ekki til skarar skríða fyrr en þrjátíu væri lokið. Plonum stafaöi einkum hætta af Rhadi frá Marokkó og Rússanum. Abebe hélt sig sem næst þeim, en þeir höfðu forystuna. Hann óttaðist hraðann. Sigurlikur hans voru fyrst og fremst fólgnar í 2 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.