Vikan


Vikan - 05.07.1962, Blaðsíða 3

Vikan - 05.07.1962, Blaðsíða 3
VIKAN 00 tmkniH % 3JÓJ5KÍÐÖM Víða c'rlendis þykir það hin skemmtilegasta iþrótt að fara á sjó- skiðum. Ná sumir hinni furðule},'- nstii leikni á því sviði, ckki síður en frœknustu garpar á snjóskiðum. Þótt þetta {teti ekki talizt hliðstæð- ar íþróttir, er þó margt likt, og allajafna verða þeir fijótari að ná valdi yfir sjóskiðunum, sem áður hafa iðkað liina venjulcgu skíða- Byrjunarstaða kcnnd á þurru landi. Nú gengur það glatt ijjrótt. Veldur þar hæði, að þeir hafa þroskaði'i jafnvægiskennd og betri stjórn á öllum viðbrögðmn á hraðri ferð — og að þeir eru þjáifaðri og sterkari, þar sem mest reynir á, t. d. um ökkla, kálfa og mjaðmir, heldur en þeir, sem aldrei liafa á skiði stigið. Þótt brunið sé vinsælast hjá þeim, sem iðka sjóskíðaíþróttina, má einnig iðka einskonar svig og jafnvel stökk, en hvort tveggja krcfst mikillar þjálfunar, ekki hvað sízt stökkin. Hættuleg íþrótt getur þetta varla talizt, ef öll gát er við- höfð. Fyrst og fremst verða sjó- skíðamennirnir er vera vel syndir, oö við æfingar að minnsta kosti er sjálfsagt að vera í flotvesti. Vafasamt er hvort hægt sé að kalla þetta einstaklingsíþrótt j)ar eð skíðamaðurinn á alltaf mikið undir þeim, sem i dráttarbátnum situr. Það þykir að minnsta kosti sjálfsögð öryggisráðstöfun erlendis að alltaf séu tveir í hátnum — annar sem sér um hreyfil og stýri, og hinn sem stjórnar drættinum og fylgist að öllu leyti með skiða- manninum. Hafa ol't orðið alvar- leg slys fyrir það, að hrugðið var út af þessari reglu oftast árekstr- ar, sem stöfuðu af j)ví að stýrimað- urinn h, lði allan luigann við skíða- rnrnninn og gæíti ekki nægilega \el að því, sem var frannindan. Ef vel á að vera og skíðamaðurinn ná góðuin árangri, þurfa þeir, hann og dráttarmaðurinn, að vera vel samæfðir. Hér verða birtar nokkrar leið- beiningamýndir fyrir byrjendnr í sjóskíðaiþróttinni. — Byrjendur Framhald á bls. 42. Útgefandí; llilmir h.f. RitBtjóri: Gísli SigurðBSon (ábm.) Auglýsingastjóri: Jóhannes Jörundnsou. Framkvsemdastjóri: Hilmar A. Kristjánsson. Hitstjórn og auglýsingar: Skiphol ,í3. Simar: 35320, 35321, 35322, Póslhólf 149. Afgreiðsla og dreifin Blaðadreifing, I.augavegi 133, s 3072Ö. Dreifingarstjóri: Óskar Karb son. Verð i lausasölu kr. 15. Áskríft arverð er 200 kr. ársþriðjungslegá, greiðist fyrirfram. Prentun: Hilrair h.f. Mýndamót: Hafgraf h.í. I næsta blaði verður m.a. • Búskapurinn var mér kvalræði. — Rætt við Kristófer Péturs- son, silfursniið á Ivúludalsá í Akraneshreppi, sem bjó í 30 ár fyrir norðan, þekkti ekki féð sitt, en lét sig dreyrna um silfur- smíði og hefur nú loksins fengið tækifæri til að stunda eftir- lætisiðn sína. 0 Ef inni er þröngt. — Vikan hefur gert athugun á því, hvað þarf til þess að iðka ýmisskonar sport og hvað það kostar að vera fullkominn sportmaður. Um þetta verður greinar- flokkur í næstu blöðum og í næsta blaði tökum við fyrir hreindýraveiðar og laxveiðar. 0 Að leikárinu liðnu. — Yfirlit með myndum yfir verk Þjóð- leikhússins og myndir af aðalleikurunum úr My Fair Lady á öllum Norðurlöndunum. • Sonarmissir. — Mjög áhrifamikil og sterk smásaga. • í þreifandi særoki, stórsjó og byl. — Frásögn Bjarna Haralds- sonar seglasaumara, af Halaveðrinu og leitinni að togurun- um sem fórust. • Getrauninni lýkur. Það er tíundi hluti hennar, sem birtist í næsta blaði og þá megið þið senda inn getraunaseðlana. FORSIÐAN Nú fer að styttast þar til einhver lesenda Vikunnar verSur þéssum fallega Volks- wagenbíl ríkari. Við tókum þessa mynd í tilefni af því, til þess að minna á, hversu afbragðsvel ljóshærð stúlka fer við svona bíl og til þess að minna ykkur á að halda öllum getraunaseðl- unum saman ])ar til gelrauninni lýkur. Myndin er annars tekin i Tjarnargötunni og stúlkan er gamalkunnug lesendum Vik- unnar. Hún heitir Ágústa Guðmundsdóttir og var meðal annars á myndinni, sem við tókum af verðlaunabílnum við Elliðaár- voginn og birtist 31. mai. 1. Rétt byrjun. Skíðamaðurinn sezt á hækjur sér í sjóinn og beinir skíðunum upp á við. Sé byrjunin rétt, gengur framhaldið yfirleitt eins og í sögu. Olnbogar nemi við hné, armar vel réttir. 2. Við upphaf dráttarátaksins réttir skíðamað- ur hægt úr hnjánum og beinir skíðunum upp á við sem áður. Það er rnjög áríðandi að rétta ekki úr hjánum til fu'.is fyrr en skriður er kom- inn á. 3. Hafi þetta tekizt vel, og skíðamaðurinn ekki brugðið út af neinu í fáti, verður honum auð- veit að halda jafnvæginu þegar skíðin taka að skríða flughratt eftir yfirborðinu. 4. Skíðamanninum lærist fljótlega að taka beygjur — hann flytur einfaldlega líkamsþung- ann yfir á sömu hlið og hann vill beygja öld- ungis eins og þegar ekið er á reiðhjóli. Þó ekki um of. 5. Skíðamaðurinn verður stöðugt að gæta þess að halda um keflið á dráttartauginni, en var- ast að vefja henni um arma eða úlnliði. Það er áríðandi að hann geti sleppt takinu um leið og hann dettur. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.