Vikan - 05.07.1962, Qupperneq 6
Það skapast vandamál þegar
konan er ráðrík og uppáþrengjandi.
Dag nokkurn heimsótti mig ung
vinkona mín og kvartaði mikið yfir
eiginmanni sínum.
— Hann segir aldrei nema hálfan
sannleikann og stundum lýgur hann
jafnvel, sagði hún óhamingjusöm.
Ég þekki þessi hjón mjög vel. Mað-
ur hennar er traustur og áreiðanleg-
ur og ekki líklegur til skreytni.
OF MIKILL KÆRLEIKUIÍ.
Hvað gat það verið, sem gat fengið
eiginmanninn til að bregða fyrir sig
Jivítri lygi? Ég þekkti liana einnig
vel, hún var lagleg, góðhjörtuð og
vel gefin stúlka, en hversu undarlegt
sem það virðist, þá sýndi hún eigin-
manni sínum of mikinn kærleika.
Það eina, sem hún óskaði sér var að
gera hann hamingjusaman og það
út af fyrir sig er ágætt.
Hún var alltaf tilhúin til að dekra
við hann og gerði hreint ekkert ann-
að. í góðum tilgangi kæfði hún hann
bókstaflega með ástúð.
Það var bæði hlægilegt og ergilegt
að sjá til hinnar, þegar hún t. d.
fyllti kaffibollann hans með ná-
kvæmlega réttu sykurmagni, hrærði
svo í á eftir, eins og hann væri
hjálparlaus sjúklingur.
Ætlunin er auðvitað ekki að setja
út á svo gott fyrirbæri, sem ástúð í
hjónabandinu, en öllu má ofgera, og
unga frúin var iöngu komin yfir
öll takmörk. Einmitt af þessum
ástæðum greip eiginmaður hennar
til ósanninda og stundum hreinnar
lygi. Hann vildi gera hlutina upp á
eigin spýtur, vera hann sjálfur og
hafa dálítið olnbogarúm.
Til að losna við þreytandi hugs-
unarsemi hennar, hlóð hann sér
dálítið virki og ef hann varð að
beita ósannindum til að fá frið, þá
það.
ÁSTIN.
Sumir karlmenn mundu kannski
kunna vel við svona óstöðvandi
umhugsunarsemi og dekur, en ekki
þessi. Hann var dæmigerður karl-
maður.
Flestar konur hafa tilhneig-
ingu til að eigna 'sér of mik-
ið af manninum sem þær elska.
MANNINN
carabella
Yndisþokki næturinnar í carabella...
6 VIKAN