Vikan - 23.08.1962, Síða 7
I
ÞESSIR NÁUNGAR
GANGA UNDIR NAFNINU „PAPARAZZI"
- EN ÞAÐ ER ÍTALSKT SLANGYRÐI
YFIR „HYIMLEIÐ SKORDÝR“.
HEITIÐ KOM FYRST FRAM
í MYNDINNI
„LA DOLCE VITA“,
ÞAR SEM EINN LJÓSMYNDARANNA
NEFNDIST ÞESSU
NAFNI.
Brigitte Bardot var varla fyrr komin til Ítalíu en róm-
verskur ljósmyndari vék sér að henni og gaf henni vel úti-l
látið glóðarauga.
Þetta ótrúlega atvik átti sér stað á baðströnd náiægt
Spoleto, þar sem Bardot ætlaði að hvíla sig í þrjá daga
burtu frá ysi og þysi stórborganna, laus við forvitnisaugu
og blfstur. En hún áttaði sig ekki á því, sú stutta, að
moskítóflugur voru ekki eina plágan, sem hrjáði hana
þarna. heldur átti hún einnig í tæri við sæg af Ijósmynd-
urum — sem sízt gefa moskítóflugunum neitt eftir.
Pranska kynhomban lá makindalega í sandinum í ör-
smáum bikinibaðfötum. begar yfir hana þusti hópur ljós-
mvndara. Ungfrúin flúði á árabát, en ljósmvndararnir fylgdu
eftir á kanó og smelltu af án af'áts. Einum þeirra tókst
meirn að segja að Vöngrast upp í bátiun hjá Brigitte. En
sú stutta lét ekki á sér standa — lét nói allhressilega skína
f tennurnar — stjakaði við snáp"num. vtti honum á bó’a-
kaf og skellti rándýrri myndavél hans í vatnið, svo húr
sást ekki meir.
ftalinn var blóðheitur, eins og flestir landar hans — svo
að áður en Brigitte gat nokkuð gert.. small hnefinn á ljós-
mvndaranum í smettið á henni — heldur ókarlmnnnlegar
aðfarir að tarna. Og han.n 'ét ekki brr við sitja, heldur
sparkaði óþyrmilega í þennan fagra skrokk, áður en hald’ð
var aftur af honum. Smellirnir í myndavélunum umhverfi®
bát.inn vorn eins og hvellir í hríðskotabvssum. Það var
ekki svo vel að þeim dytti í hug að koma dfsinni til hjálnar
— nei, þeir urðu að festa allt hnevkslið á filniu — hað
var mest um vert. Þeir höfðu unnið enn einn vafasaman
sigur, og það var þcim fyrir öllu.
Frmliald á næstu siðu.
Itaískir blaðaljósmyndarar
eru harðskeyttustu og ó-
svífnustu Ijósmyndarar
heims, og víla ekki fyrir
sér að skapa hneyksli ef
þá vantar efni.
tiean
t