Vikan - 23.08.1962, Síða 23
HUSQVARNA
SAUMAVÉL
Þriöju verðlaun getraunarinuar er vönduð Hus-
gvarna saumavél, sein vafalaust verður aufúsugestur
þeim, er hana hreppir. Husqvarna vélarnar eru löngu
viSurkenndar meðal beztu saumavéla. sem völ er á,
og er þeim furðu inargt til lista lagt. Mun engin hús-
móðir í nauðum stödd, sem nýtur aðstoðar Husqarna
saumavélarinnar, því að fá eða engin heimilistæki
standast samjöfnuð við hana.
Gæði, styrkleikur, ending og öryggi í notkun. Allt
eru þetta kostir Husqvarna saumavélarinnar. Hún er
sterk og endingargóð og mjög auðveld í notkun jafn-
framt því, sem engin slysahætta stafar af lienni.
Það eru hinar góðkunnu Husqvarna verksmiðjur
í Svíþjóð, sem vélar þessar framleiða, og er óþarfi
að taka það fram, að það eitt er örugg trygging fyrir
góðri vöru. Husqvarna saumavélarnar njóta vinsælda
um heim allan og ekki sízt hér á landi, þar sem sala
þeirra hefur verið mjög mikil,
Með sanni má segja, að sáumavélar séu einhver
gagnlegustu heimilistæki, sem um getur og liafa þær
áreiðanlega létt þungri byrði af fjölmörgum önnum
köfnum húsmæðrum uin heim allan. Allt, sem við-
kemur saumi er mikil vandvirknisvinna og krefst
liæði þolinmæði og nákvæmni. Þess vegna er sér-
hverri húsmóður brýn nauðsyn að eiga góða sauma-
vél. Þetta hafa þær mörgu húsmæður, er eiga
Husqvarna saumavélar, gert sér ljóst. Husqvarna
saumavélin tryggir gæðin og eykur afköstin.
Með Husqvarna vélinni fylgir taska með geymslu-
hólfum fyrir framlengingarplötu, gangstilli og fylgi-
hluti. Er það mjög mikið hagræði fyrir eigendur vél-
anna og afar vinsælt fyrirkomulag.
Sú húsmóðir, sem notar Husqvarna vél við sauma-
skap sinn, þarf ekki að óttast árangurinn. Hann er
ávallt mikill og góður, þegar Husqvarna saumavélin
er annars vegar.
SJÓNVARPSTÆKI
Fyrsti vinningur getraunarinnar og jafnframt sá veglegasti er
PHILCO-sjónvarpstæki frá O. Johnson & Kaaber. Tæki þetta kostar
hvorki meira né minna en 18.000 kr. í útsölu.
PIIILCO-sjónvarpstækin eru einhver þau beztu, sem völ er á og hin
fullkomnustu í alla staði. Auk þess að vera tæknilega vel úr garði
gerð, eru þau liin mesta híbýlaprýði og öllum til augnayndis.
PHILCO-sjónvarpstækin mæla með sér sjálf, og mun sá, er þennan
glæsilega vinning hlýtur, fljótlega sannfærast um það. Nokkur hundr-
uð PIIILCO-tækja munu nú þegar í notkun í Reykjavík og nágrenni,
á Akranesi og ef til vill víðar, og mun reynslan hvarvetna sýna, að
PHILCO he-ntar mjög vel íslenzkum aðstæðum.
Sá, sem PHILCO-tækið hreppir, hefur sanarlega himin höndum tekið,
því að hér er um dýrmætan og vandaðan hlut að ræða, sem er ungum
og öldnum til ánægju.
PHILCO er trygging fyrir vandaðri framleiðslu. PHILCO svíkur engan.
22 VIKAN
Önnur verðlaun í getrauninni er ferð um fjölmörg lönd, sem jafnan eru mjög eftirsótt af fei'ðamönnum. Lagt verður upp frá Reykjavík og siglt með
einhverju skipi Eimskipafélags íslands, sem leið liggur til þeirrar ógleymanlegu borgar, Rotterdam í Hollandi. Þaðan fer vinningshafi svo með lúxus-
skemmtiferðaskipinu Arkadiu, sem er eitt hið glæsilegasta í heimi, til London. Frá London verður ekið með nýtízku hópferðabifreiðum til Bdinborgar
í Skotlandi, og tekur sú ferð tvo daga með viðkomu á ýmsum ógleymaniegum stöðum. I Edinborg er aftur stigið um borð í íslenzkt skip, að þessu
sinni Gullfoss, og siglt á fyrsta farrými til Reykjavíkur.
Er ekki að efa, að för þessi verður í alla staði hin ánægjulegasta og sá, sem verður svo heppinn að hljóta hana mun áreiðanlega ekki gleyma henni
í bráð. Vikunni er fagnaðarefni að geta boðið fólki svo einstætt tækifæri til að „upplifa" ósvikið ævintýri.
P&Ó kallast verzlunin, sem leggur til fjórðu verð-
laun getraunarinnar, en P&Ó er ein þekktasta og
bezta herrabúð borgarinnar. Eins og allir vita hefur
herradeild P&Ó allt það á boðstóluni, sem eykur stolt
karlmannsins og leður augu konunnar. P&Ó verzlar
með hvers kyns karlmannafatnað og einungis með
fyrsta flokks vörur.
Fjórðu verðlaunin eru enskur hattur og hanzkar
að ógleymdri ítalskri regnlilif, allt frá P&Ó i Austur-
stræti 14.
Vikan hefur fengið einn fremsta gullsmið landsins
til að teikna og smíða þessa fallegu og vönduðu skart-
gripi, og heitir þeim sem fimmtu verðlaunum getraun-
arinnar. Valur Fannar heitir sá listfengi völundur, er
gripina liefur smíðað, og það er sannarlega engin
skömm að liandbragði hans.
Sá maður eða sú kona, sem fimmtu verðlaunin
hreppir mun vekja undrun og atliygli vegna þessara
l'rábærlega fögru skartgripa.
Baula — Hestfjail — Eiríksjökull — Drangajökull — Akrafjall.
Einn er sá munaður, er marga dreymir um,
en alltof fáir hafa efni á, og það er að bjóða
eiginkonunni eða unnustunni i Klúbbinn eina
kvöldstund. Vikan hefur nú ákveðið að hlaupa
þar undir bagga og gefa mönnum þetta gull-
væga tækifæri.
Sjötti vinningurinn i verðlaunagetrauninni er
kvöldverður fyrir tvo og ýmsar aðrar veitingar
fram eftir öllu kvöldi svo sem lyst leyfir, og þá
auðvitað í Klúbbnum að Lækjarteigi 2.
GETRAUNIN:
HVAÐ
HEITIR
FJALLIÐ?
GETRAUNARSEÐILL NR. 5.
FJALLIÐ HEITIR: .
Þetta er reyndar meira en fjall, þvi það er jökull í þokkabót, og einn þekktasti jöluill íslands, þótt ekki ^ NAFN
sé það sá stærsti né hæsti. Jökullinn er kenndur við íslenzkt karlmannsnafn, — fátæklegt að vísu, en ^
fallegt nafn. 10 HEIMILI
Frá því er sagt í íslenzku leikriti, að útilegumaður nokkur hafi forðað sér undan yfirvöldunum með því ’g.
að hlaupa á handahlaupum upp á jökulinn þegar hinn frábæri hestur hans gafst upp. gj SÍMI
VIKÁN 23