Vikan - 23.08.1962, Síða 40
KJÖRSTÓLLINN
Kjörstóllinn er mjög þægilegur,
hann er léttur og sterkur.
Enginn getur verið án kjörstóls.
Reynið kjörstólinn, kaupið kjörstólinn,
hann kostar aðeins
kr. 1.175,00
sendur gegn póstkröfu.
Krístjdn fiprsson h.|.
Laugavegi 13, sími 13879.
ekki segja. Hafi þeir eitthvað við
„Pétur“ að athuga, eiga þeir að
segja álit sitt á honum og skýra það,
hvers vegna þeim finnst félagsskap-
ur við hann óæskilegur. Svo verður
unglingurinn að gera það upp við
sjáifan sig, hvort rök foreldranna
seu svo þung á metunum, að ástæða
sé til að siíta kunningsskapnum við
„Pétur“. Það er í þessu tilfelii eins
og svo oft, að bann-aðferðin gagnar
ekki, samkomulags- og traustsað-
ferðin er skynsamlegust og áhrifa-
rikust. Foreidrarnir verða að treysta
unglingnum til þess að vega og meta-
ráðieggingar þeirra rétt.
— Manstu eftir fleiri óþarfa bann-
reglum?
— Það eru til dæmis alls konar
teprulegar vandræðareglur í sam-
bandi við kynferðismál: Forðast
skal að iáta kynferðismál bera á
góma, þar sem unglingar eru, þvi
að það gæti verið þeim stórhættu-
iegt. bkyit þessu er reglan um það
livaða kvikmyndir skuli vera bann-
aóar iyrir börn og unglinga. Þar
virðist skoðunin vera svipuð. Tök-
um txl dæmis tvær myndir. Önnur
fjailar um æpandi bófaskril í gull-
æöxsþorpum Ameríku. Svakaleg
siagsmái og skothríð inni á barnum,
þar sem ijöldi fordrukkinna ævin-
týramanna liggur i valnum, og
skotnir hestar engjast sundur og
saman á þorpsgötunuin. Niðurstað-
an: Hæf til barnasýninga klukkan
þrjú á sunnudögum. Krakkarnir
skilja hvort eð er ekki útlenzku og
hafa ekki vit á ruddaskapnum. Hin
myndin fjailar um skuggahhðar
stórborgariífsins. Ruddaskapurinn
engu meiri en i fyrri myndinni, en
svo óheppilega vill til, að nakið
konubrjóst sést á tjaldinu í tvær
sekúndur. Niðurstaðan: Þetta verð-
ur að banna öllum að sjá, sem yngri
eru en 1(5 vetra, þar sem enginn
getur sagt fyrir hversu geigvænleg
áhrif svona „djörf“ kvikmynd getur
haft á sálir óþroskaðra unglinga.
— Er nokkurt vit í þessu? Ég kalla
þetta herfilegt vanmat á unglingi
sem vitsmunaveru. Mikið skelfing
hlytu margir að hneykslast, ef þeir
vissu, að á veggjum i skólastofum
unglingaskólanna og jafnvel barna-
skólum hangir víða eftirprentun af
ágætri, gullfallegri mynd Blöndals,
„Kona greiðir hár sitt“. Hvílík ó-
siðsemi blasir við unglingunum:
Ber niður undir mitti!!
— Meðal annarra orða, Jón. Það
vill vist ekki svo til, að þú hafir
séð kvikmyndina Mein Kampf, sem
fjallaði um glæpaferil nazista og
valdatima Hitlers og sýnd var vik-
um saman í Kópavogsbíói fyrír
skömmu?
— Jú, reyndar. Hún var að visu
bönnuð börnum yngri en 16 ára,
en ég fór samt. Ég held, að hvorki
ég né jafnaldrar minir hafi illt af
að kynnast þessu hroðalega tímabili
mannkynssögunnar. Mér fannst
myndin svo lærdómsrík, að sjálf-
sagt hefði verið að hafa sérstakar
skólasýningar á henni fyrir nem-
endur allra unglingaskólanna.
— Segðu mér að lokum, Jón. Hvað
þarf að breytast, til þess að ungl-
ingarnir annars vegar og hinir eldri
hins vegar líti hvora aðra réltu
auga.
— Báðir aðilar þurfa að brjóta
odd af oflæti sínuogviðurkenna kosti
hvor annars. Hinir eldri verða að
skilja, að það er ekki aðeins í kosn-
ingaræðum, sem æskan, „sem á aðu
erfa landið“, „er tápmikil og glæsi-
leg“. Sé þetta sagt af heilindum um
kosningar, gildir það út allt kjör-
timabilið. Hinir yngri þurfa að
viðurkenna reynslu hinna eldri og
meta vinsamlegar leiðbeiningar
þeirra að verðleikum. Ofstækisfull
ar nöldrunarraddir lifa því miður
góðu lifi i skjóli tortryggni og mis-
skilnings, sem uppræta verður með
tillitssemi og lipurð beggja aðila.
Við erum ekki tveir andstæðir þjóð-
flokkar, heldur ein heild i einu góðu
landi.
JÞM
Plötur og dansmúsik
Framhald af bls. 24.
The Highwaymen: I‘m on my
way og Whiskey in the jar. Hér eru
á férð félagarnir, sem gerðu lagið
Micheal (Hallalujah) frægt á sínum
tíma og nú syngja þeir annan sálm
inn á plötu, þar sem I‘m on my way
er. Þeir gera laginu góð skil hvað
söng viðkemur, en bæði er lagið
og textinn sáraeinfaldur og óliklegt
að þetta lag eigi eftir að ná sömu
vinsældum og Michael. Siðara lagið
er gamalt skozkt þjóðlag, sem fært
hefur verið í nútímabúning. Það er
mjög vel sungið og skiptist skemmti-
lega á einsöngur og raddaður söng-
ur.
Á síðustu árum hafa komið fram
allmargir söngflokkar i Ameríku,
sem eingöngu syngja gömul þjóðlög,
svo sem The Kingston trio, The
Brothers four, The Limelighters og
The Highwaymen, svo nokkrir séu
nefndir. Flokkar þessir hafa endur-
vakið mörg skemmtileg þjóðlög og
vísur og hlotið vinsældir fyrir.
Hér á landi hefur meira að segja
komið fram söngtrió, sem sungið
hefur þjóðlög, aðallega erlend. Kalla
þeir sig Savannah-trióið. Þegar þeir
hafa tekið sér íslenzkt nafn, bætt
við sig islenzkum lögum, því af nógu
er að taka og æft vel og dyggilega,
þá munu þeir áreiðanlega verða
fljótir að syngja sig inn 1 hjörtu
íslendinga.
En svo aftur sé vikið að hljóm-
plötunni, sem um var rætt, þá er
þetta HMV-hljómplata, sem fæst i
Fálkanum, Laugavegi 24.
Tízkuskóli Andreu
Framhald af bls. 18.
þýfi — þar að auki með stífa hand-
leggi og jafnvel i keng. Ekki hefur
þó framkoman og viðmótið minnst
að segja og það vitum við, að fjöldi
islenzkra stúlkna þjáist af vanmeta-
kennd, sem er utan við öll skynsam-
leg takmörk. Allir þessir gallar eru
líklega til komnir vegna þess, að
það er stutt síðan við fluttum úr
moldarkofunum, þar sem formæður
islenzku kvenþjóðarinnar bjuggu við
alveg ótrúlega frumstæð lifsskilyrði
öld fram af öld. Svo erum við allt
í einu komin með borgarmenningu
á alþjóðlega vísu. Hvað er þá eðli-
legra en dálitill heimaalningssvip-
ur svona til að byrja með? Að visu
er hann leiðinlegur og á að hverfa
og til þess eru tizkuskólar. Þá er
vel, að réttar fyrirmyndir séu fundn-
ar. Margir eru þeirrar skoðunar, að
frú Andrea hafi hitt naglann á höf-
uðið með námi í Frakklandi og nú
jcigum við eftir að sjá árangurínn.
40 VIKAN