Vikan - 06.09.1962, Blaðsíða 4
'&eilbrigði
* og fegurð
að
. Heilsan er fyrir öllu, gerið því allt til að við-
r halda henni. Þegar þér farið í bað, þá hafið
BADEDAS í baðið, það inniheldur vítamín.
vítamín-steypibað
Bleytið a.Tan líkamann. Látið síðan einn skammt af BADEDAS
á svampinn og berið á allan líkamann, þar til freyðir.
Notið BADEDAS ævinlega án sápu. Venjuleg sápa minnkar hin
hressandi áhrif BADEDAS og einnig hin nærandi og verndandi
álirif bess á liúðina.
Einkaumboð:
H. A. TULINIUS
,Því miður“ . . .
Kæri Póstur.
Viltu benda þeim miklu mönnum,
sem láta símastúlkur svara í símann
fyrir sig, á það, aS þaS er ákaflega
leiðinlegt aS hringja í slíka síma,
þegar maður fær það svar hjá síma-
stúlkunni, EFTIR að hún er búin
að spyrja mann til nafns, að því mið-
ur sé þessi og þessi ekki við. Ég skil
xnætavel, að oft vilja þessir mætu
herrar ekki tala við einhverja þá,
sem liringja, en þessi aðferð er samt
ákaflega hvimleið og lítt til að mæla
með fyrirtækinu.
Sig. T.
Skilti . . .
Kæri Póstur.
Ég er einn af þeim, sem ferðast
mikið og þarf viða að koma við. Und-
anfirin ár hefur skiltamenning tals-
vert aukizt, og margir bæir eru
farnir að hafa skilti, þar sem á
stendur bæjarnafnið. En það eru
bara ekki nærri allir bæir, sem hafa
tekið upp þennan góða sið.
Því er það tillaga mín, að allir
bæir séu skyldaðir ti 1 að láta setja
upp svona skilti, þar'\sem standi á
bæjarnafnið, til að auðvelda ferða-
mönnum, auk þess sem slíkt mundi
verða þeim til mikillar fræðslu og
skemmtunar. Það er skylda í bæn-
um að hafa götunúmer og húsnúm-
er, og þess vegna finnst mér, að
svona ætti það líka að vera til sveita.
Með fyrirfram þökk.
Ferðalangur.
--------Ég er sammála þér með
það, að af þessu er mikil fræðsla
og skemmtun, svo að ekki sé
minnzt á, hversu þægilegt þetta
getur orðið fyrir ferðalanga. En
það er auðvitað alls ekki hægt að
skylda bændur til að setja upp
slík skilti. Það skyldar þig enginn
til að setja upp heljarstór skilti
með nafni þínu fyrir framan hús-
ið þitt í bænum, því að húsnúmer-
ið er engan veginn sambærilegt
auðkenni.
Ég skal sem sé taka undir með
þér varðandi það, að ÆSKILEGT
sé að hafa slík skilti við bæi
landsins, en við getum ekki skyld-
að neinn til þess.
FM . . .
Kæri Póstur.
Við erum hérna tveir, sem vorum
að tala um, hvers vegna væri ekki
FM-stöS á íslandi. Erlendis er nú
aPs staðar útvarpað í gegnum FM-
stöðvar, hvers vegna erum við alltaf
svona aftur úr? Stendur ekkert
tii að koma upp svona stöð hérna
á íslandi? Hlustunarskilyrðin eru
miklu betri og tónninn helmingi
skýrari.
Tveir á Melunum.
--------Hérna í Reykjavík er
lítil FM-stöð, en ófullkomin þó.
Samt má heyra (stundum prýðis-
vel) í þessari stöð, en til þess
verða þó móttökutækin að vera
f „línu“, því að mér skilzt, að
sendar séu FM-útvarpsbylgjur í
beinum geisla, þannig að þeir,
sem eru í geislanum, njóta hinna
beztu hlustunarskilyrða. Á flest-
um nýrri gerðum útvarpstækja
er FM-bylgja. Vonir standa til, að
komið verði upp FM-sendistöðv-
um um landið, en þær verða víst
að vera nokkuð margar, því að
þær draga svo stutt. Við skulum
vona, að þetta verði gert, áður
en útvarp er komið úr móð.
Ungu skáldin yrkja
kvæði...
Kæri Póstur.
f maíhefti tímarits Máls og menn-
ingar eru birt tvö ljóð eftir Dag
Sigurðsson. Annað þeirra heitir
Sylvia og er þannig:
Sylvia smart, Sylvia pen,
Sylvia fín.
Sylvia með gullkeðju
tvöfalda.
Sylvia með tvöfalda
gullkeðju.
Sylvia smart, Sylvia pen,
Sylvia dýr.
Þetta hlýtur að vera góður skáld-
skapur, úr því að jafnþekkt tímarit
og tímarit Máls og menningar finnst
kvæðið birtingarvirði. Ég hef aldrei
álitið mig skáld, en fór að velta því
fyrir mér, hvort ég hefði ekki van-
metið sjálfan mig í þessum efnum,
og ég komst að þeirri niðurstöðu, að
svo myndi vera. Eftirfarandi fædd-
ist hjá mér á örskammri stund.
Ljóðið heitir Dagur:
Dagur er risinn. Dagur er hniginn.
Dagur er horfinn.
Dagur er skáld
mikið.
Dagur er mikið
skáld.
Dagur í vestri. Dagur í austri.
Dagur Sigurðarson.
Mér finnst skáldskapurinn hjá
báðum álíka góður, en öllu meira vit
finnst mér í mínu ljóði. Ég er í
fastri atvinnu og á góðum launum
— en nú spyr ég þig, Póstur góður:
Á ég að segja starfinu upp og gefa
mig að skáldskap?
Balli smart.
-------Ég þori ekki fyrir mitt
litla líf að gera upp á milli þess-
arra tveggja merku Ijóða. Ef ljóð-
ið þitt er perla, þá er hitt það líka
— og öfugt.
Mér finnst þú tvímælalaust eiga
að segja upp starfi þínu, úr því
að þú hefur svona líitð fyrir að
skapa lýrískar gersemar.
Það er hryggilega lítið um slíka
bókmenntajöfra sem ykkur Dag
á þessum síðustu og verstu tím-
um. Hafi tímarit Máls og menn-
ingar þökk fyrir að birta alþýðu
öndvegisverk sem þessi — og
hafir þú þökk fyrir að senða
okkur þennan litla gimstein, sem
hlýtur að glóa lengi í bókmennta-
sorpi voru, sem ævarandi minnis-
varði íslenzkra bókmennta á
tuttugustu öld.
4 VIKAN