Vikan


Vikan - 27.12.1962, Síða 27

Vikan - 27.12.1962, Síða 27
II i Stjörnuspáin gildir frá fiinmtudcgi til fimmtudags. ©Hrútsmerkiö (21. marz—21. apr.): Þú ferð held- ur klaufalega af stað í þessari viku, en líklega undir helgi fer allt að blása byrlega, og um helg- ina virðist lánið beinlínis ætla að leika við þig. Þú ert nokkuð svartsýnn ú þína eigin framtíð, en til þess er vissulega engin ástæða. Heillatala 10. Heillalit- ur gulleitt eða bleikt. Nautsmerkiö (22. apr.—21. maí): Óþolinmæði þín verður til þess —• þótt einkennilegt megi virðast, og ekki sé slikt gott fordæmi — að þú getur notað þér tækifæri, sem þér hefði aldrei boðizt, ef þú hefðir ekki verið svona óþolinmóður. Þriðjudagurinn er dálítið óvenjuiegur dagur hvað allt fé- lagslíf snertir. Heillatala 7. Tvíburamerkið (22. mai—21. júní): Þú færð verk- efni upp i hendurnar, sem virðist heldur skemmti- legt fyrst i stað, en líklega verður þetta heldur leiðinlegt þegar fram i sækir, ef þú reynir ekki að útvega þér mann til þess að vinna að þessu með þér. Þú munt skemmta þér óvenjumikið í vikunni. Laugardagurinn er varasamur hvað ástir snertir. Krábbamerkið (22. júni—23. júlí): Þú hefur ver- ið eitthvað lasinn undanfarið, en nú virðist vera að rætast úr þessu. Það hvílir eitthvað á sam- vizku þinni þessa dagana, en þig skortir bara kjark til að ráðast í að Ijúka þessu af. Þú skalt gera þetta fyrr en síðar. Sannleikurinn er sá, að þú ert búinn að sverta þetta um of i huga þér. Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Þér gefast marg- ar góðar frístundir i vikunni. Yfirleitt verður vik- an róieg og notaleg. Þú munt dveljast mikið heima við, meira en undanfarnar vikur, og þar muntu einnig njóta lifsins bezt. Þú færð skemmti- legan gest í heimsókn eitt kvöldið, en trúðu ekki öllu, sem hann segir þér. Heillatala 13. Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þú munt öðl- ast ómetanlega lifsreynslu í þessari viku og verð- ur það til þess að þú ferð að líta ákveðið mál allt öðrum augum en til þessa, og er gott til þess að vita. Þú munt verða fyrir einhverjum vonbrigðum út af einhverju, sem þú færð aðsent, þótt ekki virðist nein ástæða itl, enda verður þú ánægður að lokum. Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.); Þú teflir á tvær hættur í vikunni, og virðist allt benda til þess að lánið verði með þér, en þetta skaltu samt ekki leika oftar, því að aldrei er að vita, hvenær illa fer. Þú hefur vanrækt nokkuð einn kunningja þinn undanfarið, og skaltu bæta úr því hið snarasta. Helgin verður dálítið nýstárleg. Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Hætt er við að þér sinnist eitthvað við einn félaga þinn, enda virðist Þú einkennilega uppstökkur þessa dagana. Sannleikurinn er sá, að í þetta sinn hefur þú al- gjörlega rangt fyrir þér, og væri þér hollast að viðurkenna það strax. Sunnudagurinn býður upp á afar skemmtilegt ævintýri. Heillatala 2. ©Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þessi vika veðrur fremur tíðindalítil, en þú munt lifa rólegu lífi. Þó verður eitt kvöldið mjög ólíkt hinum kvöldunum, og þá mun eitthvað gerast, sem kem- ur þér í uppnám. Þú skuldar einhverjum bréf, og skiptir það þig afar miklu að þú skrifir strax i vikunni. Talan 4 er dáiitið varasöm. —. GeitarmerkiÖ (24. des.—20. jan.): Það gerist ifiPK margt skemmtilegt í vikunni og munt þú verða til þess, að þið félagar þínir lendið í ýmsum ■^Bpr spaugilegum ævintýrum. Þú hefur ekki sinnt einu hugðarefni þínu lengi, en nú verður eitthvað til þess, að áhugi þinn á því vaknar á ný. Þú skalt vanda allt, sem þú skrifar í vikunni. VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Líklega verður þessi vika afar frábrugðin öllum hinum vikum ársins. Það hvílir einhver óvissa yfir þess- ari viku og verður ekki fyllilega lesið úr stjörn- unum hvað eiginlega er á seyði. Þú skalt sem sagt vera við öllu búinn. Margt bendir samt til, að útkoman verði í heild jákvæð. FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz.): Þú hefur beðið lengi eftir að eitthvað gerðist, en I þessari viku gerist þetta loks, en þá veldur það þér ein- hverjum vonbrigðum, sem er næsta furðulegt, þvi að þetta er nákvæmlega eins og þú hafðir gert ráð fyrir. Líklega ert þú orðinn of góðu vanur -—• dekur- barn. Helgin verður viðburðarik með afbrigðum. m © f Ávallt eitthvað nýtt frá Kixníer’s Brjóstahaldari tegund 8296 er með stoppuðum skálum, sérstaklega gerður fyrir V-hálsmál. Biðjið urn og þér fáið það bezta. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.