Vikan - 30.07.1964, Page 4
ÚTIDRYKKJA A KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
Þessi mynd er tekin fyrir rúmum 60 árum síðan austur á Kirkjubæjar-
klaustri, og sýnir þrjá merkismenn og sveitarhöfðingja ásamt heimafólki
þeirra. Myndin er tekin áriS 1903, en tilefnið er ferming tveggja systkina,
Guðmundar og Ásdísar, barna Guðlaugs Guðmundssonar sýslumanns Skaft-
fellinga, sem situr hægra megin við kaffiborðið og er að hella í bollann sinn.
Dóttir hans, Karolína er að aðstoða hann við þessa athöfn, en hún og Iitla
barnið við borðið — Kristín, lóttir hans —- eru þau einu, sem enn lifa af
þessu fólki.
Lengst til vinstri stendur kona í peysufötum og heldur á kaffibolla. Hún
hét Sigríður Magnúsdóttir (Árnasonar trésmiðs í Rvík.). Sitjandi við hlið
hennar er síra Ólafur Magnússon (bróðir hennar) að Sandfelli. Við hlið hans
stendur síra Sveinn Eiríksson að Ásum, en berhöfðaður við hlið hans er Gísli
sonur hans, síðar sendiherra. Hann varð stúdent þetta sama ár. Fyrir framan
hann situr við borðið frú Lydia Knudsen (kona sr. Ólafs), en fyrir aftan hana
á peysufötum Guðríður Sveinsdóttir, systir Gisla. Og enn aftar, með kaffi-
könnu, Guðrún Pálsdóttir „innistúlka“. Þá situr frú OIiv Maria Svenson
við borðið og heldur á barni sínu, en hún var sænsk að ættum, frá Skáni,
kona Guðlaugs og venjulega kölluð „Frú Guðmundsson", og bamið er eins
og fyrr er sagt, Kristín Guðlaugsdóttir, síðar eiginkona Magnúsar Péturs-
sonar bæjarlæknis. Beint fyrir aftan hana stendur piltur með kollhúfu, en
það er fermingardrengurinn, Guðmundur Guðlaugsson. Við hlið hans sér
á vanga Þórdísar Maríu Guðlaugsdóttur, og framan við hana faðir þeirra
systkina, Guðlaugur Guðmundsson. Þar fyrir aftan barnfóstra á heimilinu,
Vilborg Einarsdóttir, síðan Karólína Guðlaugsdóttir og lengst til hægri systir
hennar Guðlaug.
Fremst á myndinni sitja börnin, lengst til vinstri Sigrún Jónsdóttir, dóttir
Guðrúnar vinnustúlku, en hún var þá ekkja. Þá er næst Margrét Guðlaugs-
dóttir og fyrir aftan hana Katrín Ólafsdóttir (síra Ólafs á Sandfelli.) Strák-
urinn með húfuna er Ólafur Guðlaugsson og fyrir aftan hann, aðeins hægra
megin Ásdís Guðlaugsdóttir, annað fermingarbarnanna. Síðast nefnum við
litlu stúlkuna, sem situr lengst til hægri: Soffíu Guðlaugsdóttur leikkonu.
Sendandi G. G.
^ — VIKAN 31. tbl.