Vikan


Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 9

Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 9
það þarf ekki að nota hann nema rétt til þess að hreyfa bílinn af stað. Og annar gír er strax sæmilega sprettharður. Það er mátu- legt að skipta í fjórða gír þegar á 50 km hraða og bíllinn tekur prýðilega kippi undan svipunni allt uppí 100 km hraða. Á 70 km hraða virðist hraðinn vera orðinn talsvert mikill, en það er svo skrýtið, að maður verður ekki til muna var við þá tilfinningu á talsvert mikið meiri hraða. í fáum orðum sagt, þá er Fiat 1100 D að miklum mun skemmtilegri í akstri en ég hefði átt von á. Hann er fremur stinnur í beygjum og minnir að sumu leyti á Yolvo á vegi. Á þvottabretti og hverskonar smágerðum holum er hann hreinasti snillingur, svo ég man varla til þess að hafa fundið minna fyrir þessháttar ójöfnum í öðrum bílum. Aftur á móti verð- ur maður talsvert óþyrmilega var við stórar holur og er þó bíllinn á 14 tommu felgu og 520 belgvídd. En það er unun að aka þessum bíl og alveg sérstaklega á malarvegi. Ég minnist þess ekki, að ég fyndi ágæta eiginleika hans eins vel á malbikinu. í langakstri virðist hann mjög þægilegur á 90 km hraða og fer auðveldlega í gegnum allar stærri beygjur á þeim hraða og talsvert krappar beygjur á 70 km hraða. Það verður að pína hann þjösnalega til þess að vélin fari að kvarta og banka og yfirleitt er ég ánægður með árangur þessara 55 hestafla, sem sögð eru undir vélarlokinu. Eyðslan er eins og bezt verður á kosið, eigandi bílsins sagðist aka honum vel yfir 400 km á innihaldi tanksins, sem er um 38 lítrar. Mér finnst Fiat 1100 D ekki í flokki þeirra bíla, sem ég lít fegursta, en útlit hans er miðað við notagildið. Það er einfalt, jafn úrskurður fyrir framhjólum og afturhjólum, tvær lugtir og látlaust grill að framan og einn krómlisti meðfram endilangri hliðinni. Hurðirnar virðast þunnar og fremur efnislitlar, en ættu að geta staðið fyrir því. Bíllinn er fjögurra dyra. Hann er búinn jafnvægisstöngum bæði að aftan og framan, fjaðrar á gormum að framan en blaðfjöðrum að aftan. Rúmtak vélarinnar er rúmlega 1,2 lítrar, hámarkshraðinn 130 km, farangursrýmið 400 lítrar, lengd- Framhald á bls. 40. f SUPA-MATIC handklæða- vélar nauðsynlegar þar sem hreinlæti er í heiðri haft. Hreint handklæði í hvert sinn. Borgorþvettohíui b.f. Borgartúni 3 — Símar: 17260, 17261, 18350. J Vinnufatabúðin Laugavegi 76 — Sími 15425. LEE LEE buxur, jakkar, skyrtur LEE VIKAN 31. tbl. 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.