Vikan


Vikan - 30.07.1964, Side 10

Vikan - 30.07.1964, Side 10
Hann notar ennþá — og að- eins — myndavél síðan 1920. En þær gerast ekki betri nú á dögum, því þau eru samgró- in, Kaldal og vélin, og snilld hans gefur henni nýtt líf og ómælanlega möguleika. Það jafnast engar nútíma linsur né átómatískar tilfæringar við fingur hans. Grein: Guðmundur Karlsson. Myndir: Kristján Magússon — og Kaldal. Þú kemur inn í Ijósmyndastof- una, feiminn og vandræðalegur, því þér er yfirleitt ekkert gefið um það, að teknar séu af þér myndir, en konan hefur heimtað það, svo að nú verður það að ske. Þér er innanbrjósts eins og þú sért að fara til tannlæknis, nema þú þykist vita að þetta verði ekkert sárt. Það kemur brosmildur maður á móti þér, þegar þú gengur inn, og býður þér til sætis á stól í miðri stofunni, og þú hugsar — Jæja nú fer hann að beina á þig sterkum Ijósum úr öllum átt- um, og biðja þig um að horfa hingað eða þangað, brosa, horfa meira niður, meira upp og svo- leiðis . . . Svo sérðu að maður- inn gengur að stórri og fornfá- legri myndavél og felur sig á bak við hana undir svörtu klæði. — Nú fer hann að stilla vélina, — hugsar þú og ferð að skoða þig um í herberginu. Svo kemur mað- urinn aftur undan svarta klæðinu og segir: „Takk fyrir, þá er þetta búið". „Já", segir þú. „Hvernig á ég að vera?" „Ég er búinn," segir hann. „Haldið þér ekki að ég líti bet- ur út á vinstri vangann?" segir þú. „Við skulum nú sjá, það kem- ur fram á myndunum." „Já. En ég ætla samt að biðja yður um að taka af mér eina hægra megin." „Ég er búinn að þvf." „Hvað . . . ?" „Myndatakan er búin. Þér megið sækja prufurnar eftir tvo daga." „Eitt aðalleyndarmál góðrar andlitsmyndar," segir Jón Kaldal, „er að taka mynd af manninum óviðbúnum. Það er oftast, þegar fólk kemur til að láta taka af sér mynd, þá hefur það undir- búið sig á ýmsan hótt, látið greiða sér og snyrta, og svo set- ur það sig f einhverjar ákveðnar stellingar, þegar maður ætlar að fara að smella af. Slíkar mynd- ir verða aldrei góðar, né lýsa persónunni vel. Þess vegna reyni ég að taka myndina þegar eng- an grunar að ég sé að taka mynd." „Þú átt vafalaust fleiri leynd- armál f sambandi við Ijósmynda- tökur, Kaldal . . . ?" Kaldal er hinn ókrýndi kon- ungur íslenzkra portrett-mynda- tökumanna. Hér er hann á vinnustofu sinni ásamt nokkr- um verka sinna. Myndin til hægri: Frú Guðrún Kaldal í garðinum í Laugaholti. íbúðarhúsið í bak- sýn og húsin ofan við Laugar- ásveginn. Jón Kaldal og Guðrún ásamt Jóni syni þeirra í stofunni í Laugaholti við Laugarásveg. Tvær dætur þeirra hjóna eru erlendis. O Myndavélin er gömul og snjáð, en linsan í henni er kjörgripur. O „Já, satt er það. Mörg þeirra eru að vísu hætt að vera leyndarmái nú orðið, en þó á ég eitt ennþá, sem ég veit ekki til að aðrir kunni." „Hvað er það?" „Það er líka leyndarmál, hvað það er. En ég var svo heppinn, þegar ég var ungur og að læra Ijósmyndasmíði í Kaup- mannahöfn, að þar vann sænskur maður, sem var snillingur i töku andlitsmynda. Hann hafði þá ýmsar vinnuaðferðir sem hann hélt svo leyndum, að hann vann aðeins við þær á nóttunni, þegar eng- inn var þar til að snuðra. En ég fékk að vera hjá honum og lærði marga góða hluti þær næturnar . . . Ég var staddur heima hjá Jóni Kaldal og sat þar í góðu yfirlæti með sherry- glas á hægri hönd, konfekt og tóbaks- vörur til vinstri. Lengi var ég búinn að reyna að fá hann til að tala um eitt- hvað annað en myndatökur, en hafði ekki tekið það með í reikninginn, að með mér var Ijósmyndari VIKUNNAR, Kristján Magússon, og úr því var auð- vitað ekki að aka, að þeir hentu enda- laust á milli sín spurningum og upplýs- ingum um Ijósop, Ijósmagn, hraða, linsu- vídd, filmugerðir, framkallara og hver veit hvað. Auðvitað var það Kristján, sem spurði en Kaldal útskýrði jafnóðum. Ég skildi ekki nema einn tiunda af því, sem þeir töluðu um, en ég þykist vita að Kristján hafi lært álíka mikið á þess- JQ — VIKAN 31. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.