Vikan


Vikan - 30.07.1964, Side 23

Vikan - 30.07.1964, Side 23
Á þessari mynd er Greta Garbo aðeins 15 ára en sýnist eldri. Þá var hún hætt skólagöngu og farin að vinna hjá skóverzluninni PUB í Stokkhólmi. 0 Eina myndin, sem til er af föður Gretu Garbo. Hann var veiklund- aður draumóramaður og lagðist í drykkjuskap. Greta Gustavsson varð að léttast um 10 kíló til þess að fá hlutverk Elisabeth Dohna í „Gösta Berlings Saga“ Selmu Lagerlöv. Henni tókst það og þar var Greta Garbo sköpuð. ssjg r- fy§§; Hjá öllum vekur hún drauminn um ást, eina valdið, sem við eigum gegn því illa. En Garbo er sönn, og þess vegna túlkar hún einnig það sárasta af öllu: að ástin getur horfið og skilið okkur ein eftir. Þá horfum við í augu Gretu Garbo, og í sorginni sjáum við þar bros, sem hrærir hjörtu okkar og gefur okkur styrk. Hver er hún í raun og veru? Þegar hún kom til Hollywood tæplega tvítug sagði hún við blaðamennina: ■—■ Ég vil ekki láta það standa einhvers staðar, að ég sé fædd í þessu eða hinu húsinu, að faðir minn og móðir séu þetta eða hitt. Þau eru foreldrar mínir og það ætti að nægja ... Hún hefur aldrei talað um árin, þegar hún ólst upp, en það hefur verið skrifað margt um hana og margir hafa grúskað í því leynd- ardómsfulla myrkri, sem umlykur þau ár. Vitað er, að hún er fædd á Söder í Stokk- hólmi 18. sept. 1905. Hún hét Greta Lovisa Gustavsson og ólst upp í gráum leigukumb- alda við Blekinggötu. Heimilið var fátækt og faðirinn sá fyrir því með vinnu við hitt og þetta. Svo fór honum að ganga heldur betur, hann fékk vinnu við hreinsunardeild borgarinnar og hafði þar með höndum skol- un á vatnsgeymum. í hinni stóru bók sinni um Gretu Garbo, segir ameríski blaðamað- urinn John Bainbrigdes, að faðirinn hafi ver- ið hár, grannur og mjög veiklundaður maður, næstum kvenlegur. Hann var feiminn og hlédrægur og átti erfitt uppdráttar í Stokk- hólmi, en hann var úr Smálöndunum. Konan hans var sterkbyggðari og óhrædd við stór- borgina. Hún var fljót að gleyma grænum gróðri sveitarinnar og varð brátt ein af fyrirferðarmiklu konunum í leigublokkinni við Blekinggöt- una. Greta átti eldri bróður og systur, en hún varð sjálf sterkleg stúlka — svo að það lenti á henni að gæta systkina sinna. Hæggerður faðir hennar undi sér bezt í félagsskap hennar, og oft fóru þau í gönguferðir í umhverfi Söder og þá oftar í átt frá fátækrahverfinu að stóru Málmhúsunum. Frá Fyll- backen, hverfi rétt við bústað þeirra, þar sem umkomuleys- ingjarnir héldu sig, þeir sem orðið höfðu ofdrykkjunni að bráð. Ef til vill er það satt, sem sagt hefur verið, ag Greta hafi gengið þar um og betlað. En minningarnar frá þessum ár- um hafa fylgt henni, og ekki sízt þær sárustu, uppgötvunin um drykkjuskap föður hennar. Hún lauk sjö ára skólagöngu á Katarinaskólanum. Við vit- um að hún var hávaxin eftir aldri og var þess vegna látin sitja aftast í bekknum. Á þeim skólamyndum, sem varðveitzt hafa, sýnist hún fremur þrekvaxin, og venjulega er hún klædd einhverju áberandi og frábrugðnu því sem hinar stúlkurnar báru. Það stafaði af því, að móðir hennar saumaði fötin á hana, og hafði ekki alltaf úr miklu að spila. Á síðari skólamyndunum hefur Greta oft puntað sig fall- egu blómi eða skrautlegum hatti, og hún virðist vera bráð- þroska, alvarleg og ekki alveg laus við framhleypni. f bók sænska rithöfundarins John Wallin um Garbo er að finna skýringu á því. Hún var ekki nema tíu ára gömul, þegar hún fór að vinna sér inn fyrstu peningana sem hárþvottastúlka á rakarastofu á Södermannagatan. í tvö ár vann hún á föstu- dags- og laugardagseftirmiðdögum. Það verður aldrei upplýst, hvað hún sá og heyrði við vinnuna og heldur ekki hvað hún hugsaði um mennina, sem hún aðstoðaði. En tólf ára virðist hún vera eldri en jafnaldrar hennar. Það má geta sér til, að þetta hafi mótað hana. Greta vildi komast burt úr fátæktinni og hafði ákveðið að gerast leik- kona. Meðal eftirlætisleikara hennar voru þeir Chaplin og Douglas Fairbanks, hugrakka ævintýrahetjan með glampandi Framhald á bls. 44. 1. grein Hér hefst skemmtilegur og ýtarlegur greinaflokkur um Gretu Garbo. Greta Garbo er stjarnan mikla, sem aldrei hefur misst ítök sín í hugum kvik- myndaáhorfenda. Þetta áriö greiöa konur sér eins og Garbo, og látlaus og næstum karlmannlegur fatnaður, sem hún er vön að klæðast, er kominn í tízku. Fólk þreytist aldrei á að velta fyrir sér undar- legum lífsferli hennar. VIKAN 31. tbl. — 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.