Vikan - 30.07.1964, Side 27
Hollur og góður
hversdagsmatur
Brauðeggjakaka.
4 sneiðar franskbrauð, 3 egg,
2 dl. mjólk, ca. 75 gr. smjörlíki.
Brauðsneiðarnar skornar i
teninga og steiktar þar til þær
eru stökkar i smjörlíkinu á
pönnu. Eggin og mjólkin þeytt
saman og hellt yfir brauðiS á
pönnunni og siðan steikt þar
til eggjakakan er stíf, en við
vægan hita. Borðuð volg með
sultu.
Hamborgar-kartöflu-
súpa.
1 kg. kartöflur, 2 laukar, 30
gr. hveiti, 30 gr. smjörliki, 1%
1. mjólk, 100 gr. rifinn ostur,
salt, múskat, púrrur eða gras-
laukur.
Kartöflur og laukur soðifi
saman í einum liter af vatni
og síðan marið í gegnum sigti.
Smjörlikið og hveitið bakað upp
og jafnað með mjólkinni, sem
á að vera sjóðandi, kartöflu-
maukið sett út i og allt látið
sjóða í 8 mínútur. Rifna ostin-
um blandað i og súpan krydduð.
Gott er að strá fínsöxuðum púrr-
um eða graslauk yfir.
Grænkálsrönd.
4 franskbrauðssneiðar, ca. 2
dl. mjólk, 40 gr. smjörlíki, 4
egg, salt, pipar, grænkál.
Skorpulausar franskbrauðs-
sneiðar eru bleyttar i mjólkinni
og settar i pott með smjörlikinu
og látið samlagast yfir lágum
hita. Potturinn tekinn af og
þeyttum eggjunum, kryddinu og
grænkálinu blandað saman við.
Sett í vel smurt hringform og
soðið í 30—40 min. Hringurinn
fylltur með hverju sem er, þeg-
ar hann er borinn fram, en eigi
það að vera eingöngu grænmetis-
máltíð, er gott að hafa nóg af
soðnum gulrótum innan i hon-
um.
Venjulegt gúllasch.
14 kg. nautakjöt skorið í smá-
bita og brúnað með söxuðum
lauk i smjörlíki. Kryddað með
salti og papriku og sjóðandi
hellt yfir. Látið sjóða við litinn
hita í klukkutíma. Síðasta kort-
érið er 14 kg. af gulrótarsneið-
um soðið með og púrrur, sem
skornar hafa verið í sneiðar.
Sósulit má bæta í ef þarf og
ef sósan er of þunn er hún jöfn-
uð upp með hveiti. Iíartöflu-
stappa borin með.
Kjöt í dillsósu.
Lambakjöt er soðið þar til
það losnar frá beinunum i vatni,
sem kryddað hefur verið með
3—4 matsk. salti, 5 hvítpipar-
kornum, 1 lárviðarlaufi og ein-
um lauk, fylltum með negulnögl-
um, í hvern líter vatns. Veiðið
kjötið upp úr og siið soðið.
Hellið svolitlu af þvi yfir kjöt-
ið aftur og látið það liggja i
þvi, þar til það er notað. Bakið
up smjör og liveiti og jafnið
það með kjötsoðinu þar til sós-
an er fremur þunn. Pressið saf-
ann úr einni sítrónu og rífið
börkinn og bætið í sósuna og
kryddið síðan með dill eftir
smekk. Berið kjötið fram í sós-
unni og laussoðin lirísgrjón með.
Gott er að hafa grænar baunir,
sem hitaðar hafa verið í smjöri,
með þessum rétti.
Sinnepsfiskur.
Þorsk eða ísuflak skorið í
hæfilega stór stykki og smurð
með elcki of sætu sinnepi, krydd-
uð með salti og pipar og velt
upp úr raspi. Flökin steikt í
helming olíu og helming smjörs,
en pannan ekki of heit. Borið
fram með sitrónusneiðum.
Gulrótarsúpa.
1 saxaður laukur er soðinn í
svolitlu smjörlíki, siðan eru
2 kartöflur, 4 stórar gulrætur
og 1 selleri, allt skorið í smá-
stykki, sett saman við og hrært
í stutta stund. Þá er 114 1. af
vatni bætt í og 1 matsk. kjöt-
krafti, 2 lárviðarlaufum og e.
t.v. svolílilli persilju. Látið sjóða
í hálftíma, en þá er grænmetið
tekið upp úr og marið i gegnum
sigti og sett aftur í pottinn. Jafn-
að upp með smjörbollu og lát-
ið sjóða í 6—8 min. 3 fransk-
brauðssneiðar skornar upp i ten-
inga og þeir brúnaðir i smjörl.
og bornir með súpunni.
Baconrúllur.
14 kg. hakkað kjöt, helzt að
mestu svínakjöt, er blandað með
2 matsk. söxuðum kapers, 2
matsk. söxuðum lauk og 1 matsk.
söxuðu mango cliutney. 2 matsk.
rasp, 1 egg og nokkrar skeiðar
af rjóma látið í og allt hrært út
i frekar þykkt fars, sem búnar
er til úr litlar lengjur og utan
um þær er vafið baconsneiðum.
Rúllunum raðað í smurt gratin-
fat og 2 dl. rjóma, sem blandað
hefur verið í 2 matsk. af kin-
verskri soyu, er hellt yfir, en
fyrst er rctturinn látinn brúnast
dálitið i ofninum. Látið sjóða
við góðan hita (200 gr.) i 30 mín.
og vökvanum öðru hverju ausið
yfir rúllurnar. Steiktar kartöfl-
ur bornar með.
Fiskiflök Bretonne.
Eldfast fat smurt vel og á botn
þess er raðað 2—3 gulrótum
skornum i sneiðar, 14 úr sellerí-
stöng, rifinni á rifjárni, 125 gr.
af skornum sveppum og 1 gróf-
söxuðum lauk, og yfir það er
stráð salti og austurlenzku karr-
ýi. Ofan á þetta eru lögð smá
fiskflök, fallegt er að rúlla þeim
upiJ og 2 dl. af rjóma hellt yfir.
Nokkrir smjörbitar settir á víð
og dreif. Lok er sett á fatið, ef
það er ekki til má nota málm-
pappír og rétturinn bakaður við
jafnan liita í u.þ.b. hálftíma.
Öðru liverju er soðinu ausið
yfir flökin á meðan þau bakast.
í Frakklandi er notuð með þessu
löng brauð, ristað brauð má
lika nota, og svo auðvitað kart-
öflur, ef þess er óskað.
Bökuð epli.
Eplin má baka í ofninum um
leið og fiskiréttinn, þar sem
fiskfatið er lokað. Þau eru flysj-
uð og kjarnahúsið er skorið úr,
en í stað þess er sett blanda af
söxuðum rúsínum, púðursykri
og kanil, ásamt svolitlu smjöri.
Dálitlu af heitu vatni er hellt á
botn fatsins og eplin öðru hverju
ausin mcð því, rneðan þau eru
steikt.
Grænkálssalat.
1 dós af smurosti, 1 matsk.
sitrónusafi, 4 matsk. rjómi, 75
gr. þeyttur rjómi, 4 stór græn-
kálsblöð, 2 epli, 2 matsk. sax-
aðar rúsínur.
Osturinn hrærður út með
rjómanum, sítrónusafanum og
þeytta rjómanum. Grænkálið
saxað mjög smátt og eplin rif-
in á rifjárni, en frekar gróft,
og öllu blandað saman. Smá-
söxuðum rúsínum stráð yfir.
Hvítkálsréttur.
1 hvítkálshöfuð er sneitt i
mjóar lengjur, sem soðnar eru
í 10 mín. i litlu vatni með salati
og dálitlu smjörlíki. Ca. 400 gr.
af skinku er skorið i teninga og
sett til skiptis við hvítkálið í
eldfast mót, en milli laganna er
stráð karrý. Það sem eftir er
af hvitkálssoðinu er blandað í
1 dl. af rjóma og 2 matsk. tómat-
puré, og því hellt yfir kálið, en
efst eru settir smjörbitar á víð
og dreif. Lok eða málmpappír
sett yfir og bakað við jafnan
liita i klukkutima i meðalheit-
um ofni.
Kryddsíldarsalat.
1 dós smurostur, 100 gr. þeytt-
ur rjómi, 3—4 matsk. rauðbeðu-
edik 1 stórt epli, 1 tsk. rifin
piparrót, 3 kryddsildarflök, 2
harðsoðin egg, gúrkusneiðar.
Osturinn cr lirærður með rauð-
beðuedikinu og þeytta rjómanum
blandað varlega saman við. Epl-
ið flysjað og skorið i bita og
sett saman við, sömuleiðis pip-
arrótin. Flökin skorin í bita,
sem lagðir eru á fat og rjóma-
blöndunni liellt yfir. Eggin skor-
in i tvennt, rauðurnar teknar
og muldar yfir rjómann, en hvit-
urnar skornar í hringi, sem lagð-
ir eru efst með gúrkusneiðunum.
Rjómasoönar kartöflur.
% kg, kartöflur, 1 litill lauk-
ur, 2 dl. kjötsoð, 50 gr. smjör-
líki, 1 dl. rjómi, 14 tsk. basilik-
um, livitur pipar.
Kartöflurnar flysjaðar liráar
og skornar í litla bita og lauk-
urinn saxaður smátt, og livort
tveggja síðan soðið þar til það
er meyrt í kjötsoðinu. Síðan er
rjómanum hellt á og kryddað
með piparnum og basilikum. Á-
gætt að hafa með þessu vel
steikt bacon, en það má eins
steikja í ofni við lítinn hita, þótt
það sé venjulega gert ó opinni
pönnu. Medisterpylsur eru lika
ágætar ineð þannig kartöflum.
VIKAN 31. tbl. — 27