Vikan


Vikan - 30.07.1964, Page 29

Vikan - 30.07.1964, Page 29
Framhaidssagan 16. hluti Einkaréltup á íslandi: VIKAN koma upp á yfirborðið og stefna beint á andlit sitt. Hann rykkti sér til hliðar og fálmarinn vafðist utan um vírnetið framan við augu hans. Eftir andartak mundi hann færa sig niður handlegginn eða öxlina og þá yrði það búið. Nú! Hinn fálmar- inn var nú kominn upp á rifjahylk- ið á honum. Næstum án þess að miða, skellti Bond hnífblaðinu nið- ur og þvert. Hann fann að blaðið smaug inn í mjúkt holdið. Svo var hnífurinn næstum rifinn af honum, þegar særður armurinn þeyttist aft- ur ofan í sjóinn. Eitt andartak var eins og bullsyði í sjónum í kring- um hann. Svo sleppti hinn fálmarinn vírnetinu og vafðist um mitti Bonds. Þetta var sárt, því að allar sog- skálarnar sugu af fullum krafti. Bond öskraði þegar sogskálarnar grófust niður í hold hans. Hann hjó aftur og aftur eins og í brjál- æði. Guð, það var verið að rífa úr honum magann! Vírnetið hrist- ist og skókst í átökunum. Undir honum sauð og ólgaði sjórinn. Hann ætlaði aðeins að höggva einu sinni og nú aftan á fálmarann. Það dugði! Fálmarinn sleppti og skauzt niður í vatnið, en eftir voru á hörundi Bonds tuttugu rauðir hringir og það streymdi úr þeim blóðið. Bond hafði ekki tíma til þess að velta þeim fyrir sér. Höfuð skepn- unnar var nú komið upp á yfir- borð sjávarins og augun störðu á hann, rauð, reiðileg og afgangur- inn af fálmurum skepnunnar var á leiðinni að fótum hans, komnir að fótum hans, þeir þrifu [ bux- urnar og hvað sem fyrir varð. Þeir voru að hafa Bond undir. Drógu hann sífellt nær, tommu fyrir tommu. Hann fann að vírnetið var að skerast inn í handarkrikann á honum. Hann fann að það tognaði á hrygglengjunni. Ef hann héldi svona fast mundi hann verða slit- inn í sundur. Nú voru augun, og stór, þríhyrndur goggurinn kominn upp úr vatninu og goggurinn teygð- ist í áttina að fótum hans. Hann átti aðeins eina von, aðeins eina! Hann stakk hnífnum aftur upp f sig og teygði sig niður til þess að ná í vírspjótið. Hann reif það upp úr buxunum, þreif það milli hand- anna og rétti það næstum alveg upp. Hann mundi neyðast til þess að sleppa handfestunni öðrum megin til þess að komast í færi. Ef honum mistækist yrði hann slitinn sundur á netinu. Nú, áður en hann dæi af sárs- auka! Nú! Nú! Bond sleppti alveg handtakinu á vírnum en skellti sér niður og áfram af öllum krafti. Hann sá rétt aðeins í svip þegar endinn á spjótinu hans stakkst inn f miðjuna á öðrum svarta auga- steininum og í sama bili gaus allt hafið í kring um hann og hann fétt aftur á bak niður eftir vírnum, en hékk á hnjánum og það mun- aði ekki nema hársbreidd að and- lit hans færi f kaf. Hvað hafði komið fyrir? Hafði hann blindazt? Hann sá ekkert. Hann sveið í augun og það var hræðilegt slorbragð í munninum á honum. Hann fann að vírinn skarst inn í vöðvana í hnésbótum hans. Svo að hann hlaut að vera lifandi! Hann teygði sig upp og þreifaði sig eftir næsta möskva. Hann náði taki á víhnum og smám saman gat hann rétt svo úr sér að hann sat á netinu. Ljósið tók að ryðja sér leið inn í augu hans á ný. Hann þurrkaði sér í framan með hend- inni Nú gat hann séð. Hann leit á hönd sína. Hún var svört og slepjuð. Hann leit á líkama sinn. Hann var þakinn með svörtu leðjunni og sortinn fyllti sjóinn allt í kring. Þá rann upp Ijós fyrir Bond: — Særð- ur kolkrabbinn hafði tæmt blek- byttuna sína á hann. En hvar var kolkrabbinn. Mundi hann koma aftur. Bond rannsakaði sjóinn. Þar sást ekkert, ekkert nema sortinn. Engin hreyfing. Varla alda. Þá var engan tíma að missa. Kom- ast héðan burt! Burt í hvelli. Hann leit til hægri og vinstri. Til vinstri var skipið, en einnig Dr. No. En til hægri var ekkert. Til þess að reisa þessa vírgirðingu hefðu mennirnir hlotið að koma frá vinstri í áttina frá höfninni. Þar hlyti að vera ein- hvers konar slóð. Bond teygði sig upp í efsta vírinn og þokaði sér eftir sveiflandi vírnetinu í áttina að klettunum um tuttugu metrum burtu. Þessi þefjandi, blæðandi, svarta vera hreyfði haldleggi sína og fæt- ur alveg ósjálfrátt. Hinn hugsandi skyni gæddi helmingur Bonds var ekki lengur hluti af líkama hans. Sá helmingur var á ferli utan við líkamann, eða yfir honum og það var rétt á mörkum að hann hefði nóg samband við þennan fyrrver- andi verustað sinn til þess að kippa f rétta spotta til þess að brúðan dansaði. Bond var eins og maðkur, sem skorinn hefur verið í tvennt, helmingarnir halda báðir áfram. Allt, sem Bond þarfnaðist, var ör- Iftil vissa fyrir því, að það væri til einhvers að halda áfram að lifa. Loksins komst hann að klettun- um. Hann skreið yfir efsta vírinn og niður eftir netinu. Hann horfði eins og í leiðslu ofan í vatnið. Það var svart og jafndjúpt og fyrir inn- an netið. Átti hann að þora það hérna megin? Hann varð! Hann gat ekkert gert fyrr en hann hefði þveg- ið af sér þetta andstyggilega slím og blóð, að ekki sé talað um þessa andstyggilegu slorlykt. Hann fór úr þessum tötrum sínum og hengdi þá upp á vírnetið. Hann leit niður eft- ir líkama sínum, brúnum og hvítum, merktum hér og þar með rauðu. Allt í einu datt honum í hug að þreifa eftir æðaslætti. Hann var hægur en reglulegur. Þessi stöðugi sláttur endurnýjaði lífsvilja hans. Af hverju var hann að hafa áhyggj- ur. Sárin og marblettirnir á líkama hans voru ekkert — bókstaflega ekk- ert. Þau voru Ijót kannske, en ekk- ert var brotið. Innan í rifnu umslag- inu var bréfið heilt, og gangverkið tikkaði eins og alltaf áður. Þetta voru ekkert annað en yfirborðs- skurzlur. Blóðugar minningar, ör- þreyta — en að slíkum meiðslum mundi verða hlegið á sjúkrahúsi. Áfram með þig fíflið þitt! Haltu áfram! Þvoðu þér og vaknaðu. Prísaðu þig sælan Hugsaðu um stúlkuna. Hugsaðu um manninn sem þú verður einhvernveginn að drepa. Haltu dauðahaldi í lífið, eins og þú hélzt áðan í hnífinn. Hættu að vorkenna sjálfum þér. Skiptu þér ekki af því sem er búið og liðið. Komdu þér ofan í vatnið og þvoðu af þér! Tíu mínútum síðar klifraði Bond upp á land, nýþveginn og vatns- greiddur í nýþvegnum, rennblautum fötum. Já, það var eins og hann bjóst við. Mjótt einstigi eftir verkamenn- ina lá niður hinum megin og fyrir klettinn. Úr nágrenninu bárust ýmisleg hljóð og bergmál. Hafnarkrani var að vinna. Hann heyrði breytilegt vélahljóð hans. Það heyrðust ýmis hljóð sem tilheyrðu skipum og hljóðið frá botndælu skipsins sem dældi vatninu stöðugt f höfnina. Bond leit upp í himininn. Hann var fölblár. Gullbrydd ský lopuð- ust yfir sjóndeildarhringinn Hátt uppi yfir honum flugu skarfarnir umhverfis dritfjallið. Það var kom- inn tími til fyrir þá að leggja af stað til dagsverksins. Kannske voru þeir einmitt nú að horfa á fyrstu hópana sem flugu út á sjóinn. Klukkan hlaut að vera um sex. Þetta var dögun dásamlegs dags. Bond fikraði sig varlega eftir einstiginu niður af klettabrúninni. Þegar hann kom fyrir klettinn urðu hljóðin há- værari. Hann skreið síðasta spölinn og gætti þess vandiega að láta enga lausa steina hrynja niður. Hann heyrði rödd kalla og hún var mjög nærri honum: — Allt í lagi? Og svarið nokkru lengra: — Allt í lagi. Það var hert á kranavélinni. Nokkrir metrar í viðbót og nú fyrir hornið, nú! Bond þrýsti sér fast upp að kletta- veggnum og gægðist varlega fyrir hornið. 19. kafli. Steypibað dauðans. Hann horfði lengi á það sem hann sá og færði sig svo aftur fyr- ir hornið. Hann hallaði sér upp að klettunum og beið eftir því að and- ardráttur hans kæmist í samt lag Hann lyfti hnífnum fast upp að augunum og rannsakaði blaðið vandlega. Þegar hann var orðinn ánægður, setti hann hnífinn aftur fyrir sig, undir buxnastrenginn og upp með hrygglengjunni Þar var fljótlegt að grípa til hans, en hann myndi ekki rekast í neitt. Hann velti fyrir sér hvað hann ætti að Framhald á bls. 46. A SfÐASTA ANDARTAKI VAR ENGIN ASTÆÐA TIL AÐ FLÝTA SÉR. BOND STÖÐ FYRIR AFTAN MANNINN OG FANN AF HONUM LYKTINA. HANN HAFÐI TfMA TIL AÐ REIÐA TIL HÖGGS. VXKAN 31. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.