Vikan


Vikan - 26.11.1964, Blaðsíða 40

Vikan - 26.11.1964, Blaðsíða 40
fjölda mörgum smámyndum af stílfærðum húsum. Það mundi ugg- laust teljast snoturleg byrjendaverk og vitna um byrjandi hláku í þessu landi. Sú hláka í listrænum efnum hef- ur víst ekki náð inn yfir þær víðu sléttur Rússlands, ef dæma má eft- ir þeim verkum rússneskra mynd- listarmanna, sem þarna voru. Það var teikning af félaga Lenín í svörtu og hvítu, hreindýr á túndr- unum, líka í svörtu og hvítu og svo man ég eftir einni, af stríðandi félögum á vígvelli. Þar var ekkert nýtt á ferðinni og naumast nokkuð athyglisvert, annað en það, að engin mynd var af traktor og ham- ingjusömu fólki með skóflur. A Norðurlöndum hafa menn alltaf haft þungar áhyggjur af því, hvað þeir eru að gera í París og þarna suðurfrá. Skandinavar vilja ekki láta það sannast á sig, að þeir búi á einhverjum menningar- legum útkjálka og þess vegna leggja sumir full mikla áherzlu á að vera „avant garde"; koma fram með eitthvað, sem ekki gefur til- raunum hinna eftir að minnsta kosti. Hjá þessum frændþjóðum okkar var að finna allmörg skat framhjá markinu og mér eru ekki verk þeirra minnisstæð vegna ágætis þeirra, heldur fremur vegna hins gagnstæða. Daninn Svend Wiig Hansen var til dæmis með stóra sýningu málverka og högg- mynda og það voru einhver leið- inlegustu verk, sem ég sá þarna á Biennalnum. Fransmenn höfðu málverk eftir arkitektinn Le Corbusier sem blóm í hnappagatinu og Picasso átti þar mynd svipaða Guernica; sundur- tættir hestar og menn, hálfhrund- ar byggingar og annað því líkt. Bernard Buffet var ekki með, en annar var þar sem talsvert minnir á hann, Réné Bro.Hann átti þar mynd af nútímastúlku, sem var eitt- hvað talsvert í ætt við kött, en klassiskt landslag gömlu meistar- anna á bak við. Japanir eiga stórkostlegan og sérkennilegan myndlistararf, en nú er þeim mjög í mun að varpa því öllu fyrir róða og elta myndlistar- menn Vesturlanda. Japanska sýn- ingin var hvorki frumleg né á nokk- urn hátt átakamikil, en alveg úr sambandi við japanska myndhefð. Fyrir utan það sem hér er talið, var stór sýningarskáli með nútíma- myndlist úr söfnum. Kenndi þar margra grasa og ólíkra. Skúlptúr- inn var mjög fyrirferðarmikill á þessari sýningu. Mér er minnis- stæðast „II mirakolo", Kraftaverkið, eftir Marino Marini; sligað dýr und- an þunga einhverrar ófreskju, ekki ósvipað „Skuld" eftir Einar Jóns- son, nema hvað þessi mynd var talsvert stílfærð. Þar fyrir utan voru heil kynstur af skúlptúr samansoðn- um úr bílmótorum, karboratorum, reiðhjólahlutum og ýmsu öðru, sem hefur orðið hendi næst. Sum þess- ara „listaverka" voru öll á hjör- og dökkgrænu svo það er ekki við- lit að horfa á það stundinni leng- ur. Og skiptir ef til viil ekki svo miklu máli. Skáldskapur og predikanir að nýju. Calabria á þarna verk, sem hann kallar: „Tlikynning til vorra tíma." Myndin er meira og minna óhlutlæg en afar magnþrungin og gefur hugmynd um mismunandi kynþætti, ógurleg þrengsli, oln- bogaskot og offjölgun. Eins og margir vita, þá málaði Michelangelo fræga mynd af sköp- un mannsins í loftið á Sixtinsku kapellunni í Vatíkaninu,- guð kem- ur aðvífandi og snertir með fingri hendi Adams, gæðir hann lífinu. Tano Festa hefur gert aðra mynd af sköpuninni. Adam og hendi A(\ — VIKAN 48. tbl. guðs eru nákvæmlega eins og hjá Michelangelo, nema hvað guð hef- ur ískyggilega fjarlægzt manninn; það eru tvö svört, óbrúuð bil á milli þeirra, og Adam er vægast sagt vonleysislegur. Hvað er ekki yrkisefni? Greta Garbo hefur orðið málaranum Mas- elli hugstæð. Það er afar dularfull mynd eins og vera ber, en merki- lega góð mynd af Gretu, jafn lítið og sést af henni. Það er sjaldan, að tekið sé á yrkisefnum með húmor, en Venev Storian er undan- tekning. Hann hefur málað mynd úr stríðinu: Fallbyssuskytta með blóm í hendinni hefur í þann veg- inn verið að skjóta niður kirkju- turn. Dýrlingar þjóta til himins upp úr rústunum líkt og eldflaugar. Þeir horfa niður, sumir skelkaðir á svip- inn aðrir hneykslaðir. JEn í farar- broddi fer sá, sem hefur bæði hala og horn. Sem sagt: ítalir mála ógjarnan hreina fleti eða línur. Þeir eru bæði skáld og predikarar og fara skemtilega með hvorttveggja. Pólverjar, Tékkar og Júgóslavar áttu mörg prýðisverk á BIENNALE, verk sem segja sína sögu um breytt viðhorf í þessum járntjaldslöndum. Pólverjum hefur lengi verið lagið að gera góða hluti í myndlist og ég veit ekki til þess að þeir hafi nokkurn tíma látið kúga sig að ráði til þess að mála traktora og hamingjusamt fólk með haka og skóflur, jafnvel ekki undir Stalín. Ungverjaland átti stóran sal með LODKAPUR, REGNKÁPUR með loöfúöri VETRARDRAGTIR, LODHUFUR, HATTAR, HANZKAR OG TÖSKUR Aldrei fallegra úrval -

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.