Vikan


Vikan - 26.11.1964, Síða 43

Vikan - 26.11.1964, Síða 43
mactur KLÆÐIST FÖTUM FRÁ OKKUR Dubuffet, að hann lætur andann gruna meira en augað sér. Útlínan eða sióndeildarhringurinn gaf að vísu hugmynd um hálfhrunið, sund- urskotið hús. Annars var ekkert heillegt form í myndinni. Ekkert til að festa auga á í rauninni. En myndin var ein frábær heild þrátt fyrir það. Vissulega þarf mikla snilli til þess að skapa slíkt verk. Hver er þá staðan á taflborði myndlistarinnar? Því er erfitt að svara. Það er erfitt, ég held næst- um, að ómögulegt sé að fá nokkra þversummu af BIENNALNUM. Þó einhver hefði tekið sig til og mál- að þv( sem næst eins og Leonardo da Vinci, þá hefði það sem bezt getað staðið með hinu allra ný- stárlegasta. Sem betur fer, þá hanga ekki allir á einum og sama snaganum. Yfirgnæfandi meirihluti myndanna var mjög stílfærður eða abstrakt, en eftirlætisverkefni myndlistarmanna virðist vera það, að leita að nýjum leiðum. Eða eru það kannski aðeins örvæntingar- fullar tilraunir til að skera sig úr fjöldanum? Hvort heldur það er, þá er það hugmyndaflugið, grósk- an og rik tilbreyting, sem gerir það eftirminnilegt að sjá sýningu sem þessa. G.S. DETROIT Framhald af bls. 21. en letji til óhófslegs hraða á þjóð- vegum og stuðli þar með að slys- um og dauðsföllum. Um þessar mundir hafa 1,5 milljón Banda- ríkjaborgara beðið bana í bílslys- um frá upphafi þessa farartækis. Því miður er það takmarkað, sem hægt er að gera til að auka öryggi, en verksmiðjurnar verja þó miklum fjármunum til þess að finna einhverja lausn á þvi máli. Brúð- ur í fullri líkamsstærð, búnar alls- konar hárfínum mælitækjum, eru settar í bíla, sem siðan er ekið með ofsahraða á steinveggi. Mæli- tækin hafa sýnt ákveðnar niður- stöður og vegna þessara tilrauna hafa komið fram öryggisatriði eins og skálarstýri, bólstrað mælaborð og öryggisbelti. Það má segja að diskabremsur séu Kka spor [ rétta átt, en þó vega þær engan veginn upp á móti sífellt auknu afli og hraða. Og þau slys, sem leiða af vinneyzlu, ofþreytu, fruntaskap eða óþolinmæði, verður alltaf erfitt að fyrirbyggja með öryggisbúnaði. G. MAGASÁR Framhald af bls. 17. Um kvöldið, þegar Boyce gekk inn í svefnherbergið, hélt hann á viskíglasinu í hendinni. Konan hqns var að Ijúka við að klæðast í sam- kvæmiskjól. — Hvert skal halda? spurði Boyce. — Hitta einn af skjólstæðingum mínum, svaraði hún stutt og lag- gott. Boyce urraði við. — Hvað heitir hann? spurði hann kaldranalega. Hún svaraði ekki og Boyce fékk sér vænan teyg úr glasinu. — Svei mér ef ég ekki held að þú hafir orðið þér úti um fastakunningja, sagði hann. — Og hvað, ef svo væri? varð henni að orði. — Hef ég kannski ekki fullt leyfi til þess, þegar það er tekið með í reikninginn hve þú átt þér margar fastavinkonur? — Hvaða vinkonur? hreytti hann út úr sér. — Þú hefur ekki minnstu hugmynd um hvað þú ert að segja. — Auðvitað ekki, svaraði Jean hæðnislega. — Auðvitað álít ég, að allir þessir reikningar frá blóma- verzlunum, veitingahúsum og skart- gripasölum séu aðeins kostnaðar- liður i sambandi við rekstur fast- eingasölunnar. — Einmitt, sagði Boyce. — Það hefur kostnað í för með sér að reka slíkt fyrirtæki. — Veit ég vel, varð Jean að orði um leið og hún seildist eftir handtösku sinni. — Þú skalt ekki gera þér það ómak að vaka eftir mér. Eg kem áreiðanlega seint heim. Mjög seint . . . Svefnherbergishurðin féll að stöfum á hæla henni. Boyce grýtti viskíglasinu, rauður af reiði, í dyra- stafinn af sliku afli, að það fór ( þúsund mola. Afbragð, elskan min, hugsaði hann, en þú skalt þurfa að leggja þig alla fram til að snúa á mig. Hann gekk að símanum og hringdi. — Halló, svaraði lág kven- mannsrödd. — Lana . . . það er Boyce. Ertu ein heima? — Já, vinur minn. — Farðu ekki neitt. Ég er að koma. Hann hafði fataskipti. Lana var ekki beinlínis stórkostleg, það varð hann að viðurkenna, en hún var hógvær og auðveld viðfangs og það hefur líka sína kosti. Það var VIKAN 48. tbl. —

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.