Vikan - 10.12.1964, Side 2
I fullri alvöru:
Misbeiting
í skjóli laga
Það er mál manna, að fátt
kyndi undir verðbólgunni svo
sem byggingarkostnaðurinn. Stór
bluti þjóðarinnar stynur undir
drápsklyfjum hans; hann sýkir
lit frá sér svo allt kerfið er und-
ir lagt. Byggingarkostnaðurinn
ákvarðast af tvennu: Annars veg-
ar verði á byggingarvörum og
hins vegar vinnulaunum. Eink-
um þar liggur meinsemdin graf-
in, sem stjórnarvöldin verða að
uppræta.
í sambandi við nýlega afstaðið
verkfall prentara var á það bent,
að ekki væri það merkileg stétt,
sem stofnaði aðstöðu iðnaðar
síns i voða. Hvað má þá segja
um þær stéttir, sem stofna fjár-
málum þjóðarbúsins í voða?
fðnaðarmannalöggjöfin átti á
sínum tíma að verða til jiess að
vcrnda liagsmuni þeirra manna,
sem legðu á sig nám í iðngrein-
um sinum. í skjóli þessara laga
þrifst nú þvílík ósvifni, að það
fer að verða tímabært, að athuga
gaumgæfilega, livort þessi lög
þjóni tilgangi sinum.
Aðstaða hinna ýmsu iðngreina
er mjög ólílc. í sumum þeirra
er til dæmis afar erfitt að koma
við hinum illræmda uppmæling-
artaxta. En þær stéttir eða rétt-
ara sagt klíkur, sem í skjóli laga
geta ákveðið það sem þeim
sýnist og jafnvel lokað fyrir
inngöngu nýrra meðlima, þær
eru eiris og hver önnur mein-
semd í þjóðarlíkamanum, sem
stjórnarvöldunum ber skylda til
að reyna að lækna.
Þýðingarmesta sporið til þess
að stöðva verðbólguna, væri án
efa það að koma í veg fyrir það
rán, sem húsbyggjendur eru
beittir og lækka þar með bygg-
ingarkostnaðinn. Ef iðnaðar-
mannalöggjöfin yrði felld úr
gildi, mundi talsverður fjöldi
svonefndra fúskara koma inn í
starfsgreinar eins og múrverk
og húsasmíði. Ef menn vildu
heldur fá í vinnu faglærða menn,
þá þeir um það. En úr því nnmdi
ekki þýða neift fyrir einn múr-
ara að segja: Heyrðu góði, það
eru tiu húsbyggjendur sem bjóða
í mig. Við skulum bæta svo og
svo miklu ofan á uppmælingar-
taxtann og við skulum stela svo
Framhald á bls. 50.
GEFJUN bydur nýja þjónustu !
Fáict þér fatnad vid ydar hæfi ?
>0 Vér saumum fyrir ydur nskasniíid
Saumum adeins ur 1.flokks efnum
Klæískerar sja um þjonustuna
\/£r nRrum bad möaulfiat
GÆ Ð I