Vikan


Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 41

Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 41
hvort þeir gætu slökkt. Hann veifaði með hendinni til bílanna, sem runnu strax af stað í áttina að eldinum, með vélar- gný og sírennuvæli. Þeir óku eins hratt og þeir komust, tveir risastór- ir bílar beint framan að vélinni en sá þriðji nokkru minni sveigði aðeins til hliðar og staðnæmdist með hemla'skri um 20 metra frá henni cn á móts við stjórnklefa vélarinnar. Út úr þeim bíl stukku tveir msr.n, grímuklæddir og í vönduðum hlífð- arfötum, þrifu málmstiga, sem var aftan á bílnum og hlupu beint að eldhafinu — yfir logandi iörðina og stefndu beint til stjórnklefans. Á msðan höfðu stóru bílarnir tveir stefnt beint á vélina og gusuðu iafnframt fram úr sér þykkum bun- um af kvoðu, sem lagðist yfir eld- inn og kæfði hann iafnóðum og hana bar niður. Efst uppi á bíl- unum og fremst yfir stýrishúsinu voru tvær stórar b/ssur, en við þær stóðu vel varðir menn og stiórn- uðu kvoðubunum, sem þeyttust úr þeim langt fram fyrir bílinn og yfir vélina. Þeir beindu byssunum að stjórnkleíanum, og það stóðst á endum, að um leið og björgunar- mennirnir lögðu stigann að vélinni, náðu kvoðubunurnar þangað og slökktu eldinn samstundis. Biörgunarmennirnir hlupu upp stigann og opnuðu stiórnklefann, þótt eldtungurnar stæðu þaðan út, og um leið beindu byssustióararnir kvoðunni þangað, og drápu eld- inn jafnskiótt. Björgunarmennirnir hikuðu ekki andartak, en stukku niður í klefann og héldust þar við smástund, sem hefði átt að nægja til að losa flugmann þaðan út. Síðan fóru þeir út aftur — það var engin brúða með í leiknum að þessu sinni — og gengu burt, því þeirra starfi var lokið. En áfram var þykkri, gráleitri kvoðunni beint að eldinum, og nú voru komnir fleiri menn með grennri slöngur frá bílunum og hlupu allt í kringum eldinn og slökktu smærri elda, sem leyndust hér og hvar. Loks var allur eldur drepinn og ekkert eftir nema sjóðheitur og svartur vélarskrokkurinn, og blá- hvít gufa, sem lagði undan vindi. Ég leti á klukkuna. Það voru liðnar 26 sekúndur frá því árásar- merkið var gefið. ^ FRÁ NAP0LE0N TIL NÚTÍMANS Framhald af bls. 13. — 1890. Konurnar gengu þá í stífu lífstykki, sem ýtti brjóst- unum nœstum upp að höku, en aftan á sig settu þær lítinn púða úr hrossliári, svokallaðan „tour- nure“. Karlmennirnir láta ekki hugmyndaflugið hlaupa eins með sig í gönur, heldur klæð- ast sjakett og „diplomat“, fá sér stráhatt á sumrin og linjá- buxur sem sportklæðnað. Hagsýn húsmóðir kaupir heimilistækin í HEKLU KENWOOD hrærivélin er til í ýmsum stærðum og við alira hæfi. — Kynnist SERVIS og þér kaupið SERVIS. SERVIS þvottavélin er alit annað og miklu meira en venjuleg hrærivél. Hún er fullkomn- asta og bezta hjálp húsmóðurinn- ar í eldhúsinu. BABY strauvélin er hentug og hagkvæm heimilis- hjálp, sem léttir af húsmóðurinni hinu ótrúlegasta erfiði. hæfir hvers manns pyngju og þörfum fjölskyldunn- ar. — Kynnist kostum KELVINATOR. KELVINATOR kæliskápurinn VIÐ BJÓÐUM YÐUR FULLKOMNA VIÐGERÐA- OG VARAHLUTAÞJÓNUSTU Á OFANGREINDUM TÆKJUM. HÖFUM NÚ ÞEGAR YFIR 20 ÁRA REYNSLU í SÖLU HEIMILISTÆKJA. VIKAN 50. tbl. 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.