Vikan


Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 33

Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 33
glóandi augunum í kringum sig. Þannig gekk það kvöld eftir kvöld, og Andrés var orðinn svo uppnæmur, aÖ ekki hefði þurft nema kattarmjálm til að hann hrykki lit af mómeisnum. En til þess kom ekki, því að kisa var bannfærð í bænum; Andrés varS aS fara lit í fjós, ef hann langaði til að strjúka henni og lieyra hana mala. Þegar komiS var fram á haust, gerðist það einn daginn, að Andrés tók sig til og gekk kring- um bæinn, hvern hringinn eftir annan og öfugt við það, sem hann hafði gengið um vorið. Ekki þar fyrir, að liann væri gripinn einhverju ósjálfræði; hann vissi mætavel hvað hann hafðist að. AnnaS mál var svo það, að þegar liann kom inn úr dyrunum að sjöunda hring lokn- um, þá stóð eiginkona lians ljós- lifandi þar inni og hætti mó á kabyssuna i ergi og gríð. Og svo voru þá öndótt og græn- glóandi augun, sem hún festi á eiginmann sinn, að hann hrökkl- aðist öfugur út aftur. Þá labbaði hann sig til Péturs nágranna síns, tvisteig lengi og nagaöi á sér neglurnar. —- Gæti ég bara losnaS við hana, tautaði hann. Gæti ég bara.... Hann þagði við; sá þó um seinan væri, að hann liafði talaS af sér. Og honum var nú nauðugur einn kostur að segja nágranna sínum alla söguna, hve grátt hann hafðj verið leikinn, þegar honum var gerð slík forsending og væri þó lakast, að liann sæi ekki nokkurt ráð til að losna við hana aftur. Þegar hann hafði leyst þann- ig frá skjóðunni, sátu þeir þegj- andi langa hríð, grannarnir, og hugsuðu í erg og gríð. Þann- ig sátu þeir lengi kvölds og loks var Andrés orðinn svo glorsolt- inn, að liann bað um brauðsneið. — Helzt með sýrópi á, sagði hann; ég veit ekki hver reiS- innar ósköp ég lief keypt af sýrópi síðan hún kom á heimil- ið, og þó er mér eiður sær, að ég hef ekki fengið bragð. Hún hámar það allt í sig sjálf. Og það kom grátstafur i röddina. — Sagðirðu sýróp, hrópaði Pétur upp yfir sig. Andrés kvað honum ekki liafa misheyrzt. Tiundaði siðan fyrir honum allar skjóluferðirnar og lýsti því skýrt og skilmerkilega, hvernig forynjan ræki löngu- töngina ofan í sýrópið, sleikti hana og sygi allan guðslangan daginn og ætlaði af göflunum að ganga, væri ekki botnhylur • í skjólunni af þeirri ódáinsfæðu. ÞaS var ekki einleikið með þá græðgi, maður guðs og lifandi, frekar en annað i fari hennar. — Já, en þarna höfum við einmitt lausnina, sagði nágrann- inn Pétur. Nú skal ég kenna þér ráð, lagsmaður. Næst, þegar hún sendir þig með skjóluna til kaupmannsins, stingurðu bláa fleygnum á þig. Svo færðu á hann sýróp, ekki samt meira en svo að það liylji botninn, en skilur skjóluna eftir í búðinni. Þegar heim kemur, segirðu kerlingunni, að sýrópið hafi verið gersamlega uppgengið; það hafi verið rétt fyrir náð, að þú fékkst þessa smálögg á pelann hjá kaupmanninum. Að svo mæltu seturðu fleyginn á eldhúsborðið, gengur út og lokar á eftir þér. En þú ferð ekki langt, ekki nema út fyrir dyrnar, og fylgdist svo með öllu gegnum skráargatið, sem forynjan að- hefst við eldhússborðið. — Hún lét mig troða í skrá- argatið, maldaði Andrés í mó- inn. — Er þér alvara, að þú vilj- ir losna við skassið? spurði Pétur. — Bara að liún finni ekki dragsúginn; þá er hætt við að hana fari að gruna eitthvað, sagði Andrés. -—- Ekki þarftu að óttast það, sagði nágranninn Pétur. Sé hún eins gráðug í sýrópið og þú segir, liefur hún engan hemil á sér, vertu viss. En svo verð- urðu lika að hafa snör liand- tök lirinda upp hurðinni og gripa fyrir stútinn um leið og hún skriður ofan i fleyginn og skrúfa svo liettuna á hann. Tveim dögum siðar sendi sý græneygða Andrés enn af stað með sýrópsskjóluna; hann stakk á sig fleygnum, svo að hún sá ekki til, rölti síðan til kaup- mannsins og fór að öllu eins og nágranninn Pétur hafði ráðlagt honum. Þegar lieim kom, setti hann bláa fleyginn með sýróps- lögginni á eldhúsborðið, með þeim formála, sem Pétur hafði lagt honum í munn, snaraðist síðan út, lokaði dyrunum á eftir sér og tók sér stöðu við skráargatið. Eftir stutta stund heyrði hann suð og muldur fyrir innan, en það var hljóðið, sem kerling gaf frá sér, þegar hana langaði í sýróp. Andrés hélt niðri í sér andanum — þarna gekk hún að eldhússborðinu og stakk fingri ofan í stútinn á fleygnum, en árangurslaust, hún náði ekki einu sinni að snerta sýrópslögg- ina með blánöglinni. Og nú tók hún að suða og muldra eins og randafluga og loks að gera sig minni, þegar hún sá að ekk- ert annað dugði. Andrési til mikillar ánægju gekk henni það ótrúlega greitt; honum hefði varla unnizt timi -.HS Ný hljómplata Hæggeng hljómplata með tveimur öndvegismönnum íslenzkra fræða og bókmennta, prófessorunum Sigurði Nordal og Jóni Helgasyni, er nýkomin á sölumarkað. Lesa þeir sýnishorn úr verkum sínum, Sigurður óbundið mál, Jón bundið. Þetta eru gullkorn úr íslenzkum bókmenntum, og gefa eigin raddir höf- unda þeim ómetanlegt gildi. Ijómjiiai með upplestri þjóðskáldanna tveggja, Halldóri Laxness og Davíð Stefánssyni, er nýlega komin í verzlanir. Með henni mun andi þeirra og raddir lifa lengst okkar á meðal. Allir unnendur íslenzkra nútímabókmennta þurfa að eignast þennan þjóðar- dýrgrip. VELJIÐ VINSÆLAR GJAFIR. - VELJIÐ GÓÐA HLJÓMPLÖTU. Fálkinn h.f. Hljómplötudeild — Laugaveg 24 — Sími 18670. VIKAN 50. tbl. — 2«)

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.