Vikan


Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 11

Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 11
á, að hirð Iians væri sú glæsileg- asta, seni enn hefði þekkzt i ver- öldinni. Keisarafrúin stnddi hann með ráði og dáð i þessu efni, og það munaði ekki lítið um það. Kreolastúlkan Marie- Rose Tascher, siðar Josephine keisaradrottning, frá eyjunni Martinique, hafði komizt vel á- fram. Hún bar merki suðræns heimkynnis síns, blóðheit og á- striðufull og skínandi fögur. Fyrri maður hennar, Alexander nögl, og keisaradrottningin jós út peningum til fatakaupa — og til að kaupa sjöl. Sjöl í öllum litum, efnum og gerðum voru hrein ástríða hennar. Hún átti meðal annars 60 kasmirsjöl, og hún vafði þeim um sig, og dró þau í slóða og lék allar kúnstir með þeim. . . . Konurnar i Evr- ópu fylgdu fordæmi hennar. 'Beltið uppundir brjóstum var í tízku allan Empire-timann. Karlmennirnir voru i fötum, UNÚTÍNANS de Beauharnais, greifi, varð eitt af fórnarlömbum fallöxinnar, en Josephine komst lifs af og kastaði sér út í taumlaust skemmtanalíf Parisarborgar. Þar hitti liún hinn tuttugu og sex ára gamla hersliöfðingja, Bonaparte, sem varð viti sinu fjær af ást til hennar. Þau voru í hjónabandi í þrettán ár og fimm af þeim var Josephine keisaradrottning, og á þeim tíma hafði hún mikil áhrif á tízkuna. Að nokkru leyti ákvað keisar- inn, hverju liún skyldi klæðast, og i enn ríkara mæli réði tizku- kóngurinn Le Roy klæðaburði hennar, og má segja, að hún liafi verið alveg á valdi hans í þeim efnum. Keisarinn skar ekkert við sem minntu á kjólfötin nú á tim- um og voru í siðum, þröngum buxurn og með háan hatt. Á árunum milli 1800 og 1816 tókst enskum spjátrungi, Georg Bryan Brummel, að ráða lögum og lofum i tízkuheiminum. Hann var orðinn uppgefinn á klæða- burði prinsins af Wales og hirð- mannanna við ensku hirðina. Hárgreiðsla þeirra var smekk- laus og brokadefötin þeirra illa saumuð. Á afmælisdansleik prinsins kom Brummel fram með alveg nýja herratízku, tizku, sem er grundvöllur nútíma karl- mannafatnaðar. Hann kom til veizlunnar í siðum, svörtum buxum í stað hnébuxna. í stað pífukragans úr knipplingum bar hann hvitan, stífaðan flibba. Brummel skapaði tízku fullkom- innar glæsimennsku, og henni er ekki liægt að fylgja, nema nota ýtrasta hreinlæti. Það má þvi þakka Brummel þann sið, að fólk fór að fara reglulega i bað FRÁ BIEDERMEIER TIL DAGS- INS í DAG Tveir smámunalegir brodd- borgarar, Biedermann og Bumm- elmaier litu dagsins Ijós í grín- blaðinu „Fliegende Blatter“ ár- ið 1848, og þar af er dregið orð- ið Biedermeier eða Biedermai- er. Það var notað sem háðsyrði yfir „notalegt“ andrúmsloftið, sem nú ruddi sér rúms. Allir vildu hafa það þægilegt, og það varð til þess, að beltið komst aftur á sinn rétta stað, í mittið. Þess í stað varð lögð áherzla á skinkuermar, örmjjótt mitti og tímaglasformið. Skorsteins- hattar og frakkar, sem lögðust að likamanum, var tillag karl- mannanna til Biederineiertízk- unnar, en hún stóð í mestum blóma i Þýzkalandi. í Frakklandi var þessi tizka kölluð „Louis Pliilippe“ eftir borgarakónginum, sem rikti milli 1830 og 1848. Rómantikin blómstrar sem aldrei fyrr, en frönsku liirðinni tekst ekki á þesum tima að liafa áhrif á Evróputízkuna. Það er fyrst með Napoleon keisara þriðja og - 11 VIKAN 50. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.