Vikan


Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 20

Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 20
Lauslát stúlka er „Mamma", en ef þær búa í föstu sambandi við sama manninn eru þær „Gömlu konurnar". Hér er Jim Moran með gömlu konunni (eiginkonunni) sinni, sem heitir Ann. „Englarnir" og félagar úr svipuðum félagsskap eru hér við jarðarför eins félagans úr Hayward-deildinni, sem lét lífið í hnífaslag. Ed Wiley og eiginkona Sonny Bargers. félagsgjöld. Þeir verða að vera í einkennisbúningum, nota sérstaka gerð mótorhjóla, verða að mæta reglulega á fundum, mega ekki ganga í aðra klúbba og verða að hlýða foringjunum skilyrðislaust. Þær reglur sem „Englarnir" verða að undirgangast mundu vekja hroll hjá þjálfuðum aftökusveitum. Svo eru það kynferðismálin, þar eru „Englarnir" heldur óhrjáleg- ir í sjálfræði sínu. Litlar raunalegar stúlkur elta þá í hópum, yfirleitt eru það unglingar innan við tvítugt. Það er um það bil ein stúlka á hverja fjóra til fimm „Engla" og samskiptin inn á við eru hrylli- leg. Ef ung stúlka vill vera mamma og draga lest á eftir sér, sem þýðir að hún er til við hvern sem er, þá er hún mjög vel séður gestur f hvaða „Engla" partýi sem er. Þær eru sem betur fer ekki margar enda endast þær ekki lengi. Stundum eru þær boðnar upp og seldar fyrir eitt gallon af bensíni, pakka af sígarettum og allt niður í tólf cent. Þær stúlkur sem „Englarnir" halda mest upp á kalla þeir „gömlu konurnar" sínar. „Gamla konan" er stúlka sem tilheyrir aðeins ein- um, og oft er hún gift honum og elur honum börn. Larry Wallace, lögregluforingi minntist þess að hafa brotizt inn í eitt af þessum „Engla" hreiðrum til að bjarga nokkrum börnum sem bjuggu þar með mæðrum sinum og nokkrum „Englum" og lifðu á bjór og cornflakes, í íbúð sem var yfirfull af olíudósum, vélahlutum, óhreinum diskum, rusli, tómum bjórdósum og óhreinum rúmfötum. 2Q VIKAN 4. tbl. Wallace fylgist með „Englunum" þegar þeir færa sig stað úr stað, flytja inn í íbúðir eða húsaskrifli í sóðalegum hverfum, kannske allt að því tólf piltar og tvær til þrjár stúlkur. Svo býr það á sama stað í tvær til þrjár vikur 'og flytur svo á svipaða staði í öðru hverfi. Það er mjög auðvelt að fylgja þeim eftir, því að þeir eru alltaf margir saman og fara með geysilegum hávaða. „Okkar á milli sagt eru þeir hreinn viðbjóður", segir Wallace. „Svo er heldur ekki hægt að gleyma þeim, þeir verða að láta svona, geta ekki annað". Þegar ég heimsótti Blue Baze, var það einn sem var mjög áfjáður í að tala við mig og það er sjaldgæft að þeir vilji segja hvaðan þeir komi og hvað þeir hafi fyrir stafni. Hann hét Alvin Ray, Ijóshærður, fölleitur risi, foringi Fresno-deildarinnar. Hann sagði mér að hitta sig í Fresno, ég gæti fengið upplýsingar um dvalarstað sinn á bensín- stöðinni. Eg lét verða af því, en enginn þóttist kannast við hann eða fylgd- arlið hans. Ég fékk þó að vita að þeir hefðu verið í húskofa fyrir ut- an bæinn, en hefðu verið reknir þaðan fyrir nokkru. Ég fann húsið og fór inn. Það var Ijót sjón sem blasti við mér. í herbergi sem einu sinni hafði verið dagstofa, var allt [ hrærigraut. Hvert einasta húsgagn brotið í spón og lá innan um annað drasl, glerbrot, fatadruslur, tóm- ar dósir, vín og bjórflöskur, leirtau og tóma kassa. Hver einasta hurð var rifin af hjörunum og stór göt voru þar sem loftræstingartæki höfðu verið rifin niður. Orðið „lögga" var krafsað með stórum, rauðum stöf- um, yfir rúmstæðunum og hafði verið notað sem skotmark fyrir tóm-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.