Vikan


Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 22

Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 22
Ringó Starr Munið þið eftir myndavélinni hans Ringó í kvik- myndinni „A Hard Day’s Night“? Ef ekki, þá skal þess getið í upphafi þessa máls, að Ringó tronnnu- bítill er mjög áhugasamur um Ijósmyndun rétt eins og bítlabræður hans þrír, Jón, Páll og Georg. Nú ætlar Ringó sjálfur að segja okkur frá þessu hugðar- efni sínu. Frásögnin hans er í léttum dúr og ber vott um allgóða kímnigáfu. Hann segir: m»’ ■« g tók fyrstu ljósmyndina, þegar ég var MKt!, mánaða gamall. Auk þess sem ég tók hana, borðaði ég hana líka, en þar var ég mjög eigingjarn, því að það var ljótt gat í fjölskyldumyndaalbúmi móður minn- ar í langan tíma á eftir. Það var ekki falið fyrr en faðir minn fór á stúfana og tók mynd af mér þar sem ég var að reyna að sitja kjölturakka nágrannans. Ég reyndi að taka aðra mynd mína um það bil ellefu árum síðar. En forstjóri kvik- myndahússins vildi ekki leyfa mér það. Það var sem sé mynd af Brigitte Bardot í líkams- stærð, þar sem hún auglýsti myndina, sem var í kvikmyndahúsinu. Mér var mikið í mun að taka hana með mér heim, því að ég var viss um, að hún mundi bæta mjög veggfóðrið heima hjá mér. Nóg um það. Það sem ég er í rauninni að reyna áð benda á er það, að ég byrjaði að fitla við ljósmyndavél á frumbernskuár- unum. Ég byrjaði að lemja í trommur — ég sló taktinn á niðursuðudósir, áður en ég hafði nógu margar tennur til þess að geta sagt Gene Krupa. Einhvern tíma á fyrstu táningaárunum fékk ég ljósmyndabakteríuna. Þið vitið, hvernig það er: undirskriftirnar í myndaal- búminu voru eitthvað á þessa leið: „pabbi í garðinum" eða „mamma og pabbi að busla. í sjónum" eða „Fred, vinur minn, og hund- urinn Bonzo“. Það er varla hægt að flokka slíkar myndir undir alvarlega ljósrnynda- töku. Áhuga minn á að skoða ljósmyndir hlýt- ur að hafa vaknað, þegar ég byrjaði að leika á trommur með ýmsum hljómsveitum Framhald á bls. 36. ☆"☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆*☆☆☆☆☆☆☆ ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆■☆•&■*,!).*,!,.■*.☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ Chuck Berry vinsælli nú en nokkru sinni fyrr Charles Edward Berry, fæddur í október 1931 í St. Louis, er sennilega betur þekkt- ur undir nafninu Chuck Berry. Hann lærði að leika á gítar meðan hann var í gagn- fræðaskóla, en árið 1952 ákvað hann að stofna eigin hljómsveit. Þremur árum síð- ar fékk hann tækifæri til að leika inn á hljómplötu. Lagið, sem hann hafði að sjálf- sögðu samið sjálfur, hét Maybellene og það komst óðara ofarlega á vinsældarlista, ekki sízt sökum þess, að stíll hans var talsvert frábrugðinn því, sem gerðist með öðrum hljómsveitum. Fleiri plötur sigldu í kjölfarið. Á næstu árum voru lög Chuck Berry tíðum á vinsældalistanum; til dæmis má nefna hin þekktu lög „Roll over Beethoven“ og „Rock and Roll music“. Fyrsta kvikmynd, sem Chuck Berry kom fram í hét „Rock, rock, rock“. Því næst komu kvikmyndirnar „Mr. Rock n‘roll“ og „Go, Johnnie Go“, en í þeirri mynd söng hann m.a. og lék lagið „Johnnie B. Goode“. Chuck Berry vekur alltaf kátínu, þegar hann kemur fram. Sviðsframkoma hans þykir óvenjuleg og spaugileg á margan hátt. Textarnir við lögin hans bera líka vott um ríka kímnigáfu. Einn af mörgum textum hans er til dæmis á þessa leið , lauslegri þýðingu: „Að lokum einn með stúlkunni í bílnum, en — æ, hver skramb- inn — ég gat ekki losað um öryggisbeltið“! Árið 1958 varð Chuck Berry fyrir hryggilegu áfalli. Hann strauk frá St. Louis Framhald á bls. 36. 22 VIKAN 4. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.