Vikan


Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 24

Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 24
efftir Sergeanne Golon — Fyrst heyrði ég ekki orðaskil. Svo smáhækkaði húsmóðir mín röddina, hún var svo reið. Þá heyrði ég hana segja: — Annaðhvort er Þessi kona norn, eða La Voisin hefur leikið á okkur. Allar tilraunir hafa brugðizt. Hún hlýtur að hafa verið vöruð einhvernveginn við. Hver varar hana við? Þetta verður að taka enda. Þú ferð til La Voisin og segir henni, að nú sé of langt gengið. Ég hef borgað henni mikið. Annaðhvort finnur hún eitthvað, sem hefur rétt áhrif, eða hún skal fá að borga sjálf. Ég skal skrifa henni, það gerir hana kannske hrædda. — Hún settist við borðið og skrifaði bréf- sem hún rétti Duchesne til að færa La Voisin: — Sýndu henni þetta bréf, sagði hún. — Þegar hún hefur lesið það og skilið hversu reið ég er, brenndu þá blaðið í kertisloga. Farðu ekki, fyrr en hún hefur látið þig hafa það, sem við þörfnumst. Bíddu, hér er vasaklútur, sem er eign þú veizt. Hirðsveinn- inn, sem tók hann upp, rétti mér hann og hélt að ég ætti hann. Mér hefur ekki tekizt að komast í samband við neina af þjónustustúlkum hennar, síðan Thérése þaut héðan út, eins og andskotinn væri á hæl- unum á henni. Þar að auki hefur hún fáa þjóna og ekkert fylgdarlið. Hún er undarleg kona. Ég veit ekki, hvað konungurinn sér í henni, nema náttúrlega fegurðina. — Hún var að tala um yður, Madame. — Ég býst við þvi. Hvenær á Duchesne að hitta La Voisin? — 1 kvöld. — Hvenær? Hvar? — Á miðnætti, í kránni Gullna hornið, afskekktum stað milli Parisar og Saint-Denis. La Voisin gengur þangað heiman að frá sér i Ville- neuve. Það er ekki langt. — Jæja, þér hafið orðið mér að gagni, stúlka min. Ég skal reyna að gleyma því um stund, hve þér hafið næma fingurgóma. Nú erum við komnar til Saint-Germain. Hér förum við út, en ég vil ekki að neinn sjái okkur saman. Setjið svolítið púður á yður og kinnalit, þér eruð hræðilega föl. Mademoiselle Desæillet reyndi að laga útlit sitt. Hún stamaði þakk- ir og hét tryggð, stökk svo út úr vagninum og tók til fótanna. Angelique var hugsi, meðan hún horfði á hana hverfa eins og bleikt fiðrildi í vorljósinu. Svo rétti hún úr sér og rak höfuðið út um vagn- gluggann. — Til Parísar! hrópaði hún til ekilsins. Þegar hún var komin í þykkt pils og vaðmálsblússu og hafði bundið hárið upp með svörtum satínklút, eins og afgreiðslustúlka, sendi hún eftir „Sverðfinni”, Malbrant. Hún hafði áður látið sækja hann til Saint- Cloud, þótt hún skildi þar með Florimond og djáknann eftir í hinum vafasama félagsskap við hirð Monsieur. Þegar hann kom til íbúðar hennar og sá aðeins látlaust klædda konu, lá við að honum brygði, þegar hann heyrði rödd Madame du Plessis- Belliére koma innan úr fötunum. — Malbrant, mig langar að biðja þig að koma með mér. — Þér eruð svo sannarlega vel dulbúin, Madame. — Á þeim stað sem við ætlum nú að heimsækja er skrautklæðnaður ekki viðeigandi. Ég sé að þú ert með sverð. Taktu einnig með þér skylmingasverð og skammbyssu, farðu síðan og finndu Flipot og biðið mín svo í sundinu bak við húsið. Ég kem til ykkar í gegnum dyrnar á gróðurhúsinu. — Sem yður þóknast, Madame. Litlu síðar voru þau komin í útjaðar Saint-Denis, Malbrant með Angelique fyrir aftan sig á hesti, en Flipot trítlaði á eftir þeim. Þau námu staðar framan við dimma krá. — Skildu hestinn eftir hér, Sverðfinnur, og láttu einn knsepukarl- inn hafa écu fyrir að líta eftir honum. Annars komumst við aldrei til baka. Hestar hverfa mjög gjarnan hér um slððir. Maðurinn gerði eins og hún bað hann og íylgdi henni. Hann spurði engra spurninga, tuggði aðeins endana á skegginu og muldraði eitthvað 24 VIKAN 4. tbl. um ójafnar götuhellurnar, sem hér náðu ekki að þorna, þrátt fyrir heita geisla sólarinnar. Ef til vill var hinn gamli skylmingamaður ekki svo framandi í þessu hverfi. Það var ekkert líklegra, en að hann hefði átt hér eitt eða tvö ævintýri á hermennskuárum sínum. Ekki langt frá staðnum, sem þau voru á, stóð rauðmáluð trémynd af Eilífi Föður, verndara betlaranna. Flipot íéll fram og veitti honum lotningu sína, glaður i bragði. Hér átti hann heima. Djúpt inni í stóru leir- og steinhöllinni var Stóri-Coesre, Trjábotn. Aðstoðarmenn hans voru nógu margir til að ílytja hann hvert sem hann vildi fara í gömlum, brotnum stól, með blómaáklæði og gyllingu, en þetta hvorttveggja var næstum ósýnilegt fyrir skít. En Trjábotn vildi sjaldan fara neitt. Myrkrið í hreysi hans var svo Þétt, að jafnvel þegar sólin skein sem glaðast, varð að hafa olíulampana logandi. Trjábotn vildi hafa þetta þannig. Hann hafði andstyggð á ljósinu og vildi allt frem- ur en iáta fara illa um sig. Það var ekki auðvelt að komast til hans. Að minnsta kosti tuttugu sinnum voru gestirnir stöðvaðir af varðmönnum, sem spurðu, hvern fjandann þau vildu. Flipot sagði þeim inngangs- orðið. Að lokum stóð Angelique írammi fyrir honum. Hún var með úttroðna pyngju, sem hún ætlaði að færa honum, en Trjábotn leit aðeins á hana með ásökunaraugum. — Mikið var! sagði hann. — Mikið var! — Þú virðist ekki vera mjög ánægður að sjá mig, Trjábotn. Hef ég ekki alltaf sent þér það sem þú hefur þurft með? Hafa ekki þjónar mínir alltaf fært þér feitan, steiktan grís um áramótin og kalkún og þrjár tunnur af vini á miðföstunni? — Þjónar! Þjónar! Hvað á ég að gera með þessa asna! Heldurðu, að ég hafi ekkert betra að gera en kýla vömbina og láta senda mér súpu eða tyggja kjöt? Ég hef nóga peninga til að slá upp veizlu ef mér sýnist, eins og ég hef alltaf haft. En þú kemur ekki oft hingað. Of önnum kafin við að vera falleg, ha? Það eru of margar stúlkur, sem ekki vita hvað virðing er. Konungur betlaranna var sárgramur. Hann ásakaði Angelique ekki fyrir að hún áliti sig meiri honum, heldur að hún sýndi honum engan sóma. Hann gat ekki séð neitt óeðlilegt við það, að háttsett kona við hirðina þrammaði í gegnum tuttugu tommu þykkan aur og skít og stofnaði lífi sínu í hættu meðal flækinganna til að koma til fundar við hann. Hann hefði ekki orðið undrandi þótt vagn Frakklandskonungs hefði numið staðar fyrir framan híbýli hans og konungurinn hefði tilkynnt heimsókn sína, svona kónga á meðal.... Hann var konungur undirheimanna og hann vissi um það vald, sem í því fólst. — Af hverju reynirðu ekki að koma viti inn í hausinn á La Reynie? Hvað meinar hann með því að umkringja okkur með lögreglumönnum sínum? Hver vill hafa lögregluna allsstaðar? Lögreglan er handa hinum heimsku og auðugu. Því sá sem er heimskur, verður að vera heiðar- legur. En við leggjum á okkur mikla og erfiða vinnu. Hvernig gætum við annars dregið fram lífið? Fangelsi? Snara? Hengdu þig, læstu þig inni! I gálgann með alla Þjófa! Betlararnir í almenningssjúkrahúsin! Hvað svo? Ætlar hann að gera okkur að engu, þessi fjandans La Reynie? Hann hélt áfram að ryðja út ur sér óánægjunni. Hinir miklu dagar Hirðar Kraftaverkanna, voru taldir, síðan La Reynie hafði orðið yfir- maður lögreglunnar og lét kveikja á luktum um alla París. — Hver er þetta? sagði hann að lokum og benti á Malbrant með pípumunnstykkinu. — Hver er þetta? — Vinur. Þú getur treyst honum. Hann er kallaður „Sverðíinnur". Ég þarf á honum að halda í þessum litla leik, sem ég ætla að sviðsetja, en hann getur ekki leikið öll hlutverkin sjálfur. Ýg þarf þrjá eða fjóra í viðbót. '

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.