Vikan


Vikan - 27.01.1966, Síða 36

Vikan - 27.01.1966, Síða 36
sjalfvirk hitatæki fyrir hitaveltu T»kin sjá um að ofnarnir fái aðoins það hitamagn, sem nauðsynlegt er til að Herbergið haldi því hitastigl sem þér óskið. Forðist ó- þarfa áhyggjur með því að nota Danfoss hitastilli- l tæki. Fylgist með tækninni! Nýjustu Danfoss sjálf- virku hitastillitækin full komna þægindi hitaveit- unnar og mmnka hita- kostnaðinn. Vélaverzlun Sími 24260 Ringo Starr Framhald af bls. 22. í Liverpool. Það var gaman að skoða ljósmyndimar, sem blaða- Ijósmyndaramir höfðu tekið af okkur, þegar við vorum á svið- inu. En í þá daga voru ekki nærri eins margir ljósmyndarar og nú, sem bókstaflega langaði til að taka myndir af Ringo Starr. Það var fyrst eftir að ég gekk í lið með Bítlunum 1962 að myndirn- ar tóku að hlaðast upp. Þegar við komumst í efsta sæti vin- sældalistans með laginu „Please please me“, fóru myndavélarnar að beinast að okkur í alvöru. Ég er sannfærður um það, að við sjáum að meðaltali tíu Ijós- myndara á hverjum degi, þegar við erum að vinna, og jafnvel þótt þeir taki ekki tíu ólíkar myndir hver um sig, mundi það verða samanlagt eitthvað um sjötíu þúsund myndir, síðan við hófum að leika saman. Hvað sem því líður, — það var þess vegna ekki nema eðlilegt, að við fórum að spyrja suma ljósmyndarana um myndavélarn- ar þeirra. Þessi áhugi vaknaði samt ekki skyndilega. Hann vaknaði smátt og smátt: við fór- um að virða fyrir okkur mynda- vélarnar, sem alls staðar blöstu við okkur og við komumst að raun um það, að þær voru ekki allar eins. Sumar þeirra voru í tengslum við hryllilegar og stór- ar leifturperur og minntu einna helzt á háfjallasól. Það var á þessu stigi að við fórum að spyrja spuminga: „Þarftu ekki að hafa rrieira ljós“? „Geturðu í raun og veru tekið góða litmynd af okkur með svona pínulítilli vél“? Og auðvit- að fórum við að fá svör við þessu öllu. Fáum mánuðum síðar álitum við okkur vera sérfræðinga í ljósmyndatökum, þótt við hefð- um aldrei reynt að taka myndir sjálfir. „Hana nú“! vorum við vanir að segja, „þá hefst ein þjáningin enn! Þegar þessi leift- urglampi blossar, brennum við okkur áreiðanlega á nefinu“. Eða: „Þetta líkar mér, þetta er Eftir kortinu eigum við að vera á þjóðveginum. góður náungi, — sjáiði stóru lins- una, sem hann hefur á Pentax- inum sínum“. Pentax, sjáðu til.. Við vorum svo sem farnir aði slá um okkur með fínum nöfn- um, eins og við vissum allt um tegundirnar! Um það leyti sem við fórum að leggja lönd undir fót, fannst okkur tími til kominn að við yrðum okkur úti um góðar myndavélar. Okkur langaði til að eiga minningar um hverja ferð síðar meir og geta sýnt fólkinu heima hvert við hefðum komið. Einn af ljósu punktunum við það að vera bítill, er einmitt það að við fáum tækifæri til að ferðast um og skoða okkur um í heimin- um. Okkur þykir fátt skemmtilegra en að ferðast um, en þegar svo ber undir gætum við þess alltaf að gleyma ekki myndavélinni heima. Chuck Berry Framhald af bls. 22. með hvítri stúlku, sem ekki var orðin 16 ára gömul. Þetta varðar við lög í þessu ríki Bandaríkj- anna — og vesalings Chuck var skömmu síðar tekinn höndum. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsisvist. Eflaust hefur það ekki orðið til þess að milda dóm- inn, að negri átti í hlut. Nú voru dagar Chuck Berry á frægðarbrautinni taldir. Það taldi hann alveg víst. En lögin hans féllu svo sannarlega ekki í gleymsku. Árið 1963 tók brezk hljómsveit heldur betur að láta á sér kræla. Þetta voru Bítlarn- ir. Þeir léku meðal annars á hljómplötu lagið „Roll over Beet- hoven“, sem Chuck hafði samið. Síðar skutu Rollingarnir upp kollinum, en báðar þessar hljóm- sveitir hrifust af músik Chuck Berry og töldu sig hafa orðið fyrir miklum áhrifum af henni. Upp frá þessu fengu brezkir ungl- ingar áhuga á Chuck Berry, en einmitt um það leyti hafði hann afplánað fangelsisvistina. Nokkr- ar af plötum hans voru nú send- ar á markaðinn til reynslu — en þær hurfu úr hljómplötuverzl- unum eins og dögg fyrir sólu. í ársbyrjun 1964 sendi hann frá sér fyrstu plötuna, eftir að hann kom úr fangelsi. Það var lagið „Nadine", sem þegar komst á vinsældalistann. Síðan komu fleiri lög, m.a. „No particular place to go“ og „You never can tell“. Nú er Chuck Berry vinsælli en nokkru sinni fyrr. Hann á það fyrst og fremst Bítlunum og The Rolling Stones að þakka. Hljómsveitir um allan heim leika lögin hans — og auðvitað hér heima líka. Hver kannast ekki við lögin „Memphis Tennesee“ og „Rock and Roll music“? Margir hafa reynt að skilgreina músik Chuck Berry, en enginn VIKAN 4. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.