Vikan - 27.01.1966, Síða 40
gólfdúkur - nýir litir.
Einnig linoleum parket-gólfflísar
í viðarlíkingu.
LK~W~£Wi £ Ftsf
málningarvörur
GRENSASVEG 22-24 (HORNI MIKLUBRAUTAR) SiMAR 30280 & 32262
er bíllínn, sem gengur
lengur en hlnir
ÖRYGGI * ÞÆGINDI * SRARSEMI * ENDING
Ritstjóri bílablaðsins Road & Track skipaði Peugeot í hóp 7
beztu bíla heims. Hinir eru: Rolls Royce, Porsche, Lincoln, Lan-
cia, Mercedes og Rover. Svo Peugeot er í góðum félagsskap.
Verðið? Peugeot 404 kostar um 237 þús. kr. Og okkur er
ónægja að selja yður einn af 7 beztu bílum heims.
HAFRAFELL H.F.
Brautarholti 22. — Simi 22255.
ar fjórði meðlimurinn sagði sig
úr söngflokknum, notuðu þeir
tækifærið og fengu hana til að
hlaupa í skarðið.
Judith er 22 ára gömul og leik-
ur mætavel á píanó, en aðeins
klassiska músik. Bassaleikarinn,
Athol Guy er 25 ára (og hann
leikur vel að merkja á ósvikinn
kontrabassa, sem er fremur fá-
títt hljóðfæri á þessum síðustu
tímum), Keith Potger leikur á
konsertgítar. Hann er 24 ára og
fyrrverandi útvarpsstarfsmaður.
Bruce Woodley leikur einnig á
konsertgítar og er 23 ára.
f maí s.l. sneru The Seekers
aftur heim til Ástralíu, en þó
ekki til að setjast þar að aftur.
Aðeins 10 daga hljómleikaferð.
Þetta var sannkölluð sigurferð,
og móttökurnar, sem þau fengu,
voru ekki síðri en Bítlarnir höfðu
fengið.
The Seekers eiga Tom Spring-
field mikið að þakka. Hann hef-
ur samið öll vinsælustu lögin
þeirra: „I‘ll never find another
you“, „A world of our own“ og
hið nýjasta, „The Carnival is ov-
er“. Það iag þótti raunar nokkuð
seint á ferðinni, en töfin stafaði
af veikindum ungfrúarinnar.
Lagið „The Carnival is over“ er
ekki alveg eins fjörlegt og hin
fyrri tvö, en laglínan er mjög
falleg; minnir kannski á rússn-
eskt þjóðlag, sem allir þekkja.
Úr göturæsinu ...
Framhald af bls. 17.
þá: — Heimur minn hrundi í mola.
Ég hélt að ég yrði aldrei framar
hamingjusöm, gæti aldrei hlegið
aftur.
í hálft ár eftir þetta lokaði hún
sig inni. Þegar hún kom fram í
sviðsljósið á ný fór hún í söngferð
um Bandaríkin. Rétt eftir komu sína
þangað giftist hún söngvaranum
Jacques Pill. Hjónavígslan fór fram
í New York 4. september 1949 og
Marlene Dietrich var brúðarmey.
Þau voru svo skilin að borði og
sæng árið 1956 og að lögum 1957.
Árið 1962 giftist hún Theo Sar-
apo, sem var rakari áður en hann
varð söngvari. Hjónavígslan fór
fram í grtsku kirkjunni og hún var
klædd svartri peysu við athöfnina.
Charles Dumont, höfundur ,,Je ne
regrette rien" var vígsluvottur. Þeg-
ar þetta skeði var Edith orðin mesti
sjúklingur. Hún var 46 ára gömul
en Theo 23. Þrátt fyrir það að hún
legði sál sína í sönginn, þegar hún
söng „Je ne regrette", (Ég iðrast
einskis) er samt eins og hún sjái
eftir einhverju, — því að [ bréfi
sem fannst eftir lát hennar skrifaði
hún:
— Allt líf mitt hefi ég leitað
ástarinnar. Hinnar sönnu ástar. En
ég hefi aldrei fundið hana. Og í
mörg ár hefi ég verið haldin hræði-
legri hræðslu, hræðslu við einmana-
leikann. Ég er hrædd við að deyja
ein, án þess að nokkur sitji hjá
mér, hrædd við að deyja svikin og
yfirgefin. Þessvegna giftist ég Theo
fyrir ári síðan. Það var vegna þess-
arar ofsalegu hræðslu við einmana-
leikann, sem kvaldi mig stöðugt og
hafði nær firrt mig viti . . .
En hún dó ekki einmana. Theo
veik ekki frá henni, hann sat hjá
henni þegar hún tók síðasta and-
varpið. Hún hafði farið til Cap
Ferrat á Rívíerunni til að ná sér
eftir sjúkdómslegu. Theo fylgdi
henni og hann fór með henni til
heimilis hennar í Boi de Boulogne,
og þar andaðist hún, í sinnu elsk-
uðu Parísarborg föstudaginn 11.
október 1963.
Fleiri þúsundir voru við látlausa
jarðarför hennar í Pere Lachais-
kirkjugarðinum, þar sem prestur
jarðsöng. Þeir sem þekktu hana
minntust hennar vegna þess að hún
setti list sína ofar öllu öðru. Ótal
sinnum sögðu læknar og sérfræð-
ingar henni að það væri lífshættu-
legt fyrir hana að syngja, en hún
sinnti því aldrei.
Einu sinni leið yfir hana í bún-
ingsherberginu hennar í Dreux og
þegar hún raknaði úr rotinu sagði
hún. — Lofið mér að heilsa upp á
áheyrendur mína. Þeir eru vinir
mínir. Ég fyrirfer mér ef þið lofið
mér ekki að syngja.
Óteljandi eru þeir sem muna
‘Brúðarkjólar
stuttir og síðir í miklu úrvali.
BRÚÐARSLÖR — BRÚÐARKÓRÓNUR.
Klapparstíg 44.
VIKAN 4. tbl.