Vikan - 27.01.1966, Síða 41
gjafmildi hennar gagnvart öllum
sem urðu á vegi hennar, allt fró
blaðasölum og óþekktum götu-
söngvurum sem hún bauð oft að
borða með sér, til þess óþekkta og
nafnlausa fólks sem hún aðstoðaði
til frægðar og frama. ^
Þegar hún var veik á Cap Ferrat
kom einu sinni til hennar Domini-
kananunna, systir Claude og gaf
henni mynd af heilagri Theresu, en
það var einmitt heilög Theresa sem
gerði kraftaverkið forðum, þegar
Edith fékk sjónina. Nunnan sagði:
— Þetta er það sem mér þykir vænzt
um af eigum mínum og þessvegna
gef ég þér þessa mynd . . .
Eftir þetta skildi hún aldrei þessa
mynd við sig, hún hafði hana allt-
af undir koddanum á nóttunni. Síð-
ustu orðin sem hún sagði áður en
hún missti meðvitundina í síðasta
sinn voru: — Fáið mér myndina af
hinni heilögu Theresu!
★
Mikil er mæða
mæðranna
Pramhald af bls. 11.
og aldan brotnar ekki fyrr en
eitthvað er búið að gera í málinu.
'Stærstu öldurnar síðastliðin ár-
in hafa verið þær sem svertingja-
málin og skólamálin hafa komið
af stað. Blöð og tímarit hafa verið
og eru enn full af greinum um
skóla og svertingjamál. Gagn-
Týnin gæti ekki verið meiri í
rússneskum blöðum! Þegar ég
er í svartsýnu skapi furða ég
mig oft á hvers vegna Amerí-
kanar gefa bara ekki svertingj-
unum landið og fari svo allir á
skóla í Englandi.
Vandamál skólanna virðast
vera margvísleg, kennaraekla
og gífurleg fjölgun nemenda,
nemendur, sem gefast upp (drop-
outs) og eru því illa undirbúnir
til vinnu í þessu landi, og svo
hefur kennslan sjálf og kennslu-
aðferðir komið undir sterka
gagnrýni. Mikið hefur þegar
verið gert og meira stendur til,
til úrbóta á öllum þessum vanda-
málum. Margar nýjar hugmynd-
ir hafa komið fram og sumar
eru þegar í notkim eða á til-
raunastigi, þar á meðal sú hug-
mynd að láta börnin sinna öll-
um sínum lærdómi í skólanum,
þar sem tæki og bækur eru til
taks og kennarar til staðar til
aðstoðar, í staðinn fyrir að setja
börnunum fyrir og ætlast svo til
að foreldrar hjálpi þeim að læra
heima. Oft eru foreldrarnir of
ómenntaðir, önnum kafnir eða
latir til að sinna slíku og heimilin
ófriðarstaðir og illa búin af nauð-
synlegum gögnum, svo sem upp-
sláttarbókum.
Ein nýjung er ný kennsluaðferð
í stærðfræði, en því miður get
ég ekki skýrt það út nánar, því
ég yrði sjálf að setjast á skóla-
bekk til að læra þessa aðferð
fyrst. Margir áhugasamir foreldr-
ar hafa gert einmitt það, en há-
skólar bjóða uppá stutt stærð-
fræðikvöldnámskeið fyrir for-
eldra, svo þeir geti skilið hvað
börnin eru að tala um, þar sem
orðin og hugtökin, sem notuð
eru nú eru algjör nýjung.
Hvar sem fólk er samankomið
snúast umræðurnar eins oft að
skólamálum og stjórnmálum og
áhuginn og hitinn er mikill. Fyr-
ir nokkrum árum var það faðir
foot-ball hetjunnar, sem var sá
montnasti af sínum syni, en núna
virðist dagur bókaormsins (egg-
head) vera að renna upp.
Stráksa mínum gengur vel í
skólanum og hann á föður, móð-
ur, og systur á sama stað, eins
og sálfræðingarnir vilja hafa
það, og heimilislíf hans er nokk-
urn veginn eðlilegt og stórslysa-
laust. Ég var farin að verða
nokkuð notalega ánægð með
sjálfa mig og lífið, en svo datt
botninn úr öllu saman. Ég gat
ekki látið það vera að lesa eina
greinina enn. Fyrirsögn þeirrar
greinar var „Childhood and
Greatness", og fjallaði hún um
rannsókn sem tveir Californíu
sálfræðingar, Victor og Mildred
Goertsel höfðu gert á barnæsku
400 heimsfrægs fólks. Kom þar
fram á daginn að 75% af þessum
frægu manneskjum höfðu alizt
upp við óhamingju, basl og leið-
inda heimilislíf, eða ekkert heim-
ilislíf, þar sem foreldrarnir höfðu
skilið. Til dæmis höfðu margir
af heimsins frægustu leikurum og
söngvurum drykkjuræfla fyrir
feður, margir frægustu hermenn,
„dictatorar“ og ljóðskáld áttu
við of mikla móðurást að etja,
og margir frægir landkönnuð-
ir og ævintýramenn voru hrak-
fallabálkar sem börn. Móðir
Adolfs Hitlers ætlaði alveg að
kæfa hann í móðurást og hélt
honum í óhæfilegri fjarlægð frá
stúlkum á hans aldri, og þegar
hann var 15 ára neitaði stúlka
ein, Stephanie að nafni, að brosa
við honum, svo hann hótaði
sjálfsmorði. Það varð að vísu
ekki úr því fyrr en mörgum ár-
um seinna, því miður, ef ég væri
spurð.
Móðir hinnar frægu óperu-
söngkonu Mariu Callas vildi fá
son í stað annars sem látizt hafði,
þegar María fæddist, svo María
var óvelkomið barn á heimilinu.
Mao Tse-tung reifst svo mikið
við föður sinn að hann hótaði
að drekkja sér ef faðir hans mót-
mælti honum bara einu sinni enn.
Charles de Gaulle átti í vand-
ræðum með nefið á sér, það var
og langt eins og reyndar hann
allur, svo hann var kallaður
„Langi Aspragusinn" og gekk
honum illa að læra í skóla og
hann átti fáa vini.
Kannske ég ætti nú að gerast
drykkjuræfill, skilja við mann
minn og kæfa stráksa í móðurást,
saii
... í yndis-
lepm
ilmkremum
HIN SÉRSTÖKU ILMKREM FRÁ AVON.
Sex ilmtegundir — indælar, mildar og lokkandi,
viO hsefi hverrar konu. Svalandi, heit og rómantisk
áhrif. Við öll tsekifseri er ILMKREM ávallt þaO bezta.
Aðcins ögn á hndleggi háls og herðar — kremið
hverfur, en ilmurinn verður eftir lengi — lengi.
VIKAN 4. tbl. 41