Vikan


Vikan - 27.01.1966, Blaðsíða 46

Vikan - 27.01.1966, Blaðsíða 46
í þessu blaði og næstn verður bent á ýmislegt, sem gott er að vita um mót- töku gesta. Margt aí' því vila lesendur sjálfsagt þeg- ar, en alltaf getur eitthvað slæðzt með, sem einhver hefur gagn af eða gaman. Talað verður um margs konar boð, og í matarþætt- inum verða uppskriftir af mat, sem vel á við það sem um er rætt. Gestamóttökur verða auðvitað eins mis- jafnar og lieimilin eru — allt slíkt stjórnast af bús- bændum, húsrými og efna- hag, enn nokkrar almenn- ar leiðbeiningar um ytri ramma geta komið sér vel. Engin blóm eru á borðinu, en tágabakki með grænum og bláum vínberjum gerir borðið skemmtilega hlýlegt. í servíettuna er hinsvegar stungið einu biómi til þess að meiri hátíðabragur só að. MÁLTÍÐ Á SÍÐKVÖLDI Fátt er vinsælla en Ijúffengir réttir á rólegri samverustnnd, síSla kvölds, eftir aö lcomiS er lwim úr leikhúsi, tónleikum eöa frá öörum samkomum þar sem ekkert er á boröum. ÞaÖ kostar nokkra fyrirliyggju af húsmóöurinnar hálfu, þar sem venjulega þarf aö undirbúa réttinn aö vissu marki fyrr á sama degi, svo aö ekki taki meira en 10 mín eöa kortér aö setja hann fullbúinn á boröiö. Ef búiö er aö bjóöa til þessarar máltíöar fyrirfram, er rétt aö leggja á borö áöur en fariö er af staö, en eigi boöið aö koma af tilviljun, eöa aö aöstæöur ráöi hverjir geta komiö meö heim, er þaö ekki viöeigandi, en þaö má mikiö flýta fyrir sér meö því aö lhafa allt tilbúiö í eldhúsinu, diska, glös og hnífapör — og boröslcreytingu og dúk, því aö útlitiö er mikilvægt viö slíka máltiö ekki síöur en aörar. Venjulega reynir húsmóöirin aö hafa allt frekar óhátíö- legt á boröinu, en leggur aöaláherzluna á, aö allt sé smekklegt og hlýlegt. Mislitir dúkar, leirboröbúnaöur og kertaljós er rétti ramm- inn um óformlega kvöldmáltíö, og yfirleitt tekst bezt til, ef gestirnir eru fáir, því aö þá skapast þaö innilega og hlýlega andrúmsloft, sem œtlast er til meö svona gestáboöi. BorÖ- skreyl'ingin gæti veriö úr ávöxtum, sem þá væru um leið ábætisréttur kvöldsins, eöa stór bckki meö osti og ávöxtum, sem gegndi sama hluiverki. í matarþœttinum aftar í blaöinu er aö finna uppskriftir aö nokkrum réttum, scm lientugir eru viö gestamóttöku á síðkvöldi, cn fjölmargt annaö lcemur auövitaö Vil greina. I næsta blaöi veröur talaö um hátíölegt tcvöldveröarboö. Sé borðpIássiS lítið má setja ávexti til skreytingar og neyzlu i há, glær glös í íallegum litum. Langur trébakki hlaðinn af osti, kexi og ávöxtum er bæði skrautlegur og hentugur á borðið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.