Vikan


Vikan - 27.01.1966, Side 50

Vikan - 27.01.1966, Side 50
r APPELSÍN SÍTRÓN L I M E Svalandi - ómissandi á hverju heimili Vofan á veginum Framhald af bls. 49. söguna, um gamla manninn, sem stóð á miðjum veginum, þann- ig að sá sem vék fyrir honum, setti sjálfan sig í lífshættu um leið. Ættingjar gamla mannsins hafa reynt að hafa samband við dul- fróða menn um það hvort ekki sé hægt að ná sambandi við hann og reyna að fá hann til að hætta því að standa þarna. Aðrir vilja halda því fram að það fólk sem hefir séð hann hafi verið haldið einhverskonar of- þreytu og þar af leiðandi séð ofsjónir, eða jafnvel verið undir áhrifum áfengis. En það er stað- reynd að allir þessir bílstjórar hafa gefið nákvæmlega sömu lýsingu af gamla manninum, og að enginn þeirra sem sáu hann þekktu hann í lifanda lífi, eða vissu hvernig hann hafði látið lífið.... ★ Þau syngja ... Framhald af bls. 23. bandarísku hjónakorn á ferðalagi í Englandi og vöktu feiknalega at- hygli. Þar í landi áttu þau í sífelld- um brösum með að fá inni á gisti- húsum. Þau þóttu ekki í húsum hæf í hinum fáránlegu klæðum sínum, skinnbuxum með kögri og „bjöllu- botni", peysum eða hólkvíðum skyrtum með ermamúnderingum og sauðskinnsvestum. Eftir nokkra yfir- vegun af hálfu brezkra sjónvarps- yfirvalda, fengu þau að koma fram í hinum vinsæla þætti „Ready, Steady, Go". Eftir þá útsendingu, sem vakti feiknalega hrifningu, var gerður út bandarískur sjónvarps- leiðangur, sem myndaði hjúin í bak og fyrir í London. Sonny og Cher hafa oftsinnis ver- ið að því spurð, hvenær þau hafi hugsað sér að eignast erfingja. Þau svara því jafnan til, að þau ætli að bíða, þar til þeim hafi áskotn- ast það mikið fé, að þau geti dreg- ið sig í hlé. Þess má geta að lokum, að þau fengu sem svarar 25 millj. ísl. króna fyrir þriggja vikna hljómleikaferð til Englands! Forstjórinn: — Getió þér ekki látiö yöur nœgja samloku, eins og hitt fólkiö? GRATINERAÐUR HUMAR Reiknið % humar á mann, sker- ið kjötið í smábita og blandið saman við sveppi, skorna í sneiðar, og blandið majones í, þannig að allt samlagist vel. Bragðbætið með koníaki. Setjið blönduna á humar- skelina og stráið rifnum osti yfir og bakið í heitum ofni eða undir grilli í ca. 10 mín. TARTALETTUBOTN Kaupið þannig botn í brauðbúð og hitið hann rétt áður en fylling er sett í hann. Fyllingin getur verið margs konar, en reynið þessa: 1 kálfsnýra, 1 mögur svínakóte- letta, 100 gr. bacon, 300 gr. svepp- ir, 4 matsk. hveiti, 1 súputen- ingur, 2 dl. rjómi. Leggið nýrað i ediksvatn í ca. klukkutíma. Þerrið það vel og dragið af Því yztu himnuna og takið burt æðar og fitu. Skerið það í sneiðar langsum, þerrið þær vel og skerið í teninga. Skerið síðan baconið og kótelettuna í smábita, og brúnið allt hvert I sínu lagi, setjið það í eldfast fat til skiptis við sveppina, stráið hveitinu yfir og jafnið með súpu- teningnum úthrærðum í 4 dl. vatni og rjómanum. Bragðbætið með salti og pipar og sherrý. Látið malla í 15 mín. Allt þetta má und- irbúa fyrr um daginn og hita svo jafninginn upp rétt áður en hann er settur í botninn. KJÚKLINGASALAT 1 steiktur kjúklingur, 3—400 gr. sveppir, 1 gúrka, 1 salathöfuð, 4 tómatar, 1 dós spergill, 1 pipar- hulstur, rautt eða grænt. Sósa: 3 hlutar matarolía, 1 hluti edik, salt, pipar, karrý. Þegar steikti kjúklingurinn er kaldur, er yzta lagið tekið af hon- um og hann skorinn í lítil stykki. Sveppirnir skornir í sneiðar og blandað í kjötið og salatsósunni hellt yfir. Eftir dálitla stund er grænmetinu, öllu nema tómötun- um og salatinu, sem skorið hefur verið fremur smátt, bætt í og sperglinum. Þetta þá gjarnan standa nokkra tíma, áður en það er borið fram. Nuddið salatskál- ina með hvítlauk og setjið salatið í og tómatana siðast og grænu salatblöðin. Borið fram með franskbrauði og smjöri — og rosé- vin er mjög gott með þessu. KRABBAFAT Þennan rétt má undirbúa að vissu marki fyrr um daginn, en þó verður að reikna sér 20 mín. til að fullgera hann, og þá Þyrfti ofninn helzt að vera heitur, þegar byrjað er. Þær, sem hafa ofn, sem kveikir á sér sjálfur eru auðvit- að í engum vandræðum með það. Sjóðið hrisgrjón í nægu vatni og salti, karrýi og súputeningi. Helm- ingurinn af grjónunum er settur í smurt ofnfast fat og þakið með innihaldinu úr einni dós af græn- um spergli og einni krabbadós, er fiskurinn skorinn fyrst í smá- stykki. Stráð 2 matsk. af rifnum osti yfir. Setjið hinn helming hrís- grjónanna þar yfir og annað lag af spergli og krabba. Rétt áður en rétturinn er settur í ofninn er blandað saman 1 bolla af egta majones, 1 eggjarauðu, 2 matsk. kartöflumjöli og einni stífþeyttri eggjahvítu. Jafnið þessu oían á fatið og bakið við ca. 225 gr. hita í ca. 15 mín. Pilsner lystugur með. DRAUMASKINKA 12 sneiðar soðin skinka, 1 dós rauð paprika, 200 gr. sveppir, 2 dl. rjómi, 5—6 matsk. chilisósa, 4—5 matsk. rifinn ostur. Rúllið skinkusneiðunum laus- lega saman og leggið í smurt eld- ■fast fat og hellið brúnuðum svepp- unum yfir. Skerið paprikuna i sneiðar og setjið efst. Þetta er hægt að undirbúa fyrirfram. Rétt áður en rétturinn er settur í ofn- inn er rjómanum og chilisósunni blandað saman og hellt yfir skink- una. Rifnum osti stráð yfir og bak- að í 15 mín. Smurt brauð eða rúndstykki borin með og kaldur pilsner. HE'ITT BRAUÐ Blandið saman 1—2 sneiðum af saxaðri skinku, 3—4 matsk. af smásöxuðum sveppum, 1 matsk. fínsaxaðri púrru og 1 matsk. maj- ones, kryddaðri með chilisósu. Sett á ristaðar franskbrauðsneiðar og þykk sneið af mildum osti ofan á. Bakað við 275 gr. hita í ca. 10 mín. ÁVAXTABRAUÐ Setjið þykka sneið af skinku á ristaða franskbrauðsneið, ofan á hana eina sneið af ananas, síðan aðra skinkusneið, heldur þynnri. Raðið hálfum vínberjum ofan á og siðast þykkri ostsneið. Bakið við mikinn hita í ca. 10 mínútur. gQ VIKAN 4. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.