Vikan - 10.03.1966, Side 6
Tízkulitir ársins frá Paris og um
allan heim koma frá Lady Rose
í öllum litbrigðum rósarinnar.
Lady Rose býður yður nagla-
lökk, varaliti, Eyliner, augn-
skugga, hárlakk, Make-
Up, augnabrúnaliti, o. fl.
í litum sem ilma af feg-
urð rósarinnar.
Reynið hinar fallegu
snyrtivörur frá Lady
Rose, sem er merki ungra
stúlkna i dag.
ÚtsölustaSir:
RejrkJavfk:
Snyrövöruverziunin, Laugaveg 76,
Hmbjörk, Hafnarstrætl 7,
Sápuhúsið, Lækjargötu Z.
Útl á landi:
Edda, Keflavlk,
HEILDSÖLUBLRGÐIR:
Strandberg, Vestmannaeyjum,
Drífa, Akureyri,
Drxfandi, Akranesi,
Verzl. Guðrúnar Rögnvalds, Sigluf.,
Fönn, Neskaupstað,
Verzl. Jóns Gíslasonar, Óiafsvík,
Axeisbúð, Sandgerði,
Bókabúð Grindavíkur.
Móberg s.f.
Laugaveg 28B. — Pósthólf 1311. — Reykjavík.
BLÓM VIKUNNAR.
Kæra Vika!
Sæl og blessuð og þökk sé þér
fyrir þitt ágæta lestrarefni, og
sér í lagi fyrir krossgáturnar, þær
eru mín skemmtilegasta dægra-
dvöL
Alltaf kemur ykkur eitthvað
nýtt og skemmtilegt í hug, Viku-
mönnum. Blóm fyrir bezta bréf-
ið, það er nokkuð sem flestir
hljóta að hafa áhuga á, ég þar
á meðal. En þá er bara vandinn
stóri, um hvað bréfið á að fjalla.
Ég sé ekki betur en flest bréfin,
sem í Póstinum birtast séu ein-
hverskonar kvörtunarbréf, og
varla er hægt að verðlauna slíkt.
Eða er kannske ætlunin að verð-
laima bréf um sjansleisið, kvört-
un yfir tengdamömmu, eða skrif
um ótryggð eiginmannsins. Æ, nei
Vika min, því vil ég ekki trúa,
því að þá gæti ég ekki haft
minnstu von. Og nú spyr ég þig,
hvað þarf efni bréfsins að vera
svo hægt sé að öðlast Daggar-
blómin að gjöf.
Ég er drunga hugans háð
hvergi opin smuga.
Veittu mér nú Vika ráð
vel sem mættu duga.
S.
P.S. Ég veit hvemig skriftin er.
Það er nú svo, kæra S, að það
er ekki hægt að gefa ákveðna
forskrift að bezta bréfinu, og við
sjáum í sjálfu sér ekkert því til
fyrirstöðu að veita blóm fyrir
bréf um þau efni, sem þú telur
upp, ef þau eru t.d. mjög hnytti-
lega skrifuð, eins og oft vill
verða, og þeim fylgir nafn og
heimilisfang (sem að sjálfsögðu
fer ekki lengra, sé þagmælsku
óskað um það atriði.). Annars
er bréfið þitt ágæt hugvckja, og
Blóm Vikunnar færð þú — ekki
hvað sízt kannski fyrir vísuna.
BEINASKJÁLFTI.
Kæri Póstur!
Ég leita til þín í vandræðum
mínum eins og flestir aðrir. Því
er þannig varið: Vinkona mín
lenti fyrir bíl fyrir skömmu og
það var á hinni hættulegu Miklu-
braut. Síðan slysið varð, hef ég
verið svo hrædd við bíla, að ég
hef skolfið á beinunum þegar ég
fer yfir götu. Ekki þori ég held-
ur að fara yfir Miklubrautina.
Segðu mér nú Póstur góður,
hvort ég á að leggja í að fara
yfir Miklubrautina?
P.S. Ég, þessi sem varð fyrir
bílnum og önnur vinkona mín,
(sú sem var með stelpunni þeg-
ar hún varð fyrir bílnum) við
erum allar hræddar, að fara yfir
þessa ólukkans götu. (Miklu-
brautina).
Hvernig er skriftin?
Elín Sigmarsdóttir,
Heiðargerði 52,
Reykjavík.
Hvað heitið þið sem svarið
bréfum í Póstinum?
Sama.
Það er til undirgangur undir
hana, á móts við Lönguhlíð. Þar
er sæmilega öruggt, maður verð-
ur ekki fyrir bíl. Ef það er of
langt fyrir ykkur að fara þangað,
í hvert skifti sem þið þurfið að
fara yfir Miklubrautina, get ég
ekki kennt ykkur annað ráð
betra en að fara eingöngu yfir,
þar sem merktar gangbrautir eru,
og líta vel í kring um ykkur áð-
ur. Sé allt í lagi, enginn bíll
kominn of nærri, held ég að þið
eigið að leggja í að reyna fara
yfir götuna. — Skriftin er sæmi-
Icga læsileg, svo sem ekki Ijót,
en hreint ekki falleg. — Við heit-
um Póstur I, Póstur II, Póstur III,
Póstur IV, Póstur V, Póstur VI,
Póstur VII, Póstur VIII — og
fleiri rómverskir tölustafir eru
ekki á ritvélinni minni.
AÐ FARA EÐA VERA ...
Póstur minn!
Kenndu mér nú eitthvað ráð
— í hasti! Svoleiðis er mál með
vexti, að ég er orðin ástfangin,
en veit þó ekki, hversu alvar-
legt það er. En einn er þó ljóður
á ráði mínu, en það er, að ég
er eiginlega búin að ákveða að
fara út í lönd í sumar og dvelj-
ast þar í ca. 10 mánuði. Það var
ákveðið í fyrrasumar, en þá
þekkti ég nú ekki „unga herrann“.
Ég er nú ekki viss, hvað ástin
er mörg stig hjá mér, en kær-
astinn er alveg óður og segir að
ég eigi að hætta við allt saman
og vera kyrr hjá honum.
Allar vinkonur mínar segja, að
ég eigi að gera eins og hann seg-
ir, því þetta sé svo góður strák-
ur, og ég sé orðin svo gömul
að ég eigi að reyna að komast á
fast!
En ég er nú bara tæpra 18 vetra