Vikan - 10.03.1966, Page 45
Kemur úf mánaöarlega
Ffölbreytt aö effni
Fæst á næsta blaðsölustað eða bókabúð
Kostar 40 kr. heftið. Árgangurinn kr. 400.
byssunnar, sem La Valére hafði gef-
ið honum. Hún small með tóma-
hljóði og Ashford œpti aftur: —
Nei, Bobby! Nei! og hljóp í óttina
til þeirra. La Valére öskraði til hans
að fara aftur til baka, en Ashford
hljóp í áttina til eina mannsins,
sem hann elskaði í heiminum, eina
mannsins, sem hann þoldi ekki að
skammast sín fyrir, sem honum var
óbærilegt að gengi á bak orða
sinna.
Hann hljóp á milli Craig og La
Valére og Craig velti sér betur upp
að skelinni við gosbrunninn og
greip andann á lofti, þegar hann
rak brotna fingurinn í brúnina.
Pucelli hrópaði einhverja viðvörun,
meðan Craig þreifaði fyrir sér með
hendinni og fann byssuna, sem
hann hafði falið fyrir Turner. Fing-
ur hans krepptust um hana, þegar
La Valére skaut, og Ashford æpti
í síðasta sinni og féll síðan eins
og tré við fætur La Valére. Craig
horfði á hann falla, en hugur hans
neitaði að viðurkenna það. Hann
gat ekki um annað hugsað en að
La Valére hafði svikið hann og
gefið honum tóma byssu. Hann
minnti sjálfan sig á, að brjálæð-
ingar hagræða sínum eigin rogl-
um, eftir því sem bezt blæs. Svo
skaut La Valére aftur, og kúlan
skall á þessum Ijóta gosbrunni, fá-
einum þumlungum frá höfði hans.
Hægra megin var Pucelli að kom-
ast í skotfæri til þess að gera út
um málin, og Pucelli hafði sjálf-
virka byssu, sem gat spúð úr sér
kúlunum eins og vasaútgáfa af vé1-
byssu. Hægt, með mikilli nákvæmni,
miðaði Craig á La Valére og skaut
hann ( gegnum hjartað. Undrunin
speglaðist á andliti hans, þegar
hann dó.
Pucelli tók að skjóta, um leið
og La Valére féll. Stórar, þungar
kúlur féllu á gosbrunninum, og
Craig klúkti undir honum og heyrði
þær þjóta framhjá. Hann lá grafkyrr
og svo leið ein mfnúta, svo hljóð-
lát, að hann heyrði úrið sitt tifa.
Svo skaut Pucelli aftur, einu sinni,
og kúlan fór mjög nærri og Craig
hreyfði sig ekki. Að lokum stóð
Pucelli upp og kom fram úr skjóli
sínu, hreyfði sig af mikilli varkárni
og hendur hans voru báðar um
Mauserbyssuna. Craig hleypti af,
þegar Pucelli kom upp á gangstfg-
inn. Þetta var bezta skot ævi hans.
Það varð að vera það. Kúlan lamd-
ist inn í handlegg Pucellis og stóra
Mauserbyssan féll til jarðar. Craig
stóð á fætur. Pucelli stóð og riðaði
fyrir framan hann, og þegar Craig
beygði sig áfram og tók upp byss-
una, hélt hann aðeins áfram að
riða. Craig fann þreytuöldurnar
skella yfir hann, þegar hann neyddi
sjálfan sig til að halda áfram.
— Þú ert fffl, sagði hann rámur.
— Fáviti. Ef þú hefðir komið heið-
arlega fram, hefði ég dáið. Þið
eruð allir vitlausir. Hversvegna
þurftuð þið að hafa rangt við?
Pucelli kreppti hendina um hand-
legginn.
— Ég vildi þetta ekki, sagði
hann. — Ég ætlaði að drepa þig
sjálfur. Einvígið var hugmynd La
Valére. Hann var sjentilmaður.
Hann spýtti út úr sér orðinu.
— Nú förum við aftur heim í hús-
ið og þú talar við Duclos, sagði
Craig. — Það þýðir ekki að mót-
mæla. Gerðu það.
Pucelli horfðist í augu við Craig
og hlýddi. Hin leiðin var dauðinn
og hann vissi það.
Duclos leið dásamlega. Fallegar
stúlkur, mikilvægir menn voru á
hans valdi. Byssan hans var tákn
valdsins, veldissproti hans, svo
lengi sem hann hélt henni, hlýddu
allir honum. Það var gott; dásam-
legt. Og hann miðaði henni á stúlk-
una. Það var jafnvel enn dásam-
legra. Þegar skotin gullu og allir
hrukku við, þurfti Duclos ekki ann-
að en að lyfta byssunni nokkra
sentimetra, og þá voru allir kyrrir
og hlýðnir einu sinni enn. Byssan
var stórkostleg. Og þessi fluga La
Valére að heyja einvígi, kannski
hún hafi ekki verið svo vitlaus,
þegar allt kom til alls. En það
varð að nota byssuna virðulega.
Gera sér grein fyrir formi og regl-
um. Hönd Duclos hreyfðist og byssu-
hlaupið snerti háls Sophie, rann
niður með öxl hennar og yfir stolt,
fallegt brjóstið. Lffið var stundum
mjög gott. Það var gott núna.
Fyrir aftan hann sagði rödd Puc-
elli. — Það er allt í lagi Duclos.
Komdu út. Höfuðsmaðurinn vill tala
við þig.
Duclos andvarpaði og hörfaði
hægt frá stúlkunni. Góðu stundirnar
voru aldrei langar. Allt í einu breytt-
ist andlit stúlkunnar og það kom
undrun í það. Síðan kviknaði í
þvf ný hamingja. Allt of seint tók
Duclos að snúa sér við. Eitthvað
hart skall aftan á höfði hans og
hann féll, byltist einu sinni og var
svo kyrr.
— Þú átt mig, sonur sæll, sagði
Turner. — Hvenær sem er, hvar
sem er. Nefndu það bara.
Sophie hljóp til móts við Craig
og stóð þar og skalf óviðráðan-
lega, þar til styrkur snertingur hans
vakti með henni nægilega örygg-
iskennd til þess að hún gat tekið
að gráta og hún þoldi að Ifta á
Duclos, þar sem hann lá í hrúgu
á gólfinu og Pucelli skalf ( stól.
Larry tók byssu Duclosar. — Hvar
er hinn náunginn? spurði hann.
— Hann er dauður, svaraði Craig,
og sagði þeim hvað fyrir hafði
komið. Nono varð æfareiður.
Framhald f næsta blaði.
Heilsa og fegurð í
baðkerinu.
Framhald af bls. 47.
í tíu mfnútur, en burstið svo húð-
ina með baðbursta eða hörðum
svampi. Farið svo í kalt steypibað
og hvflið ykkur á eftir í minnsta
kosti hálftíma.
Ef þið farið f bað á hverjum
degi, eigið þið ekki að vera leng-
ur en tíu mínútur í einu og helzt
styttri tíma, því að annars verður
húðin of slöpp. Hitinn á vatninu á
ekki að fara yfir 37 stig. Á eftir
á að fara f kalt steypibað, en ef
þið treystið ykkur ekki til þess eða
þolið það ekki, má láta helming
heita vatnsins renna úr kerinu og
fylla það sfðan aftur með köldu,
meðan þið liggið f kerinu. Lfka
má nudda sig vel á eftir með klút
undnum upp úr fsköldu vatni.
Burstanudd í vatninu er ákaflega
hollt og styrkjandi. Byrjið á fót-
unum og haldið áfram upp eftir.
Notið til þess feita og góða sápu,
það nreinsar oð örvar blóðrásina.
Farið ekki í bað strax eftir mál-
tíð, helzt ekki fyrr en tveim tímum
eftir að borðað er.
Hvíld er mjög mikilvæg eftir að
farið er í bað. Hafið vatnið ekki
of heitt, sérstaklega ef einhverju
sterku er bætt f vatnið, því að þá
verðið þið þreyttari eftir böðin en
áður.
Hugsið um hárið, þegar farið er
f bað. Gufan eyðileggur lagning-
una og liðað hár hrekkur f smá-
krullur. Vefjið það þvf upp í rúll-
ur áður en farið er f baðið eða
festið bylgjurnar með spennum.
Notið þétta baðhettu, sem ekki
þrengir að höfðinu, eða vefjið stóru
frottéhandklæði um höfuðið. Eftir
að baðhettan eða handklæðið er
tekið af, er rétt að láta rúllurnar
eða spennurnar vera f enn um
stund, þannig að gufan f hársverð-
inum geti þornað.
Hreinsið andlitið vel áður en far-
ið er í bað og smyrjið góðu kremi
á það. Þegar húðin er orðin heit
í baðinu, smýgur kremið sérlega
vel inn í húðina í gufunni, og sama
er að segja um andlitsgrímu. And-
litshúðin er mjög móttækileg fyrir
öllu f baðinu og er sjálfsagt að
notfæra sér það.
VIKAN 10. tbl. 45